Quote
Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, segir furðurlegt að Seðlabankinn hafi ákveðið að lána Kaupþingi nánast allan gjaldeyrisforða þjóðarinnar. Eðlilegt sé að draga einhvern til ábyrgðar, ábyrgðin liggi hjá Seðlabanka og þáverandi ríkisstjórn.
Strax þegar ég heyrði fréttir af þessu fyrst í miðju hruni 2008, að lána ætti Kaupþing þessa upphæð, þá gapti ég og skrifaði hér að þetta væri fáránlegt. Að lána banka háar fjárhæðir, nánast allan gjaldeyrisvaraforða þjóðarinnar, með veði í öðrum banka Í MIÐJU ALHEIMSBANKAHRUNI væri ekki bara óskynsamlegt heldur glæpsamlegt.
Þetta ákvað Seðlabanki íslands að gera þrátt fyrir vitneskju um það, í mörg ár, að íslenska bankakerfi væri gjaldþrota.
Svo segist Davíð Oddsson hafa bjargað þjóðinni?
Ég segi nú bara að landið er enn í byggð þrátt fyrir tilraunir Davíð Oddssonar að rústa því.









