25 replies to this topic
#21
Posted 19 February 2012 - 17:57
Össur og Össur? Ekki bara Össusr, heldur ALLIR sem komnir eru inn í skrúfuna hjá sérstökum saksóknara. Nú verður að þrýsta á hanna að gefa upp hverjir eru í þessari skrúfu sem verður losað um næst. - Fjölmiðlar; hvar eruð þið?? - Líka undir skrúfunni (eða eignaraðilar ykkar?).
#22
Posted 19 February 2012 - 23:43
QUOTE(Breyskur @ 17. February, 2012, 21:27) <{POST_SNAPBACK}>
Eiga allmenn lög um ábyrgð seljanda við?
Segjum að ég seldi húsið mitt á td. 192 milljónir vitanandi viss um að það stæði á holu sem er við það að opnast. Nokkrum dögum seinna verður jarðfall mikið og húsið hverfur í holuna og er nú ónýtt og verðlaust með öllu eins og mér var ljóst þegar ég seldi.
Kaupandi myndi væntanlega eiga rétt á að fá söluverðið endurgreitt að hluta eða heild.
Venjulega ætti þessi regla ekki við í hlutabréfaviðskiptum enda eru þau annars eðlis en fastir hlutir, en hvað með þegar seljanda er fullljóst að hann er að selja svikna vöru?

Það var einmitt það sem ég var að hugsa þ.e. hvort að kaupandi hefur möguleg skaðabótakröfu upp á Baldur eftir dóminn.
-------------------
Spilwerk Guitar Lessons
Spilwerk Guitar Lessons
#23
Posted 20 February 2012 - 01:28
QUOTE(siff @ 19. February, 2012, 23:43) <{POST_SNAPBACK}>
Það var einmitt það sem ég var að hugsa þ.e. hvort að kaupandi hefur möguleg skaðabótakröfu upp á Baldur eftir dóminn.
Alveg fráleitt. Viðskipti í Kauphöllinni virka ekki þannig. Kaupandi og seljandi eru ekki leiddir saman, þeir eiga ekki bein viðskipti sín á milli.
#24
Posted 20 February 2012 - 02:01
QUOTE(siff @ 19. February, 2012, 23:43) <{POST_SNAPBACK}>
Það var einmitt það sem ég var að hugsa þ.e. hvort að kaupandi hefur möguleg skaðabótakröfu upp á Baldur eftir dóminn.
Frekar spurning hvort kaupandi eigi kröfu á Kauphöllina og Kauphöllin þá kröfu á seljandann. Mér þykir þetta frekar langsótt.
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!
#25
Posted 20 February 2012 - 07:43
QUOTE(Ari góði @ 20. February, 2012, 2:28) <{POST_SNAPBACK}>
Alveg fráleitt. Viðskipti í Kauphöllinni virka ekki þannig. Kaupandi og seljandi eru ekki leiddir saman, þeir eiga ekki bein viðskipti sín á milli.
Venjulega eiga kaupendur og seljendur að sitja við sama borð hafandi báðir kynnt sér þær upplýsingar sem eru opinberar um það fyrirtæki sem þeir vilja höndla með.
Þarna eru hins vegar um allt annað dæmi að ræða. Annar aðilinn er með sviksamlegum hætti að nýta sér trúnaðar upplýsingar til að pranga köttinn í sekknum inn á óaðvitandi kaupanda.
Hvað segja reglur kauphallarinnar eða refsilög um þess háttar athæfi?
#26
Posted 20 February 2012 - 07:45
QUOTE(siff @ 17. February, 2012, 16:25) <{POST_SNAPBACK}>
!!!
Gaman væri að vita hver keypti bréfin.
Gaman væri að vita hver keypti bréfin.
99% líkur á að bankinn sjálfur væri kaupandi
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users