#1
Posted 17 March 2012 - 13:39
En kæru snillingar, hvað haldið þið að ÍLS eigi margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu?
#2
Posted 17 March 2012 - 14:30
“Progress is impossible without change, and those who cannot change their minds cannot change anything.”
- George Bernard Shaw
#3
Posted 17 March 2012 - 17:01
Landinn, on 17 March 2012 - 13:39, said:
En kæru snillingar, hvað haldið þið að ÍLS eigi margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu?
Af hverju spyrðu einungis um ÍLS? Af hverju að nefna ekki bankana, þrotabúin, fasteignafélög, lífeyrissjóði osfrv?
Af hverju ekki að skoða hvað ÍLS á, á Suðvesturhorninu?
#4
Posted 17 March 2012 - 17:07
#5
Posted 17 March 2012 - 17:23
7kr, on 17 March 2012 - 17:01, said:
Af hverju ekki að skoða hvað ÍLS á, á Suðvesturhorninu?
Socrates, on 17 March 2012 - 17:07, said:
#6
Posted 17 March 2012 - 18:53
Landinn, on 17 March 2012 - 17:23, said:
Íbúðir sem eru í útleigu eru ekki hluti af fasteignamarkaðnum. Sama gildir um ókláraðar íbúðir.
Það liggur líka fyrir hvað ÍLS af íbúðum á í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Það liggur líka fyrir hvað bankarnir eiga af íbúðum og þeir voru mjög svo tregir til að lána utan höfuðborgarsvæðisins.
Heitir aðferðin ekki cherry-picking? Ég held að samanburður á "alls kyns tölur" um landið allt og svo hvað einn aðila á af íbúðum á ákveðnu svæði sé ekki samanburðarhæfar tölur. Það verður þó fróðlegt að sjá hvaða niðurstöðu þú ætlar að gefa þér þar.
Íbúðir sem eru í útleigu eru hluti af fasteignarmarkaðnum því þær draga úr eftirspurn. Leigjendur eru ekki kaupendur. Það er því heildarfjöldi íbúða sem skiptir máli.
Ókláraðar íbúðir skipta vissulega máli, því þar hangir snjóhengjan yfir. Lítið þarf til þess að klára þær. Þessum íbúðum er ekki hent á haugana. Kaupandi selur yfirleitt aðra íbúð í staðinn.
En ég er með aðra spurningu:
Veistu hvað margar íbúðir voru fullkláraðar árið 2010? (það er ekki búið að birta tölur um 2011).
En 2009?
Veistu hvernig sá fjöldi er í samanburði við fjölgun fólks á húseignaaldri?
Af hverju ætli Íslandsbanki hafi ekki framkvæmt þann samanburð?
Edited by gestur, 17 March 2012 - 18:59.
#7
Posted 17 March 2012 - 21:26
#8
Posted 18 March 2012 - 09:42
Socrates, on 17 March 2012 - 21:26, said:
Gestur sakar mig um cherry picking. Það er ekki svo. Ég hef ekki áhuga á eign fjármálastofnana á Egilsstöðum eða í Reykjanesbæ. Það er mjög athyglisvert að vita hvað er mikið af auðum fullkláruðum eignum á höfuðborgarsvæðinu sem eru í eigu fjármálastofnana.
Rétt svar við þessari spurningu; hvað ÍLS á margar auðar eignir á höfuðborgarsvæðinu er 93 stk. Sjá http://www.althingi....140/s/0940.html
#9
Posted 18 March 2012 - 18:19
Landinn, on 18 March 2012 - 09:42, said:
Ef eignin þín er ekki hluti af fasteignamarkaðnu að þá ert þú sjálfur ekki heldur hluti af eftirspurninni. Það fækkar því snarlega í þeim hópi sem teljast mögulegir kaupendur ef skilgreiningin skal vera eins og þú leggur upp með. Það er þá rangt að tala um fjölda landsmanna sem mögulega kaupendur fasteigna. Ef svo skal vera þá væri réttara að horfa á svona myndir til að meta mögulega eftirspurn á þessu heildar offramboði á markaðnum:
stórkaup.JPG 57.81K
2 downloadsRauða línan sýnir þá sem ætla sér að leggja í fasteignakaup á næstunni, eins og sést að þá hlutfall þeirra í sögulegu lágmarki.
Landinn, on 18 March 2012 - 09:42, said:
Rétt svar við þessari spurningu; hvað ÍLS á margar auðar eignir á höfuðborgarsvæðinu er 93 stk. Sjá http://www.althingi....140/s/0940.html
Eins og ég sagði að þá eru fleiri en Íbúðalánsjóður á höfuðborgarsvæðinu.
Og já það er mjög áhugavert að vita hvað aðrir en ÍLS eiga af eignum þarna. Svo má reyndar ekki gleyma eignum í eigu einstaklinga sem búa annars staðar. Það eru þeir sem geta ekki klárað að byggja eignir sínar eða bíða þess að missa eignina á nauðungarsölu. Það tekur nefnilega tíma fyrir fjármálakerfið að klára uppgjörið við hrunið.
Smelltu á myndina:
Nauðungarsala.JPG 53.73K
3 downloadsLínuritið sýnir Nauðungarsölur í Reykjavík. Ferillinn er ennþá upp á við, nú þremur og hálfu ári eftir hrun.
Það er áhugavert að sjá að Íbúðalánasjóður á 340 eignir samtals á höfuðborgarsvæðinu og 529 á Suðurnesjum skv. linknum þínum (Því þótt að þú kjósir ekki að búa utan svæðisins að þá hefur þetta áhrif á stóran hluta af íslendingum). Það gerir 869 eignir. Bara þessi eina stofnun á svona margar eignir á þessu svæði.
Það er um það bil ársþörf fyrir nýjar eignir á þessu svæði. Það er töluvert þegar haft er í huga að þessi eina stofnun á ekki einu sinni meirihluta eigna í eigu þrotabúa og fjármálafyrirtækja. Bættu hinum fjármálastofnunum við og fjöldinn er enn meiri. Bættu óafgreiddu nauðungarsölunum við og snjóhengjan er orðin ansi yfirþyrmandi.
En ég er með aðra spurningu:
Veistu hvað margar íbúðir voru fullkláraðar árið 2010? (það er ekki búið að birta tölur um 2011).
En 2009?
Veistu hvernig sá fjöldi er í samanburði við fjölgun fólks á húseignaaldri?
Eða í samanburði við ársþörf fyrir nýju húsnæði, EFfólksfjölgun væri eðlileg (þ.e. brottflutningur væri ekki í sögulegum hæðum).
Af hverju ætli Íslandsbanki hafi ekki framkvæmt þann samanburð?
Edited by gestur, 18 March 2012 - 18:43.
#10
Posted 19 March 2012 - 16:27
Quote
,,,,,
Innanríkisráðuneytið hefur tekið saman nauðungarsölur um allt land fyrir árið 2010. Samkvæmt því voru flest nauðungarsölumál á heimilum eða alls 2.754. Þar af voru 412 heimili seld á uppboði. Algengast er að veðhafar verði hæstbjóðendur á nauðungaruppboði. Þeir eru oftast bankar eða Íbúðalánasjóður. Þá hafa lífeyrissjóðir sömuleiðis keypt talsvert af eignum. Íbúðalánasjóður er langstærsti kaupandi eigna á nauðungarsölum en í fyrra var sjóðurinn hæstbjóðandi á 1.733 nauðungaruppboðum.
Ekki er eins algengt að aðrir lögaðilar eða einstaklingar séu hæstbjóðendur. Íslandsbanki hefur keypt 53 íbúðir á nauðungarsölu það sem af er ári. Íbúðirnar eru oftast settar beint í sölu, en gerðarþola, þ.e. þeim sem átti eignina, gefst oft kostur á að leigja íbúðina í eitt ár frá uppboði. Arion banki hefur aðeins keypt 4 íbúðir á nauðungaruppboði á árinu. Þær eru settar í söluferli um leið og fyrrum eigandi er fluttur út
.,,,,,,,
Þetta svarar rannsóknarspurningu þessa þráðar.
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users








