Það er nokkuð augljóst við hvað ég á.
Ef menn lifa ekki samkvæmt sinni (meintu) trú, þá eru þeir einmitt EKKI trúaðir á þau lífsviðhorf og allt sem fylgir.
Ef svokallaður biskup lifði ekki samkvæmt sinni trú, nauðgaði eigin dóttur og notfærði sér veikleika þeirra sem komu til hans í beiðni um aðstoð. Leitaði á giftar konur og þær sem komu til hans vegna ýmissa persónulegra mála...
Þá er hann ekki kristinn maður heldur loddari.
Sama á við um hermann sem kallar sig kristinn mann en fer út og drepur aðra menn. Aðal boðorðið brotið.
Að segja að Jesú hafi dáið til að dekka þessar syndir þykir mér frekar þunnt og stór spurning að segja að það sé megininntak kristinnar trúar.
Hliðstæður loddaraskapur á sér stað þegar stjórnmálamenn sem segjast berjast fyrir rétti allra (flestra) þegna eru svo bara að þjóna þröngri valdagrúppu. Eða þegar stjórnarformenn strætókerfis fara aldrei í strætó.
Ágætis tilvitnun í Indíánann. Geysimargt gott í kúltúr Indíána.
En kristinn trú snýst einmitt um að fóðra góða úlfinn, ekki satt? Hún snýst um að fóðra úlf kærleika. Þeir sem fóðra eigingjarna úlfinn eru ekki kristnir, allavega lifa ekki skv. kristnum gildum.
Jújú, en það gildir um öll trúarbrögð, ekki satt? Var George Bush verðugur fulltrúi kristninnar? Voru terroristarnir sem flugu inn í WTC verðugir fulltrúar íslam?
Ef þú lifir ekki samkvæmt sakramentinu, ertu sjálfur að eyðileggja trúverðugleika þinn. Sama gildir um Samfylkingamenn, VG og Sjálfstæðismenn.
Mér finnst skjóta ansi skökku við, að kalla múslímska terrorista fyrir öfgatrúarfólk. Sama með kristna, sem styðja hryðjuverk Ísraelsstjórnar. Fólk kallar þá öfgakristna.
Ég bíð bara eftir því að Árni Páll Árnason og Össur Skarphéðinsson verði kallaðir öfga vinstrimenn...
Edited by jenar, 19 February 2012 - 16:24.
INGEN BIL ÄR LIK MIN BIL FÖR MIN BIL ÄR EN LIKBIL.
Það er heilabúið sem er í það heila búið.
Alþingi er kauphöll og gjaldmiðillinn hugsjónirnar.