QUOTE(jukn @ 1. March, 2012, 11:45) <{POST_SNAPBACK}>
Vigdís Hauks kaus rétt. Það gerist ekki oft.
Ég hef einhvernvegin á tilfinningunni að Vigdís hafi ruglast í ríminu og kosið öðruvísi en hún ætlaði.
En núna er ljóst að við fáum að sjá dómstólinn taka málið fyrir og dæma um sýkn eða sekt, ég held líka að þetta sé öllum fyrir bestu. Það er erfitt að sjá hverju við værum bætt ef málinu hefði verið vísað frá. Þá hefðum við öll bara verið í enn óljósari og vitlausari stöðu. Það er gott að þetta er komið í farveg. Nú skulum við bara vona að framhaldið verði framkvæmt af alúð og vandvirkni og það verði kannski fyrsta skrefið í að fólk fari að tala saman á málefnalegan hátt en ekki einsog reiðir kjánar í tilfinningahita.








