Jump to content


"Alvarlegur atburður átti sér stað"



23 replies to this topic

#11 zakedogg

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 274 posts

Posted 23 February 2012 - 08:28

QUOTE(tdi @ 22. February, 2012, 23:54) <{POST_SNAPBACK}>
Eftir að hafa horft á þetta sjálfumglaða skítseiði í kastljósi í kvöld, þá er ég ekki hissa að menn fari aðeins að banka í þetta Dróma pakk.


Tókuði eftir því hvernig hann skautaði lipurlega framhjá málefnum Frjálsa meðan hann rómaði lánasafn Spron?

#12 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7460 posts

Posted 23 February 2012 - 14:16

QUOTE(Ari góði @ 23. February, 2012, 0:55) <{POST_SNAPBACK}>
Það hvort var ýtt við eða gefið á kjaftinn eins og líka hefur komið fram, skiptir bara engu. Friðhelgi heimilisins er stjórnarskrárvarin.


Sömuleiðis eignarétturinn.
Ef fyrirtæki X segir að þú skuldir 1000kr en þú skuldar bara 500kr þá meta þeir þig þanni að þú eigir minna í eigninni. Þá er X að ganga á þinn eignarétt.

Er ekki eitthvað slíkt í gangi? Deila menn ekki um hver uppreiknuð skuld sé? Hafa menn nokkuð fengið einhverjar útskýringar? Sjálfsagt munt þú verjast og segja að menn þurfi að fara þá í mál við fyrirtækið. En ætli það væri ekki réttara að fyrirtækið færi í mál til að staðfesta grun sinn. Eru þeir ekki að reikna með öðrum forsendum en aðrir?

Ég er ekki að verja það að menn ógni eða berji. En menn geta sjálfum sér kennt að hluta til. Þá er ég að tala um fyrirtækið í heild sinni.
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#13 Ari góði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3317 posts
  • Gender:Male
  • Location:Wuzhou

Posted 23 February 2012 - 14:44

QUOTE(Gore Vidal @ 23. February, 2012, 1:03) <{POST_SNAPBACK}>
Það er nú óþarfi að kalla Dróma siðblindingja þó þeir séu sífelt að ráðast inn á heimili og rjúfa friðhelgi einkalífsins, heimilis og þakið undan mönnum vegna ólöglegra krafna.

Ertu viljandi að snúa út úr eða misskildir þú eitthvað ??
Ég var að tala um siðblindu málverja.
Og að auki þá misskilur þú illilega hugtakið um friðhelgi einkalífsins... eða er það kannski viljandi útúrsnúningur hjá þér ??
Þó svo að menn telji að Drómi hafi aðhafst eitthvað ólöglegt þá réttlætir það ekki lögbrot. Það er aldrei hægt að réttlæta brot með því að benda á að aðrir hafi brotið af sér.
Slík réttlæting er siðblinda af verstu gerð.

#14 appel

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9852 posts

Posted 23 February 2012 - 15:04

Eignarrétturinn er líka varinn skv. stjórnarskrá, friðhelgi einkalífs og heimilis einnig, þannig að ef einhver stelur af þér máttu þá ekki fara heim til hans og berja í spað?
Frelsi frá stjórnvöldum ER frelsi!
Frelsi, velmegun og friður!

#15 Landinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2334 posts

Posted 23 February 2012 - 15:11

Ég held að Ari ætti að anda með nefinu. Auðvitað er þetta mjög slæmt mál og óverjanlegt. Hins vegar er það lítilmannlegt að hæpa upp þetta atvik og láta líta út fyrir að starfsmanninum hafi verið misþyrmt og að hann væri núna upp á gjörgæslu. Það á greinilega að nota þetta mál til að stöðva þá gagnrýni sem þetta innheimtubatterí hefur verið að fá á sig.

#16 siff

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2991 posts

Posted 23 February 2012 - 16:32

QUOTE(Ari góði @ 23. February, 2012, 14:44) <{POST_SNAPBACK}>
Þó svo að menn telji að Drómi hafi aðhafst eitthvað ólöglegt þá réttlætir það ekki lögbrot. Það er aldrei hægt að réttlæta brot með því að benda á að aðrir hafi brotið af sér.
Slík réttlæting er siðblinda af verstu gerð.


Svona eins og BNA og Írak?
-------------------
Spilwerk Guitar Lessons

#17 Sæti Apinn

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 572 posts

Posted 25 February 2012 - 02:59

Ég kalla það andlegt ofbeldi hegðun fjármálafyrirtækja gangvart fólkinu í landinu, sé engan mun á því og líkamlegu ofbeldi á móti.
Þegar verið er að eiga við skíthæla þá er eina að viti að vera meiri skíthæll sjálfur.
Skál fyrir hangandi rottum og öðrum sendingum til skíthæla.

#18 hvumpinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1864 posts
  • Gender:Male

Posted 19 May 2012 - 22:10

Glæpafyrirtækið Drómi er enn að, orðið aðili að samráðinu um að tefja endurreikning lána eins og hægt er, og hefur nú á rúmu ári tvíhækkað seðilgjöld, strax eftir "endurreikninginn" 2011 hækkuðu seðilgjöld úr 160 kr í 850 kr. Og núna frá maí 2012 í 1.445 kr.
Snilldarsjálftaka. Og reikna líklega með að þurfa ekki að endurgreiða neitt af þessu þegar (og ef) þeir verða neyddir til að endurgreiða okurvextina.

#19 gestur

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 572 posts

Posted 20 May 2012 - 16:58

View Posthvumpinn, on 19 May 2012 - 22:10, said:

Glæpafyrirtækið Drómi er enn að, orðið aðili að samráðinu um að tefja endurreikning lána eins og hægt er, og hefur nú á rúmu ári tvíhækkað seðilgjöld, strax eftir "endurreikninginn" 2011 hækkuðu seðilgjöld úr 160 kr í 850 kr. Og núna frá maí 2012 í 1.445 kr.
Snilldarsjálftaka. Og reikna líklega með að þurfa ekki að endurgreiða neitt af þessu þegar (og ef) þeir verða neyddir til að endurgreiða okurvextina.

What?
Eru seðilgjöld 1.445 kr ?
Sá sem greiðir af láni mánaðarlega, greiðir 17.340 kr á ári í seðilgjöld?

#20 hvumpinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1864 posts
  • Gender:Male

Posted 20 May 2012 - 19:04

Jamm ég greiði mánaðarlega af láni frá Frjálsa Blóðbankanum sem Drómi rukkar. Síðasti greiðsluseðill segir 1.445 í seðilgjald. Ætla að hringja í þessa sjálftökumenn á morgun og ef þetta staðfestist fær Fjármálaeftirlitið sem kom Dróma á lappirnar nokkur símtöl.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users