Quote
Greining Íslandsbanka spáir að íbúðaverð muni hækka um 16% yfir þetta og næsta ár, það er 8% hækkun hvort ár. Að gefinni verðbólguspá mun raunverðshækkun á íbúðarverðir yfir þessi tvö ár vera 8,5%. Á síðasta ári jókst velta á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu um 60% frá árinu á undan.
Gangi þessi spá eftir verður raunverð íbúða þó langt undir því sem það fór hæst í aðdraganda hrunsins og væri raunar 25% lægra en það var í lok ársins 2007. Sú lækkun sem varð á nafnverði íbúðarhúsnæðis frá hruni mun hinsvegar hafa gengið að fullu til baka um mitt þetta ár ef svo fer sem horfir.
Vextir eru nú sögulega lágir og framboð íbúðalána hefur aukist verulega. Með tilkomu óverðtryggðra húsnæðislána hefur valkostunum einnig fjölgað. Þá hefur aðgengi að lánum aukist en veðhlutfall til íbúðarkaupa er nú komið upp í allt að 85% af markaðsverði íbúða. Þetta, ásamt bata í hagkerfinu hefur átt sinn þátt í hækkun íbúðaverðs að mati greiningar.
Velkomin til 2007, aftur...









