Jump to content


Er DV viðbjóður?


36 replies to this topic

#1 Timoshenko

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12424 posts
  • Gender:Male

Posted 16 February 2012 - 08:23

Er DV viðbjóður?

Hvað eru þeir að reyna að gera þessum blessaða lýtalækni? Eru ENGIN takmörk fyrir því hvað þeir ganga langt til að selja blöð og fá smelli á síðunni?

Hér með er ég hættur að heimsækja DV, punktur.

#2 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10765 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 16 February 2012 - 09:08

QUOTE(Timoshenko @ 16. February, 2012, 8:23) <{POST_SNAPBACK}>
Hér með er ég hættur að heimsækja DV, punktur.

Kem með þér. Hættur að svo lítið sem kíkja á DV.is.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#3 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12758 posts

Posted 16 February 2012 - 09:08

ljótt að tala um blessaða lýtalæknana?

#4 Timoshenko

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12424 posts
  • Gender:Male

Posted 16 February 2012 - 09:12

QUOTE(fleebah @ 16. February, 2012, 9:08) <{POST_SNAPBACK}>
Kem með þér. Hættur að svo lítið sem kíkja á DV.is.
Já þú hefur talað um þetta lengi, og ég er endanlega orðinn alveg sammála þér varðandi DV.

Þeir gera suma hluti ágætlega, en annað sem þeir gera er svo mikill viðbjóður að manni blöskrar.

DV er komið úr bókamerkjum.


#5 siff

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2991 posts

Posted 16 February 2012 - 12:52

QUOTE(Timoshenko @ 16. February, 2012, 8:23) <{POST_SNAPBACK}>
Hér með er ég hættur að heimsækja DV, punktur.


Það er lítið eftir af fréttamiðlum sem virka, kannski er einhver fréttatengdur ljóðabálkur í kjallaranum á internetinu?
-------------------
Spilwerk Guitar Lessons

#6 Timoshenko

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12424 posts
  • Gender:Male

Posted 16 February 2012 - 12:53

QUOTE(siff @ 16. February, 2012, 12:52) <{POST_SNAPBACK}>
Það er lítið eftir af fréttamiðlum sem virka, kannski er einhver fréttatengdur ljóðabálkur í kjallaranum á internetinu?
Ég er fastagestur á þrjá íslenska vefi; malefnin.com, kop.is og eyjan.is

Meira er það nú ekki...


#7 Spinni

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4323 posts

Posted 16 February 2012 - 16:22

QUOTE(Herkúles @ 16. February, 2012, 9:08) <{POST_SNAPBACK}>
ljótt að tala um blessaða lýtalæknana?


Sæll.

Já þetta eru ljótu kallarnir. Að mínu viti er það eftirlitið sem hefur brugðist og það stórlega. Hinsvegar skulum við bíða og sjá hvað kemur út úr rannsókninni sem gæti verið stómál ef ég má trúa mínum heimildum. Svo er nú það.

kv


Spinni.

#8 Óradís

    Talblaðra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPip
  • 24212 posts
  • Gender:Female
  • Interests:Næstum allt

Posted 16 February 2012 - 17:51

Enn er ég nú á þeirri skoðun að DV sé skásti fjölmiðillinn af sínu tagi. Menn þar skjóta stundum yfir markið en oftar en aðrir hitta þeir þó í mark.
01.12.2012.
Er á síðustu metrunum á þessum vef en er þrjóskari en andskotinn og kannski bjartsýnni en flest fífl.
Rísið upp málverjar og sýnið sjálfsvirðingu.

Kær kveðja
Óradís.




Allir í leik
Allir í leik
Nú er hún Óradís komin á kreik


http://www.facebook....tir?ref=tn_tnmn

#9 human

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 11699 posts
  • Gender:Female
  • Location:Hafnarfjörður
  • Interests:Still just Human.....

Posted 17 February 2012 - 02:31

QUOTE(Timoshenko @ 16. February, 2012, 8:23) <{POST_SNAPBACK}>
Er DV viðbjóður?

Hvað eru þeir að reyna að gera þessum blessaða lýtalækni? Eru ENGIN takmörk fyrir því hvað þeir ganga langt til að selja blöð og fá smelli á síðunni?

Hér með er ég hættur að heimsækja DV, punktur.

Nei. DV er ekki viðbjóður. Þitt val er að smella ekki á síðuna og heimsækja DV ... þú missir af ansi miklu að mínu mati. Það er augljóst að þú þekkir ekki til þess sem þessi "blessaði lýtalæknir" hefur gert og sagt. Mér vefst nánast tunga um tönn ... yfir allri þessari vorkunn. dry.gif

QUOTE(Óradís @ 16. February, 2012, 17:51) <{POST_SNAPBACK}>
Enn er ég nú á þeirri skoðun að DV sé skásti fjölmiðillinn af sínu tagi. Menn þar skjóta stundum yfir markið en oftar en aðrir hitta þeir þó í mark.


Sannarlega sammála ... wink.gif
Vinarkveðjur Human...

#10 Hrafnkell Daníels

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2638 posts
  • Gender:Male

Posted 17 February 2012 - 09:01

Af hverju er DV verra en td. Mogginn eða Fréttablaðið?
DV er þó að grufla í málum sem eru algert taboo hjá hinum miðlunum og koma með upplýsingar um mál sem við annars fengjum aldrei að vita af.
Af hverju er DV svona hatað? Jú þeir eiga það að vísu til að skjóta yfir markið eða slá undir beltisstað en þannig er það bara.

Kanski er best að skipta bara yfir á ritstjórnarpistlana hjá Mogganum til að fá fréttir. En er það einhver sannleikur sem maður finnur þar?





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users