Jump to content


Lśpķnan

Sś ešal jurt.

48 replies to this topic

#1 Orville

    Oršugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7554 posts

Posted 10 March 2012 - 00:05

Tími til kominn að ræða þessa elsku.

Byrja á að benda á grein:

„Það var fyrir um fjörutíu árum sem girtur var af lítill skiki í landi Eystri-Sólheima. Þetta gerði Þorsteinn Jónsson sem þar var þá bóndi. Skikinn var á uppblásnum jökulmel og algjörlega gróðurlaus. Þarna setti Þorsteinn niður lúpínu, sem fljótlega þakti blettinn alveg. Þegar girðingin féll niður, að um tuttugu árum liðnum, þá kom beit á þetta. Nú er þetta bara graslendi og ekki eina einustu lúpínu að sjá. Landið í kring er enn þá örfoka, réttnefnt Ísland í tötrum."

http://www.visir.is/...e/2010748536150

#2 Tembe

    Oršugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7868 posts
  • Gender:Male

Posted 10 March 2012 - 00:40

View PostOrville, on 10 March 2012 - 00:05, said:

Tími til kominn að ræða þessa elsku.

Byrja á að benda á grein:

„Það var fyrir um fjörutíu árum sem girtur var af lítill skiki í landi Eystri-Sólheima. Þetta gerði Þorsteinn Jónsson sem þar var þá bóndi. Skikinn var á uppblásnum jökulmel og algjörlega gróðurlaus. Þarna setti Þorsteinn niður lúpínu, sem fljótlega þakti blettinn alveg. Þegar girðingin féll niður, að um tuttugu árum liðnum, þá kom beit á þetta. Nú er þetta bara graslendi og ekki eina einustu lúpínu að sjá. Landið í kring er enn þá örfoka, réttnefnt Ísland í tötrum."

http://www.visir.is/...e/2010748536150
Tembe þekkir sögu Lúpínunnar hér á Fróni og tekur heilshugar undir með þeim sem vilja hennar veg sem mestann.
Baráttan gegn henni fer að minna á CO2 umræðuna og veðurfarsbreytingar. Sumir loka alveg augunum fyrir þeirri staðreynd að að veður hefur alltaf sveiflast.
Nálgast þetta stundum tal manna um trúarbrögð.
Það er reyndar önnur Ella að trúarbrögðum frátöldum.
Þeir sem hafa upplifað það að sjá hvað Lúpínan gerir í auðn áður en hún svo dregur sig svo til baka skilja mátt hennar.

Legg ég svo til að Arfi verði endurskírður og heiti hér eftir Svandís.
Kvešja,
Tembe

----------------
Įhugaveršar sķšur, ekki ętlašar börnum eša viškvęmum.
http://www.litlaisland.net/
http://tidarandinn.is/
http://www.hvitbok.vg/



#3 cesil

    Žęsiblašra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPipPipPip
  • 35060 posts

Posted 10 March 2012 - 02:59

Lúpína á vissulega rétt á sér á örfokasvæðum en ekki inn í grónu landi þar sem lyng, og annar íslenskur fjallagróður ríkir. Hún er fljót að kaffæra allt slíkt. Hún er hræðilegur skaðvaldur á slíkum svæðum, og hefur verið algjörlega ofnýtt eins og til dæmis í Tunguskógi hér fyrir vestan þar sem hún er að útrýma lyngi og öðrum gróðri.

Cesil uppeldirrįšherra Mįlverja. Viršist alltaf ķ góšu skapi, en getur oršiš skašręšisgripur, ef hśn reišist.Skipuš talsmašur Mįlefnanna af Falkoni fyrsta.
Verndari villihestafélgsins og Nśllarafélagsins.
Ef žś veršur einhvern tķma strand
og įttavillt ķ fįri stormsins svarta.
Žį mįttu žinni fleytu leggja į land
viš lygna vķk ķ mķnu bljśga hjarta.
Grandvar 15.07.05.

#4 Tembe

    Oršugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7868 posts
  • Gender:Male

Posted 10 March 2012 - 04:27

View Postcesil, on 10 March 2012 - 02:59, said:

Lúpína á vissulega rétt á sér á örfokasvæðum en ekki inn í grónu landi þar sem lyng, og annar íslenskur fjallagróður ríkir. Hún er fljót að kaffæra allt slíkt. Hún er hræðilegur skaðvaldur á slíkum svæðum, og hefur verið algjörlega ofnýtt eins og til dæmis í Tunguskógi hér fyrir vestan þar sem hún er að útrýma lyngi og öðrum gróðri.
Lyng er ekki góður gróður. Fléttast fallega yfir steina og klappir en skilur ekkert eftir nema fyrir Krumma. Lúpínan græðir landið en það eru ekki allir sem skilja það.
Síðan hörfar Lúpínan þegar jarðvegur er orðin of þéttur fyrir hana.
Eg þið trúið mér ekki þá skulið þið kaupa 200 g. fræpoka og reyna svo að sá henni í nágreni ykkar, ef þið búið í þéttbýli, annars úti á túni einhverstaðar.
Svo getið þið prófað hana þar sem suðfjárbeit er.
Kvešja,
Tembe

----------------
Įhugaveršar sķšur, ekki ętlašar börnum eša viškvęmum.
http://www.litlaisland.net/
http://tidarandinn.is/
http://www.hvitbok.vg/



#5 Herkśles

    Talsmašur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12758 posts

Posted 10 March 2012 - 08:46

Lúpínan er belgjurt
er ekki búið að taka í notkun fyrir alvöru aðra belgjurt sem fer aðeins hægar yfir og er aðeins minna áberandi í landinu?
Gæti það verið önnur af sömu ætt, önnur lúpína? Eru þá ekki allir sáttir?

#6 cesil

    Žęsiblašra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPipPipPip
  • 35060 posts

Posted 10 March 2012 - 11:54

Lyng er gróður, og það fallegur gróður, ásamt melasól, jöklasóley, lambagrasi, og þúsunum annara smájurta sem setja svip sinn á landið okkar. Allt þetta veður lúpínan yfir án fyrirstöðu. Það er til dæmis lítið eftir af berjalyngi í Tunguskógi, þar sem lúpínan hefur vaðið yfir allan gróður.

Cesil uppeldirrįšherra Mįlverja. Viršist alltaf ķ góšu skapi, en getur oršiš skašręšisgripur, ef hśn reišist.Skipuš talsmašur Mįlefnanna af Falkoni fyrsta.
Verndari villihestafélgsins og Nśllarafélagsins.
Ef žś veršur einhvern tķma strand
og įttavillt ķ fįri stormsins svarta.
Žį mįttu žinni fleytu leggja į land
viš lygna vķk ķ mķnu bljśga hjarta.
Grandvar 15.07.05.

#7 Óradķs

    Talblašra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPip
  • 24212 posts
  • Gender:Female
  • Interests:Nęstum allt

Posted 10 March 2012 - 12:08

Ég er ekki sérfræðingur en eftir því sem ég hef lesið og séð til lúpínunnar (sem mér finnst NB mjög falleg) álykta ég á svipaðan hátt og Cesil. Lúpínan er frábær þar sem hún á við, til að byggja upp jarðveg en ég vil fyrir alla muni halda henni frá þeim fjölbreytta gróðri sem vex á íslenskum heiðum og koma í veg fyrir að hún leggi þá flóru í rúst. Er það ekki bara með lúpínuna einsog annað að það þarf að nýta hana á þann hátt sem þörf er á en gæta vel að því að hún valdi ekki skaða, sem hún óhjákvæmilega gerir ef ekki er gætt að.
01.12.2012.
Er á síðustu metrunum á þessum vef en er þrjóskari en andskotinn og kannski bjartsýnni en flest fífl.
Rísið upp málverjar og sýnið sjálfsvirðingu.

Kær kveðja
Óradís.




Allir í leik
Allir í leik
Nú er hún Óradís komin á kreik


http://www.facebook....tir?ref=tn_tnmn

#8 Orville

    Oršugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7554 posts

Posted 10 March 2012 - 22:27

Landið okkar er ákaflega illa farið eftir alda langa rányrkju. Mikil verðmæti tapast í jarðvegs- og gróðureyðingu.

Besta leiðin til að endurheimta eitthvað af fyrri frjósemi er lúpínan. Hún vinnur nitur úr lofti og losar um fastbundinn fosfór í jarðvegi en þessi tvö efni eru þau sem helst vanta í íslenskan jarðveg. Undra planta sem ætti að nota miklu meira hér á landi.

View PostHerkúles, on 10 March 2012 - 08:46, said:

Lúpínan er belgjurt
er ekki búið að taka í notkun fyrir alvöru aðra belgjurt sem fer aðeins hægar yfir og er aðeins minna áberandi í landinu?
Gæti það verið önnur af sömu ætt, önnur lúpína? Eru þá ekki allir sáttir?
Jú, það eru til margar ágætar belgjurtir en lúpínan er þeirra öflugust. Aðrar ágætar tegundir eru samt til. Smárann þekkja allir, gullkollur er að verða nokkuð víða um land, blámjalta er ágæt tegund sem hingað var flutt. Giljaflækja er íslensk belgjur og eins umfeðmingur, baunagras og fuglaertur. Allt er þetta ágæt viðbót við lúpínuna.

Í blásna mela virðist samt lúpínan vera lang besta leiðin til að binda jarðveg og auka frjósemi.

#9 cesil

    Žęsiblašra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPipPipPip
  • 35060 posts

Posted 10 March 2012 - 23:48

Öflugust og mesti skaðvaldurinn. Umfeðmingur er góður til að þekja og ekki eins frekur og Lúpínan. Fyrir utan að hann er miklu fallegri en lúpínan, lengur. Hún er alveg ferlega ljót síðsumars þegar hún er búin að sá sér og er litlaus og eins og eyðimörk.

Cesil uppeldirrįšherra Mįlverja. Viršist alltaf ķ góšu skapi, en getur oršiš skašręšisgripur, ef hśn reišist.Skipuš talsmašur Mįlefnanna af Falkoni fyrsta.
Verndari villihestafélgsins og Nśllarafélagsins.
Ef žś veršur einhvern tķma strand
og įttavillt ķ fįri stormsins svarta.
Žį mįttu žinni fleytu leggja į land
viš lygna vķk ķ mķnu bljśga hjarta.
Grandvar 15.07.05.

#10 Tembe

    Oršugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7868 posts
  • Gender:Male

Posted 11 March 2012 - 12:46

Hvað heitir hún nú aftur þessi planta sem nú kaffærir allt. Lúpínuna líka. Algeng í Öskjuhlíðinni t.d. Ég er ekki frá því að hún sé skaðvaldur.
Kvešja,
Tembe

----------------
Įhugaveršar sķšur, ekki ętlašar börnum eša viškvęmum.
http://www.litlaisland.net/
http://tidarandinn.is/
http://www.hvitbok.vg/







1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users