Einn kennarinn er þekktur fyrir að kunna ekki að notast við gæsalappir, ekkert gert. Annar er tengdur hugsanlegum lögbrotumog nú er að bætast við fjárdráttur.
Það verður þó að viðurkennast að háskólinn er hér að bregðast rétt við.
Fjárdrátturinn í HÍ nemur 8 til 9 milljónum - málinu vísað til lögreglu
Talið er að fjárdráttur háttsetts starfsmanns Háskóla Íslands sem vísað hefur verið frá störfum nemi um átta til níu milljónum á fimm ára tímabili. Málinu hefur verið vísað til lögreglu. Þetta staðfestir Kristín Ingólfsdóttir rektor háskólans í samtali við fréttastofu.
Kristín segir að þegar málið hafi komið upp við innri endurskoðun hafi verið ákveðið að vísa málinu til Ríkisendurskoðunar. Embættið skilaði rektor skýrslu um málið í morgun og varð niðurstaðan sú að vísa málinu til lögreglu.
Edited by Kjosandi, 13 March 2012 - 23:51.









