Posted 14 March 2012 - 23:57
Já Feu,
Þetta er nokkuð nærri lagi hjá þér. Það er kannski óhætt að segja að framdraumar Ingibjargar Sólrúnar hafi þvælst fyrir henni. Hún sem reyndi að gera þetta allt svo "smooth", en síðan hefur þetta elt hana, t.d. þegar hún hætti sem borgarstjóri, þingmannasætið sem hún missti, og síðan þetta 1,5 hálfa ár í stjórn, og síðan þessi veikindi. Þetta er með ólíkindum. Ekkert fúll út í hana, bara soldið seinheppinn ferill hjá henni.
Þetta virðist vera haldbær greining. Samt einkennilegt, hvað það fer lítil umræða um nákvæmlega þennan hlut. Reyndar skil ég ekki hvað fjölmiðlar fara oft eins og köttur í kringum heitann grautinn. Síðan þáttur eins og Silfur Egils. Með fullri virðingu fyrir Agli og sjónvarpinu, þá er sá þáttur hreinlega orðinn brandari.
Hvernig væri að hafa alvöru stjórnmálaþátt, kannski aðra hverju viku, eða einu sinni í mánuði, þar sem yfirvegaðri stjórnandi,en Egill, sér um málin. Þegar hann er með menningarþátt, og síðan fréttasíðu, og álitsgjafasíðu, og síðan þennan stjórnmálaþátt. Þetta er náttúrulega ekkert minna en fáránlegt. Tek það fram að ég get alveg haft "gaman" af honum, en þetta er orðið hrikalega hæpin sjónvarpsmennska hjá honum. Síðan þessir taktar hjá honum, þegar hann skríkir og missir sig. Hann er einfaldlega orðinn allt of þreyttur.
Kannski allt þetta sé bara partur af að búa í svona litlu landi, engin þorir að segja neitt, og hinir sem hafa hátt, missa sig svo gjörsamlega að engin tekur mark á þeim.
Samt merkilegt hver "örlög" Jón Baldvins og Jóhönnu í pólitík eru. Hún forsætisráðherra í þessi ástandi, eftir alla hennar forsögu í pólitík, og síðan Jón Baldvin hrakinn og niðurlægður út í horni.
Djöfull er þetta blóðugt landslag.
Jafnvel orðið pólitík er of fallegt til að lýsa ástandinu í þessum málum hérna á Íslandi. Hreinlega gjörsamlega gelt ástand.