Eniga meniga
#1
Posted 09 March 2012 - 07:55
#2
Posted 09 March 2012 - 08:02
Í mínu tilfelli snýst allt um fjölskylduna mína. Þrjú dásamleg börn og yndisleg kona. Og svo áhugamálin auðvitað og vinnan, í mínu tilfelli er áhugamál og vinna flettað saman.
En peningar spila stóra rullu ef maður á ekki nóg af þeim, eða ef maður gerir kröfu um lífstíl sem innkoman býður ekki upp á.
#3
Posted 09 March 2012 - 12:04
Timoshenko, on 09 March 2012 - 08:02, said:
Í mínu tilfelli snýst allt um fjölskylduna mína. Þrjú dásamleg börn og yndisleg kona. Og svo áhugamálin auðvitað og vinnan, í mínu tilfelli er áhugamál og vinna flettað saman.
En peningar spila stóra rullu ef maður á ekki nóg af þeim, eða ef maður gerir kröfu um lífstíl sem innkoman býður ekki upp á.
Er ekki töluverður kosnaður af þessu?
#5
Posted 09 March 2012 - 13:24
Þjóðfélag þar sem allt verður að vera fjárhagslega "sjálfbært"; þar sem við höfum samþykkt peninga sem hið æðsta gildi.
Það er gott að vera meðvitaður um önnur gildi eins og tímó sýnir, en það er erfitt að halda fast í þau prinsípp þegar á hólminn er komið.
Ef þið eruð ósammála þessari greiningu, svarið mér þá hvers vegna þeir sem hafa hæðsta status í þjóðfélagi okkar eru þeir sem þjónusta peninga (bankafólk og bisnissmenn), en ekki manneskjur? Og hvers vegna Þeim er umbunað með peningum en ekki mannlegum gildum? Hvers vegna sjúkrahúsin og skólastofnanir líða niðurskurð á meðan bankaforstjórar fá miljónir í laun á mánuði og svo mætti lengi telja.
Hugarfarið er svo sterkt að það er orðinn hluti af tungumálinu...
Money makes the world go round.
Money talks bullshit walks.
The golden rule: "He who has the gold makes the rules"
Samt er ennþá forn viska í málsháttum okkar, sem hefur sannast aftur og aftur á síðustu árum: "Margur verður af aurum api"
Hvað ætli það þýði á nútíma máli?
Edited by Frater DOV, 09 March 2012 - 13:25.
The most difficult subject can be explained to the most slow-witted man, if he has not formed any idea of them already. But the simplest thing cannot be made clear to the most intelligent man, if he is firmly persuaded that he knows already without a shadow of a doubt what is laid before him.
Leo Tolstoy
#6
Posted 09 March 2012 - 13:39
Frater DOV, on 09 March 2012 - 13:24, said:
Þjóðfélag þar sem allt verður að vera fjárhagslega "sjálfbært"; þar sem við höfum samþykkt peninga sem hið æðsta gildi.
Það er gott að vera meðvitaður um önnur gildi eins og tímó sýnir, en það er erfitt að halda fast í þau prinsípp þegar á hólminn er komið.
Ef þið eruð ósammála þessari greiningu, svarið mér þá hvers vegna þeir sem hafa hæðsta status í þjóðfélagi okkar eru þeir sem þjónusta peninga (bankafólk og bisnissmenn), en ekki manneskjur? Og hvers vegna Þeim er umbunað með peningum en ekki mannlegum gildum? Hvers vegna sjúkrahúsin og skólastofnanir líða niðurskurð á meðan bankaforstjórar fá miljónir í laun á mánuði og svo mætti lengi telja.
Hugarfarið er svo sterkt að það er orðinn hluti af tungumálinu...
Money makes the world go round.
Money talks bullshit walks.
The golden rule: "He who has the gold makes the rules"
Samt er ennþá forn viska í málsháttum okkar, sem hefur sannast aftur og aftur á síðustu árum: "Margur verður af aurum api"
Hvað ætli það þýði á nútíma máli?
Þeir sem halda að allt snúist um peninga eru búnir að missa sjónar á því sem skiptir máli.
Quote
(nei auðvitað ekki, en varð að benda á þetta)
Ég er ekki að sjá að þeir sem þjónusta með peninga hafi hærri status en til dæmis læknar, verkfræðingar eða fótboltamenn. Svo ég er ósammála þér. Nema þú skilgreinir "status" öðruvísi en ég.
Quote
Sjúkrahús og skólastofnanir eru stofnanir sem eru reknar að mestu leiti fyrir almannafé, og þegar ríkið nær ekki endum saman þá verður að draga úr þjónustu. Önnur lögmál gilda fyrir stofnanir eins og banka eða sjoppur. Þeir geta boðið laun sem eru í samræmi við hagnað bankans, en í flestum tilfellum þurfa þeir einnig að draga saman seglin ef þeir ná ekki endum saman.
#7
Posted 09 March 2012 - 21:48
McFitt, on 09 March 2012 - 07:55, said:
Góð spurning ef hún er krufin.
Fyrst er að skoða fánann okkar:
[Use Full Editor]
ISL_Fani1_copy.jpg 67.82K
0 downloads[Svei mér ef þetta ætlar bara ekki að takast.]
Þetta er fáni Bananalýðveldisins Íslands.
Hér gildir það að eiga pening og viðkomandi verður einnig að teymast vel nema hann eigi því meiri pening. Þeir sem ekki teymast með hjörðinni komast skiljanlega ekkert áfram, sama hvað þeir eru frábærir að öðru leiti.
Þú verður sem sagt að vera tilbúin til að afneita öllu þínu sjálfi og samþykkja allt sem aðrir segja. Fer svolítið eftir hvar þeir eru í goggunarröðinni. Þú mátt sem sagt aldrei andmæla þínum yfirmanni þó hann sé kexruglaður. Þú verður að spila með.
Ef þú gengur í stjórnmálaflokk þá ertu að selja sálu þína til eilífðar. Mátt ekki hugsa lengur og alls ekki tjá þig opinberlega nema það sé flokknum þóknanlegt.
Þetta er í raun svo einfalt að allir ættu að geta skilið þetta.
Edited by Tembe, on 2012 - some time at AM or PM.
Edited by Tembe, 10 March 2012 - 00:14.
Kveðja,
Tembe
----------------
Áhugaverðar síður, ekki ætlaðar börnum eða viðkvæmum.
http://www.litlaisland.net/
http://tidarandinn.is/
http://www.hvitbok.vg/
#8
Posted 13 March 2012 - 12:25
Timoshenko, on 09 March 2012 - 13:39, said:
Þeir sem halda að allt snúist um peninga eru búnir að missa sjónar á því sem skiptir máli.
Já alveg rétt að peningar eru verkfæri, en það verkfæri er orðið að tilbeiðsluefni; þetta verkfæri tekur allt of mikla athygli. Ég er ekki að gagnrýna peninga hérna, þó það sé einnig hægt, heldur afstöðu okkar til peninga.
Afstaðan er græðgi, ofurathygli á það auðkenni sem við notum til að tákna verðmæti; að sækjast eftir peningum er orðið takmark í sjálfu sér, þó peningar eru ekkert einir sér, heldur einungis tákn verðmætis.
Timoshenko, on 09 March 2012 - 13:39, said:
(nei auðvitað ekki, en varð að benda á þetta)
Ég er ekki að sjá að þeir sem þjónusta með peninga hafi hærri status en til dæmis læknar, verkfræðingar eða fótboltamenn. Svo ég er ósammála þér. Nema þú skilgreinir "status" öðruvísi en ég.
Þú ert venju samkvæmt meistari í að misskilja.
Ég er að segja að bankafólk og bissnissmenn þjónusta peninga, en ekki manneskjur.
Sérðu ekki að hálaunastörf eru í peningageiranum frekar en í umönnunargeiranum?
Ég hélt að það væri almennt viðurkennt.
Timoshenko, on 09 March 2012 - 13:39, said:
Sjúkrahús og skólastofnanir eru stofnanir sem eru reknar að mestu leiti fyrir almannafé, og þegar ríkið nær ekki endum saman þá verður að draga úr þjónustu. Önnur lögmál gilda fyrir stofnanir eins og banka eða sjoppur. Þeir geta boðið laun sem eru í samræmi við hagnað bankans, en í flestum tilfellum þurfa þeir einnig að draga saman seglin ef þeir ná ekki endum saman.
Það er ómögulegt að verja að peningar hafi hærri status en fólk og ummönnun fólks; það er erfitt að verja lélegann málstað.
Athugaðum að það var skorið niður í heilbrigðisgeiranum löngu fyrir kreppu. Annars er það afstaðan til peninga sem ég er að gagnrýna.
Nákvæmnlega þessi “lögmál” sem þú nefnir er hvað ég er að gagnrýna, það er viðhorfið að sjálfbærni sé mikilvægari en manneskjugildi. Það er miklilvægara að ríkir einkavinir græði en að við höfum velferðarkerfi á Íslandi (sem við höfum ekki).
Viðhorfið er að einhver “einkavinur” verði að græða peninga á bönkunum, á náttúrunni, á öllu sem hægt er að græða peninga á. Þetta viðhorf er orðið svo sterkt að allt annað hefur minna vægi, þess vegna er svona mikil spilling í þessu landi, rotið siðferði hvar sem þú lítur.
En þetta er bara mín skoðun
The most difficult subject can be explained to the most slow-witted man, if he has not formed any idea of them already. But the simplest thing cannot be made clear to the most intelligent man, if he is firmly persuaded that he knows already without a shadow of a doubt what is laid before him.
Leo Tolstoy
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users








