Góðhjartaður knattspyrnukappi
Gefur treyju til styrktar Emmu LindRitstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:59 › 18. MARS 2012

Gylfi gefur af sér innan vallar sem utan.
Knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni, hefur heldur betur slegið í gegn að undanförnu. Gylfi hefur leikið við hvern sinn fingur og ljóst að stórliðin munu berjast um þjónustu hans í sumar.
Gylfi gefur þó ekki bara af sér innan vallar því hann gefur líka af sér utan vallar. Fotbolti.net greinir frá því að Gylfi hafi ákveðið að gefa áritaða treyju á uppboð til styrktar Emmu Lind Aðalsteinsdóttur, þriggja ára, sem greindist með krabbamein á dögunum. Allur ágóðinn af uppboðinu mun renna til hennar.
Hægt er að bjóða í treyjuna með því að senda tölvupóst á fotbolti@fotbolti.net. Uppboðið stendur yfir til klukkan 23:59 þriðjudaginn 20. mars næstkomandi.
Hæsta boð í augnablikinu er 50 þúsund krónur.
Emma Lind var greind með illkynja krabbamein í byrjun mars. Fyrir þá sem vilja styrkja Emmu Lind og fjölskyldu hennar þá er reikningsnúmerið: 515-14-407100 Kt. 130908-2330.
Kjosandi, on 19 March 2012 - 00:24, said:
Prófa, lýsi upp frétt. Hún kemur rétt upp með mynd í ritham, spurning hvort það skili sér.
...
...
Þetta er flott, öll fréttin kemur ásamt mynd. En er möguleiki að afrita eins og fréttin er á dv.is? Myndin af stúlkunni er til hliðar á heimasíðu dv.is.
Edited by Kjosandi, 19 March 2012 - 00:28.









