Jump to content


Það verður að skipta um gjaldmiðil



104 replies to this topic

#81 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3499 posts

Posted 09 April 2012 - 15:33

Er alls ekki á MÓTI því að halda íslensku krónunni sé það bara mögulegt. Og auðvitað er það mögulegt (en bandaríkjadollar kæmi að sjálfsögðu á eftir krónunni verði henni ekki haldið). En til þess að halda krónunni gangandi VERÐUR að gera "ráðstafanir" til þess að hún haldi vatni og vindum. - Það verður fyrst og fremst að taka enn og aftur tvö núll aftan af henni og fá nýja seðla og mynt. Ennfremur að setja LÖG henni til styrktar. Já, lög sem gilda eiga á meðan hin breytta króna aðlagast þjóðarbúinu og landsmenn að nýju krónunni.
Það fyrsta sem lögin eiga að taka á er: a)lög um algjöra kaup- og verðlagsstöðvun til svo sem 3 - 5 ára. Verðstöðvun er í sjálfu sér auðveld í framkvæmd, því verð á innfluttum vörum hækka lítið eða ekki - og sumar "courant" vörur bara ekkert og launamál ættu að vera nokkuð auðveld í framkvæmd líka fáist samstaða allra aðila um að standa að þessum nýju lögum til að festa krónuna í sessi.
EN, verði ekki krónan "styrkt" með áðurnefndum aðgerðum er vonlaust að halda henni til streitu hér, pressan um nýjan ghaldmiðil er það þung orðin. Og þá er US dollarinn. En vonum á endurbætta krónu. Get alveg sammælst um það í sjálfu sér. En ef og ef og ef... ekki, þá er aðeins ein leið.

#82 jukn

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4814 posts
  • Gender:Male

Posted 09 April 2012 - 15:35

View PostBarði, on 09 April 2012 - 15:33, said:

Það verður fyrst og fremst að taka enn og aftur tvö núll aftan af henni og fá nýja seðla og mynt.

Sem breytir ekki nokkrum sköpuðum hlut

View PostBarði, on 09 April 2012 - 15:33, said:

Verðstöðvun er í sjálfu sér auðveld í framkvæmd, því verð á innfluttum vörum hækka lítið eða ekki
Bensín og svona ...

#83 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7475 posts

Posted 09 April 2012 - 16:15

Það hjálpar ekkert að taka tvö núll af. Leið Lilju er mun gáfulegri, en það er að tæma blöðruna.
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#84 púki

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3132 posts
  • Gender:Not Telling
  • Location:location, location...

Posted 09 April 2012 - 20:24

View PostKjosandi, on 09 April 2012 - 16:15, said:

Það hjálpar ekkert að taka tvö núll af. Leið Lilju er mun gáfulegri, en það er að tæma blöðruna.

Rétt, hin leiðin er að láta kratadraslið nauðga almenningi næsta áratuginn eða tvo ...

#85 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3499 posts

Posted 10 April 2012 - 00:32

Bensínhækkun, jukn, myndi að sjálfsögðu verða eitt af þeim fáu vörutegundum sem yrði að lúta sama lögmáli og aðrar vörur í verðstöðvun; ríki myndi taka á sig þann kaleik (minni álagning bensínskattsins, og svona...). Þetta yrði að halda í þann tíma sem lögin segja til um. - Íslendingar yrðu að hlýða lögunum einu sinni og hefðu gott af því. - Öðru vísi verður krónan ekki "uppfærð" í nothæfa mynt hér.

#86 Skaz

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4304 posts
  • Gender:Male

Posted 10 April 2012 - 16:53

View PostBarði, on 10 April 2012 - 00:32, said:

Bensínhækkun, jukn, myndi að sjálfsögðu verða eitt af þeim fáu vörutegundum sem yrði að lúta sama lögmáli og aðrar vörur í verðstöðvun; ríki myndi taka á sig þann kaleik (minni álagning bensínskattsins, og svona...). Þetta yrði að halda í þann tíma sem lögin segja til um. - Íslendingar yrðu að hlýða lögunum einu sinni og hefðu gott af því. - Öðru vísi verður krónan ekki "uppfærð" í nothæfa mynt hér.

Þú ert semsagt í rauninni að halda því fram að best sé að hverfa bara aftur til haftaáranna?
Þvílíkt rugl sem að þú ert að reyna að predika, hlutur sem að í raun gerði landinu meiri skaða en gagn til lengri tíma litið.

Know thyself; presume God not to
scan:
The proper study of mankind is man.
-Alexander Pope

#87 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3499 posts

Posted 10 April 2012 - 23:24

Já, "tímabundið", Skaz, ef þú vilt orða það svo. Við ERUM í klípu, Íslendingar; velferðarkerfið er sprungið, og framkvæmdir á vegum hins opinbera eru að mestu liðnar undir lok - nema ítrustu viðgerðir og viðhald á vegakerfinu, sjúkrahúsum, hjá löggæslunni og annað alveg "must". - Það er því ekki annað um að ræða en að nota aðhald og aftur haðhald hvað gjaldmiðilinn sneriir ef á annað borð á ahalda krónunni hér. - Upptaka dollara (Kanada eða Bandaaríkjanna); um þann gjaldmiðil gildir öðru máli sem ég hef lýst hér áður, og stend við það. Sé ekki að svonefndir fræðimenn úr háskólunum eða úr viðskiptalífinu hér hafi mikið öðruvísi skoðanir á málunum.

#88 Skaz

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4304 posts
  • Gender:Male

Posted 18 April 2012 - 23:36

View PostBarði, on 10 April 2012 - 23:24, said:

Já, "tímabundið", Skaz, ef þú vilt orða það svo. Við ERUM í klípu, Íslendingar; velferðarkerfið er sprungið, og framkvæmdir á vegum hins opinbera eru að mestu liðnar undir lok - nema ítrustu viðgerðir og viðhald á vegakerfinu, sjúkrahúsum, hjá löggæslunni og annað alveg "must". - Það er því ekki annað um að ræða en að nota aðhald og aftur haðhald hvað gjaldmiðilinn sneriir ef á annað borð á ahalda krónunni hér. - Upptaka dollara (Kanada eða Bandaaríkjanna); um þann gjaldmiðil gildir öðru máli sem ég hef lýst hér áður, og stend við það. Sé ekki að svonefndir fræðimenn úr háskólunum eða úr viðskiptalífinu hér hafi mikið öðruvísi skoðanir á málunum.

Allt sem að þú lýsir er hægt að gera án hafta. Það er bara leið sem að má ekki nefna, tvær reyndar.

Og það er ekkert sem að heitir tímabundin haftastefna. Síðast tók þetta áratugi og samfélagið staðnaði og var haldið uppi af erlendum aðstæðum (Kalda Stríðinu). Haftastefna bara virkar ekki í dag, til þess að láta hana virka þarftu að skera á svo mikið að það endar á því að þú ert kominn í mínus og dýpri skít.

Og nei, velferðarkerfið er langt í frá sprungið, það er full mikil sóun að eiga sér stað þar og afar mikil óskilvirkni, og það er gott að framkvæmdir á vegum hins opinbera hafi minnkað, það er kominn tími til þess að Íslendingar fari að gera eitthvað án þess að ríkið sé í sífellu að bakka það upp eða kosta hlutina, það á að heita til undantekninga í stað reglu.

Leiðirnar sem að þú ert að benda á eru gamaldags, og þó að ekki sé allt slæmt þó að það sé aldrað (ég á bíl frá 1973 Posted Image ) Þá eru þessar leiðir miðaðar við allt annað samfélaga og aðstæður, bæði innanlands og erlendis. Og þær eru bara alls ekki að fara að virka eins og þú heldur.

Know thyself; presume God not to
scan:
The proper study of mankind is man.
-Alexander Pope

#89 Spitfire

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4465 posts
  • Gender:Male
  • Location:Reykjavík

Posted 22 April 2012 - 00:18

Binda krónuna við USD og málið dautt. Er eitthvað á móti því ?

#90 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3499 posts

Posted 22 April 2012 - 18:07


Þetta er einmitt málið - og ekkert annað virðist vera í sjónmáli svo óyggjandi sé fyrir raunverulegan gjaldmiðil hér á Íslandi. US-dollar er sá eini sem við getum sætt okkur við án nokkurra galla eða vafasamra skuldbindinga. - Nema þá að hér verði skipt um krónu í nýkrónur svonefndar að undangengnum gjaldmiðilsskiptum (seðlar og mynt) og lögum um algjöra kaupgjalds- og verðstöðvun til nokkurra ára (t.d. 3 - 5 ára). Allt tal og vangaveltur um annað er tímasóun.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users