5bi, on 03 April 2012 - 21:56, said:
Ég hef dálítið verið að þjónusta þessa síma og iphone kemur jú ágætlega út , menn eru víst voðalega ánægðir með að það bara virkar allt í honum. Enn mér finnst reynar sá sími kannski vera aðeins of sérhæfður þú þarft dálítið að skuldbinda þig apple . þ.e.a.s þarft að innstalla itunes búa til itunes reikning og svo fleirri sérhæfðar leiðir,
Þarf ekki líka að búa til Google Play reikning á Android, þ.e. ef maður er ekki með Gmail? Svo eru iOS orðið "PC Free" með iOS 5, þ.e. að ekki er nauðsynlegt að tengja símann við tölvu frekar en maður vill. Hægt er að taka backup af símanum á iCloud o.s.frv.
Annars er það röng nálgun að mínu mati að bera þessa síma alla saman út frá tæknilegum eiginleikum. Aðalmunurinn liggur í stýrikerfunum sjálfum. Maður er því að vega og meta hvort maður sé að fara í iOS, Android eða WP7.
Margir telja iPhone (og þ.a.l. iOS) vera einfaldari í notkun en Android. Einnig er hægt að líta á málið frá hinni hlið peningsins og segja að Android bjóði upp á miklu fleiri möguleika, þ.e. að notandinn sem slíkur hefur meiri stjórn á tækinu sínu. Þó er hægt að jailbreaka iPhone, ef menn vilja fá fullkomna stjórn á símanum sínum.
Þá hefur verið bent á að ef maður kaupir iPhone og Android síma á sambærilegu verði í dag, að þá getur iPhone síminn keyrt fleiri uppfærslur, þ.e. er studdur í lengri tíma heldur en Android tæki. Ætlaði að reyna að linka á grein sem nefnir þetta, en hún fór út í það að Android tæki sem voru keypt t.d. fyrir ári síðan gátu ekki keyrt nýjasta Android kerfið.
Eitt lykilatriði sem Android hefur þó fram yfir iOS er innbyggt GPS navigation. iOS býður einungis upp á Google Maps, sem hægt er að nota sem vegvísi, en ekki þannig að það segi manni hvenær maður eigi að beygja og slíkt ef maður er með augun á veginum.