Jump to content


Hvað á ÍLS margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu?

Gáta

27 replies to this topic

Poll: Hvað á ÍLS margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu (7 member(s) have cast votes)

Hvað á ÍLS margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu

  1. Færri en 100 (1 votes [14.29%] - View)

    Percentage of vote: 14.29%

  2. 100-300 (1 votes [14.29%] - View)

    Percentage of vote: 14.29%

  3. 300-500 (1 votes [14.29%] - View)

    Percentage of vote: 14.29%

  4. 500-1000 (2 votes [28.57%] - View)

    Percentage of vote: 28.57%

  5. Yfir 1000 (2 votes [28.57%] - View)

    Percentage of vote: 28.57%

Vote Guests cannot vote

#1 Landinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2326 posts

Posted 17 March 2012 - 13:39

Hér hafa verið alls kyns kenningar um fjölda auðra íbúða á höfuðborgarsvæðinu enda vantar ekki sjálfskipaða sérfræðinga í húsnæðismálum hérna, sem flestir hafa spáð miklum lækkunum á húsnæðisverði.

En kæru snillingar, hvað haldið þið að ÍLS eigi margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu?

#2 Agent Smith

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2204 posts
  • Location:Norðan miðbaugs

Posted 17 March 2012 - 14:30

Færri en 100 Íbúðir.
I'd like to share a revelation during my time here. It came to me when I tried to classify your species. I realized that you're not actually mammals. Every mammal on this planet instinctively develops a natural equilibrium with the surrounding environment but you humans do not. You move to an area and you multiply and multiply until every natural resource is consumed. The only way you can survive is to spread to another area. There is another organism on this planet that follows the same pattern. Do you know what it is? A virus


“Progress is impossible without change, and those who cannot change their minds cannot change anything.”

- George Bernard Shaw

#3 7kr

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4523 posts

Posted 17 March 2012 - 17:01

View PostLandinn, on 17 March 2012 - 13:39, said:

Hér hafa verið alls kyns kenningar um fjölda auðra íbúða á höfuðborgarsvæðinu enda vantar ekki sjálfskipaða sérfræðinga í húsnæðismálum hérna, sem flestir hafa spáð miklum lækkunum á húsnæðisverði.

En kæru snillingar, hvað haldið þið að ÍLS eigi margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu?

Af hverju spyrðu einungis um ÍLS? Af hverju að nefna ekki bankana, þrotabúin, fasteignafélög, lífeyrissjóði osfrv?
Af hverju ekki að skoða hvað ÍLS á, á Suðvesturhorninu?

#4 Socrates

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1585 posts

Posted 17 March 2012 - 17:07

Frekar að spyrja hvað ÍLS á margar íbúðir, ekki auðar íbúðir.

#5 Landinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2326 posts

Posted 17 March 2012 - 17:23

View Post7kr, on 17 March 2012 - 17:01, said:

Af hverju spyrðu einungis um ÍLS? Af hverju að nefna ekki bankana, þrotabúin, fasteignafélög, lífeyrissjóði osfrv?
Af hverju ekki að skoða hvað ÍLS á, á Suðvesturhorninu?
Af því að það liggur fyrir hvað ÍLS á margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. ÍLS er helsti lánveitandi til fasteignakaupa á landinu. Þú og fleiri hafa komið með alls kyns tölur og það verður fróðlegt að skoða þær í samanburði við staðreyndirnar.

View PostSocrates, on 17 March 2012 - 17:07, said:

Frekar að spyrja hvað ÍLS á margar íbúðir, ekki auðar íbúðir.
Íbúðir sem eru í útleigu eru ekki hluti af fasteignamarkaðnum. Sama gildir um ókláraðar íbúðir.

#6 gestur

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 572 posts

Posted 17 March 2012 - 18:53

View PostLandinn, on 17 March 2012 - 17:23, said:

Af því að það liggur fyrir hvað ÍLS á margar auðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. ÍLS er helsti lánveitandi til fasteignakaupa á landinu. Þú og fleiri hafa komið með alls kyns tölur og það verður fróðlegt að skoða þær í samanburði við staðreyndirnar.


Íbúðir sem eru í útleigu eru ekki hluti af fasteignamarkaðnum. Sama gildir um ókláraðar íbúðir.

Það liggur líka fyrir hvað ÍLS af íbúðum á í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Það liggur líka fyrir hvað bankarnir eiga af íbúðum og þeir voru mjög svo tregir til að lána utan höfuðborgarsvæðisins.
Heitir aðferðin ekki cherry-picking? Ég held að samanburður á "alls kyns tölur" um landið allt og svo hvað einn aðila á af íbúðum á ákveðnu svæði sé ekki samanburðarhæfar tölur. Það verður þó fróðlegt að sjá hvaða niðurstöðu þú ætlar að gefa þér þar.

Íbúðir sem eru í útleigu eru hluti af fasteignarmarkaðnum því þær draga úr eftirspurn. Leigjendur eru ekki kaupendur. Það er því heildarfjöldi íbúða sem skiptir máli.
Ókláraðar íbúðir skipta vissulega máli, því þar hangir snjóhengjan yfir. Lítið þarf til þess að klára þær. Þessum íbúðum er ekki hent á haugana. Kaupandi selur yfirleitt aðra íbúð í staðinn.

En ég er með aðra spurningu:
Veistu hvað margar íbúðir voru fullkláraðar árið 2010? (það er ekki búið að birta tölur um 2011).
En 2009?
Veistu hvernig sá fjöldi er í samanburði við fjölgun fólks á húseignaaldri?
Af hverju ætli Íslandsbanki hafi ekki framkvæmt þann samanburð?

Edited by gestur, 17 March 2012 - 18:59.


#7 Socrates

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1585 posts

Posted 17 March 2012 - 21:26

Að sjálfsögðu eru bæði íbúðir í útleigu sem og óklárðar íbúðir hluti af fasteingamarkaðinum. Hvaða bull kemur næst?

#8 Landinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2326 posts

Posted 18 March 2012 - 09:42

View PostSocrates, on 17 March 2012 - 21:26, said:

Að sjálfsögðu eru bæði íbúðir í útleigu sem og óklárðar íbúðir hluti af fasteingamarkaðinum. Hvaða bull kemur næst?
Bullið í þér er endalaust. Það sjá það flestir að grunnar eru ekki hluti af húsnæðismarkaðnum og heldur ekki leiguíbúðir sem eru ekki til sölu. Íbúðin mín er heldur ekki hluti af fasteignamarkaðnum því hún er ekki til sölu. Þá gildir einu hvort fasteignasalarnir halda áfram að senda mér flyera eða ekki.

Gestur sakar mig um cherry picking. Það er ekki svo. Ég hef ekki áhuga á eign fjármálastofnana á Egilsstöðum eða í Reykjanesbæ. Það er mjög athyglisvert að vita hvað er mikið af auðum fullkláruðum eignum á höfuðborgarsvæðinu sem eru í eigu fjármálastofnana.

Rétt svar við þessari spurningu; hvað ÍLS á margar auðar eignir á höfuðborgarsvæðinu er 93 stk. Sjá http://www.althingi....140/s/0940.html

#9 gestur

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 572 posts

Posted 18 March 2012 - 18:19

View PostLandinn, on 18 March 2012 - 09:42, said:

Það sjá það flestir að grunnar eru ekki hluti af húsnæðismarkaðnum og heldur ekki leiguíbúðir sem eru ekki til sölu. Íbúðin mín er heldur ekki hluti af fasteignamarkaðnum því hún er ekki til sölu. Þá gildir einu hvort fasteignasalarnir halda áfram að senda mér flyera eða ekki.

Ef eignin þín er ekki hluti af fasteignamarkaðnu að þá ert þú sjálfur ekki heldur hluti af eftirspurninni. Það fækkar því snarlega í þeim hópi sem teljast mögulegir kaupendur ef skilgreiningin skal vera eins og þú leggur upp með. Það er þá rangt að tala um fjölda landsmanna sem mögulega kaupendur fasteigna. Ef svo skal vera þá væri réttara að horfa á svona myndir til að meta mögulega eftirspurn á þessu heildar offramboði á markaðnum:
Attached File  stórkaup.JPG   57.81K   2 downloads
Rauða línan sýnir þá sem ætla sér að leggja í fasteignakaup á næstunni, eins og sést að þá hlutfall þeirra í sögulegu lágmarki.


View PostLandinn, on 18 March 2012 - 09:42, said:

Gestur sakar mig um cherry picking. Það er ekki svo. Ég hef ekki áhuga á eign fjármálastofnana á Egilsstöðum eða í Reykjanesbæ. Það er mjög athyglisvert að vita hvað er mikið af auðum fullkláruðum eignum á höfuðborgarsvæðinu sem eru í eigu fjármálastofnana.

Rétt svar við þessari spurningu; hvað ÍLS á margar auðar eignir á höfuðborgarsvæðinu er 93 stk. Sjá http://www.althingi....140/s/0940.html

Eins og ég sagði að þá eru fleiri en Íbúðalánsjóður á höfuðborgarsvæðinu.
Og já það er mjög áhugavert að vita hvað aðrir en ÍLS eiga af eignum þarna. Svo má reyndar ekki gleyma eignum í eigu einstaklinga sem búa annars staðar. Það eru þeir sem geta ekki klárað að byggja eignir sínar eða bíða þess að missa eignina á nauðungarsölu. Það tekur nefnilega tíma fyrir fjármálakerfið að klára uppgjörið við hrunið.
Smelltu á myndina:
Attached File  Nauðungarsala.JPG   53.73K   3 downloads
Línuritið sýnir Nauðungarsölur í Reykjavík. Ferillinn er ennþá upp á við, nú þremur og hálfu ári eftir hrun.

Það er áhugavert að sjá að Íbúðalánasjóður á 340 eignir samtals á höfuðborgarsvæðinu og 529 á Suðurnesjum skv. linknum þínum (Því þótt að þú kjósir ekki að búa utan svæðisins að þá hefur þetta áhrif á stóran hluta af íslendingum). Það gerir 869 eignir. Bara þessi eina stofnun á svona margar eignir á þessu svæði.
Það er um það bil ársþörf fyrir nýjar eignir á þessu svæði. Það er töluvert þegar haft er í huga að þessi eina stofnun á ekki einu sinni meirihluta eigna í eigu þrotabúa og fjármálafyrirtækja. Bættu hinum fjármálastofnunum við og fjöldinn er enn meiri. Bættu óafgreiddu nauðungarsölunum við og snjóhengjan er orðin ansi yfirþyrmandi.

En ég er með aðra spurningu:
Veistu hvað margar íbúðir voru fullkláraðar árið 2010? (það er ekki búið að birta tölur um 2011).
En 2009?
Veistu hvernig sá fjöldi er í samanburði við fjölgun fólks á húseignaaldri?
Eða í samanburði við ársþörf fyrir nýju húsnæði, EFfólksfjölgun væri eðlileg (þ.e. brottflutningur væri ekki í sögulegum hæðum).
Af hverju ætli Íslandsbanki hafi ekki framkvæmt þann samanburð?

Edited by gestur, 18 March 2012 - 18:43.


#10 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10765 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 19 March 2012 - 16:27

Gamlar fréttir

Quote

Fréttaskýring: Fjöldi fasteigna sleginn á uppboði
,,,,,
Innanríkisráðuneytið hefur tekið saman nauðungarsölur um allt land fyrir árið 2010. Samkvæmt því voru flest nauðungarsölumál á heimilum eða alls 2.754. Þar af voru 412 heimili seld á uppboði. Algengast er að veðhafar verði hæstbjóðendur á nauðungaruppboði. Þeir eru oftast bankar eða Íbúðalánasjóður. Þá hafa lífeyrissjóðir sömuleiðis keypt talsvert af eignum. Íbúðalánasjóður er langstærsti kaupandi eigna á nauðungarsölum en í fyrra var sjóðurinn hæstbjóðandi á 1.733 nauðungaruppboðum.

Ekki er eins algengt að aðrir lögaðilar eða einstaklingar séu hæstbjóðendur. Íslandsbanki hefur keypt 53 íbúðir á nauðungarsölu það sem af er ári. Íbúðirnar eru oftast settar beint í sölu, en gerðarþola, þ.e. þeim sem átti eignina, gefst oft kostur á að leigja íbúðina í eitt ár frá uppboði. Arion banki hefur aðeins keypt 4 íbúðir á nauðungaruppboði á árinu. Þær eru settar í söluferli um leið og fyrrum eigandi er fluttur út
.,,,,,,,

Þetta svarar rannsóknarspurningu þessa þráðar.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users