Jump to content


Fasteignaverð hækkar í borginni


60 replies to this topic

#1 falcon1

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 11410 posts

Posted 17 February 2012 - 12:50

Ég er verulega hugsi yfir því að vísitala íbúðarhúsnæðis hefur hækkað um 9,2% sl. 12 mánuði. Hvað veldur því? Er verið að skrúfa vísitöluna upp með handafli eða er þetta eðlileg þróun? Ég bendi á það að kaupmáttur hefur lækkað um 7,2% frá árinu 2007 (heimild).
Kveðja,
Falcon1

icelandphotoblog.com

Íslenska þjóð - RÍS UPP!

Fyrrum voru fálkar fluttir lifandi út í stórum stíl, því erlendir þjóðhöfðingjar sóttust eftir að eignast íslenska fálka. Íslenski fálkinn er stærsta fálkategund sem til er og er eftirlæti fuglaskoðara. Af Íslandsvef

#2 Agent Smith

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2210 posts
  • Location:Norðan miðbaugs

Posted 17 February 2012 - 12:54

QUOTE (falcon1 @ 17. February, 2012, 12:50) <{POST_SNAPBACK}>
Ég er verulega hugsi yfir því að vísitala íbúðarhúsnæðis hefur hækkað um 9,2% sl. 12 mánuði. Hvað veldur því? Er verið að skrúfa vísitöluna upp með handafli eða er þetta eðlileg þróun? Ég bendi á það að kaupmáttur hefur lækkað um 7,2% frá árinu 2007 (heimild).

Hver er byggingakostnaður? Hefur hann kannski einhvað með þetta að gera? Svo er framboð af ódýrara/minna húsnæði ekki næganlegt sem hækkar aftur verðið. Kominn tími til að byggja aftur? Ég vona það!

Edited by Agent Smith, 17 February 2012 - 12:54.

I'd like to share a revelation during my time here. It came to me when I tried to classify your species. I realized that you're not actually mammals. Every mammal on this planet instinctively develops a natural equilibrium with the surrounding environment but you humans do not. You move to an area and you multiply and multiply until every natural resource is consumed. The only way you can survive is to spread to another area. There is another organism on this planet that follows the same pattern. Do you know what it is? A virus


“Progress is impossible without change, and those who cannot change their minds cannot change anything.”

- George Bernard Shaw

#3 Landinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2334 posts

Posted 17 February 2012 - 14:57

QUOTE(Agent Smith @ 17. February, 2012, 12:54) <{POST_SNAPBACK}>
Hver er byggingakostnaður? Hefur hann kannski einhvað með þetta að gera? Svo er framboð af ódýrara/minna húsnæði ekki næganlegt sem hækkar aftur verðið. Kominn tími til að byggja aftur? Ég vona það!

Byggingakostnaður er það hærri að framkvæmdastjóri Gunnar og Gylfi sagði nýlega að það sé ekki enn kominn tími til að byggja litlar íbúðir.

#4 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7466 posts

Posted 17 February 2012 - 15:30

Er ekki nóg af íbúðum til? Nema kannski litlar eins og agent segir. Eru þær kannski að seljast mest og hækka þar með fasteignaverð?

Hvernig er vísitalan reiknuð? Ef það er ekkert selt af stórum íbúðum, er það þá óbreytt eða ómarktækt? Hins vegar eru bara litlar íbúðir seldar og þær hækka, þar af leiðandi hækkar þá vísitalan?

Hvernig kemur það út í visitölu ef tvær íbúðir seljast, stóra íbúðin lækkar um 3%, en sú litla hækkar um 9%?
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#5 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3499 posts

Posted 17 February 2012 - 23:06


Það hefur EKKERT hækkað. Það stendur í stað, og það svo svakalega, að lítið sem ekkert selst af íbúðum, enda vantar mjög fáa húsnæði eins og er. Fáir þora að hreyfa sig og enn færri taka lán til að kaupa. Hér er nánast stöðnun í viðskiptum, hvers konar, og það af eðlilegum ástæðum. Og stöðnun er framundan að óbreyttu.

#6 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27445 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 17 February 2012 - 23:16

Því miður þá held ég að krónufjöllin sem til eru á innlánsreikningum séu að halda fasteignaverði upp enn um stund og í það minnsta fram að þeim tíma sem gjaldeyrishöftunum verður aflétt.

#7 Óradís

    Talblaðra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPip
  • 24238 posts
  • Gender:Female
  • Interests:Næstum allt

Posted 18 February 2012 - 00:02

Kannski vegna bjartsýni og aukins hagvaxtar. You tell me
01.12.2012.
Er á síðustu metrunum á þessum vef en er þrjóskari en andskotinn og kannski bjartsýnni en flest fífl.
Rísið upp málverjar og sýnið sjálfsvirðingu.

Kær kveðja
Óradís.




Allir í leik
Allir í leik
Nú er hún Óradís komin á kreik


http://www.facebook....tir?ref=tn_tnmn

#8 Agent Smith

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2210 posts
  • Location:Norðan miðbaugs

Posted 18 February 2012 - 01:51

QUOTE (feu @ 17. February, 2012, 23:16) <{POST_SNAPBACK}>
Því miður þá held ég að krónufjöllin sem til eru á innlánsreikningum séu að halda fasteignaverði upp enn um stund og í það minnsta fram að þeim tíma sem gjaldeyrishöftunum verður aflétt.

Ég vona að þú sért of svartsýn. En þú hefur svo sem haft rétt fyrir þér áður.
I'd like to share a revelation during my time here. It came to me when I tried to classify your species. I realized that you're not actually mammals. Every mammal on this planet instinctively develops a natural equilibrium with the surrounding environment but you humans do not. You move to an area and you multiply and multiply until every natural resource is consumed. The only way you can survive is to spread to another area. There is another organism on this planet that follows the same pattern. Do you know what it is? A virus


“Progress is impossible without change, and those who cannot change their minds cannot change anything.”

- George Bernard Shaw

#9 gestur

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 572 posts

Posted 19 February 2012 - 01:34

QUOTE(Landinn @ 17. February, 2012, 14:57) <{POST_SNAPBACK}>
Byggingakostnaður er það hærri að framkvæmdastjóri Gunnar og Gylfi sagði nýlega að það sé ekki enn kominn tími til að byggja litlar íbúðir.


Fasteignaverð í hlutfalli af byggingakostnaði er hærri í dag en í mörg ár á undan 2004.
Ætlar einhver að segja mér að Íslendingar hafi byggt að meðaltali 1400 íbúðir í heilan áratug fyrir árið 2004 ef byggingakostnaður var yfir fasteignaverði?

Þessi fullyrðing stenst bara ekki.

QUOTE(feu @ 17. February, 2012, 23:16) <{POST_SNAPBACK}>
Því miður þá held ég að krónufjöllin sem til eru á innlánsreikningum séu að halda fasteignaverði upp enn um stund og í það minnsta fram að þeim tíma sem gjaldeyrishöftunum verður aflétt.


Með öll þessi fjöll af krónum, hvar er þá veltan á fasteignamarkaði?
Við erum að tala um sölur sem jafnast á við fyrri hluta níunda áratug síðustu aldar. Þ.e. fyrir 30 árum síðan.

#10 drCronex

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 26405 posts
  • Gender:Male
  • Location:hér er ég.
  • Interests:Dagurinn og vegurinn. Heimreiðar og hestamennska. Svona má lengi telja!

Posted 23 February 2012 - 02:50

Ég sem hélt að bankarnir væru að halda uppi verðinu. Ég alltaf sami kjáninn.

Edited by drCronex, 23 February 2012 - 02:50.

Skilekkineitt: "Sjónhverfingar byggjast á því að dreifa athyglinni frá aðalatriðinu."
Ingimundur Kjarval: "Þegar þú setur lyftu í hús, sleppir þú ekki eftstu hæðina vegna þess að svo fáir eiga heima þar."
Apple: "...hvað sem útveggjunum líður en þeir eru hannaðir til að taka á sig lárétt álag en ekki lóðrétt."

Plasma Rarity: "Ég myndi skilgreina kjána sem einhvern sem skortir þekkingu á eitthvað málefni, en getur jafnvel verið greindur. Það er munur á kjána og vitleysing og hann er sá að vitleysingur getur haft þekkingu en skortir greind."





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users