Jump to content


Er ekki eðlilegt að Guðs útvalda þjóð hatist út í aðrar þjóðir?


12 replies to this topic

#1 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12763 posts

Posted 18 March 2012 - 15:21

Ættu ofsóknir fasistaríkis Ísraela á hendur nágrönnum sínum að koma einhverjum á óvart?
Er þetta ekki hreinlega innbyggt í Gyðingdóminn?

#2 siggisig2

    Nýliði

  • Notendur
  • 23 posts

Posted 18 March 2012 - 16:14

Það er mikið lagt á þetta veslings fólk, að vera Guðs útvalið.

Annars hélt það vera Ameríkana!!!!

#3 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3499 posts

Posted 18 March 2012 - 16:36

Bara svona til að koma inn í umræðuna; þá hafa Bandaríkin sem slík ALDREI hatast út í nokkra þjóð, en lagt mest af mörkum allra þjóða til mannúðarmála, matargjafa, fjármagns og hvaðeina til hungraðra þjóða, fjárvana þjóða og allslausra - þ.á.m. Íslendinga í gegnum áratugina.
Ættum þess vegna að geta vel við unað að sækja um dollara sem gjaldmiðil hér á landi og fá aðstoð bandaríska seðlabankans við að "uppfæra" efnahagskerfið hér. Allt án þess að gerast eitt af ríkjum BNA.

#4 siggisig2

    Nýliði

  • Notendur
  • 23 posts

Posted 18 March 2012 - 20:27

Og enginn þjóð ráðist inn í fleiri lönd að ósekju.!!!

#5 Victor Laszlo

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5095 posts
  • Gender:Male
  • Location:Bunjabi

Posted 18 March 2012 - 20:31

View PostBarði, on 18 March 2012 - 16:36, said:

Bara svona til að koma inn í umræðuna; þá hafa Bandaríkin sem slík ALDREI hatast út í nokkra þjóð, en lagt mest af mörkum allra þjóða til mannúðarmála, matargjafa, fjármagns og hvaðeina til hungraðra þjóða, fjárvana þjóða og allslausra - þ.á.m. Íslendinga í gegnum áratugina.
Ættum þess vegna að geta vel við unað að sækja um dollara sem gjaldmiðil hér á landi og fá aðstoð bandaríska seðlabankans við að "uppfæra" efnahagskerfið hér. Allt án þess að gerast eitt af ríkjum BNA.

Eina þjóðin sem varpað hefur kjarnorkusprengju á saklausa borgara.
The pattern is always the same, because our instincts are dead wrong. Early clumsiness is not a verdict: it’s an essential ingredient. Because the key to developing talent isn’t “identifying” it; it’s creating safe spaces where this kind of happy clumsiness can be nurtured, with time and repetition, into grace and skill.
- Daniel Coyle

#6 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3499 posts

Posted 18 March 2012 - 21:34

Þið tveir síðustu hér, heiðursmennirnir, eruð nú ekki meðal sterkustu aðdáenda Bandaríkjanna, eða hvað? Hvaða ríkið hafa BNA "ráðist" svona svakalega inn í nýlega? "Réðust" þau kannski líka inn í Þýskaland og önnur Evrópuríki í síðari heimsstyrjöld? Og hvað áttu BNA að gera þegar Japanir vildu alls ekki gefast upp í stríðslok? Bara bíða eftir meiri hörmungum við Kyrrahafssvæðið?
Munið þið eftir þessum atburðum öllum á sínum tíma. - Ég man þetta eins og það hefði gerst í gær. Það GAT engin þjóð stöðvað þessar hörmungar nema BNA. Og var nokkuð annað hægt til að sýna heiminum hve mikil ógn Kjarnorkusprengjan var í raun? - Síðan þá hefur engin þjóð viljað eða þorað að nota þetta vopn. - En Íran er samt að reyna..... - Æ, strákar, þið vitið nú betur en þið látið í veðri vaka. Reynið að koma ykkur inn á Ameríkulínuna!

#7 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7457 posts

Posted 18 March 2012 - 22:03

Barði, hvað með Írak?
æ notuðu þeir einhvern lepp?
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#8 Frater DOV

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1486 posts
  • Gender:Male
  • Location:Reykjavík
  • Interests:Life and People.

Posted 19 March 2012 - 14:04

Bandaríkin eru stór og voldug þjóð sem lengi má mæra.

En því miður er landinu stýrt af eigingjörnu og valdagröðu fólki sem svífst einskyns. Þess vegna hefur oftast USA ráðist inn í lönd án þess að lýsa yfir stíði, það hefur hent sprengjum á fólk í annarri álfu sem hefur ekkert gert á þeirra hlut. Þeir eru sjálfskipuð lögregla sem skiptir sér af innanríkismálum sjálfstæðra þjóða og ef ráð’amenn þessara þjóða eru óánægðar eru viðkomandi stjórnmálamenn “keyptir” eða drepnir.

Öllu þessu er stýrt með áróðursvélum sem segja þér að Sýrland sé vont og “frelsisbaráttufólk” er gott. Þú þarft ekkert að hugsa sjálfur, bara lesa pressuna og láta hugarflugið sjá um restina.

“War is peace and ignorance is streangth, komrade”
Femmuhornið - rökstuddar hugleiðingar um femínisma.


The most difficult subject can be explained to the most slow-witted man, if he has not formed any idea of them already. But the simplest thing cannot be made clear to the most intelligent man, if he is firmly persuaded that he knows already without a shadow of a doubt what is laid before him.

Leo Tolstoy


#9 Keops

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 8710 posts

Posted 19 March 2012 - 15:12

View PostBarði, on 18 March 2012 - 21:34, said:

Þið tveir síðustu hér, heiðursmennirnir, eruð nú ekki meðal sterkustu aðdáenda Bandaríkjanna, eða hvað? Hvaða ríkið hafa BNA "ráðist" svona svakalega inn í nýlega? "Réðust" þau kannski líka inn í Þýskaland og önnur Evrópuríki í síðari heimsstyrjöld? Og hvað áttu BNA að gera þegar Japanir vildu alls ekki gefast upp í stríðslok? Bara bíða eftir meiri hörmungum við Kyrrahafssvæðið?
Munið þið eftir þessum atburðum öllum á sínum tíma. - Ég man þetta eins og það hefði gerst í gær. Það GAT engin þjóð stöðvað þessar hörmungar nema BNA. Og var nokkuð annað hægt til að sýna heiminum hve mikil ógn Kjarnorkusprengjan var í raun? - Síðan þá hefur engin þjóð viljað eða þorað að nota þetta vopn. - En Íran er samt að reyna..... - Æ, strákar, þið vitið nú betur en þið látið í veðri vaka. Reynið að koma ykkur inn á Ameríkulínuna!

Það er nú ótrúlegt að sjá fólk sem virðist með fullu viti réttlæta kjarnorkuárás BNA á Japan. Þar var auðvitað um að ræða versta hryðjuverk mannkynssögunnar, og er þó ekki skortur á voðaverkunum í þeirri sögu.

Og einhver siðferðileg afstæðishyggja um að drepa 400 þúsund Japani til að bjarga svo og svo mörgum könum er auðvitað einskis verð.

Ofan á allt annað var um að ræða rasistískt hryðjuverk, BNA hefði ALDREI drepið 400 þúsund evrópska "Vesturlandabúa" með svona kjarnorkuárás. Meira að segja ekki þýska nasista.

"I tell you this,

No eternal reward will forgive us now

For wasting the dawn."


Jim Morrison, 1971

http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml


#10 drCronex

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 26403 posts
  • Gender:Male
  • Location:hér er ég.
  • Interests:Dagurinn og vegurinn. Heimreiðar og hestamennska. Svona má lengi telja!

Posted 19 March 2012 - 19:17

View PostKeops, on 19 March 2012 - 15:12, said:

Það er nú ótrúlegt að sjá fólk sem virðist með fullu viti réttlæta kjarnorkuárás BNA á Japan. Þar var auðvitað um að ræða versta hryðjuverk mannkynssögunnar, og er þó ekki skortur á voðaverkunum í þeirri sögu.

Og einhver siðferðileg afstæðishyggja um að drepa 400 þúsund Japani til að bjarga svo og svo mörgum könum er auðvitað einskis verð.

Ofan á allt annað var um að ræða rasistískt hryðjuverk, BNA hefði ALDREI drepið 400 þúsund evrópska "Vesturlandabúa" með svona kjarnorkuárás. Meira að segja ekki þýska nasista.
Við þessari fullyrðingu segi ég bara hreint út NEI. Hiroshima og Nagasaki voru ekki verstu hryðjuverk sögunnar. Langt því frá. Og við skulum lesa okkur vel til áður en við förum að fullyrða það um notkun sprengjanna á sínum tíma, síðustu mánuðir seinni heimsstyrjaldar voru flókið ferli uppfullt af ólýsanlegum hörmungum.

Sigurför Japana í Asíu var ekki mikið mannúðarplagg og ólýsanleg grimmd hjá þeim. Lestu Rape of Nanking og hugsaðu málið. Þar slátruðu Japanir allt að 300,000 saklausum borgurum, mörgum með sveðjum og grófu fólk lifandi og ég veit ekki hvað. Nei það er mjög naíf að halda að heimurinn hafi byrjað 08:15, 6. Ágúst 1945. Eða að það hafi verið eitthvað sérstakt grimmdarverk í regluverki stríðsrekstursins sem var að enda.

Edited by drCronex, 19 March 2012 - 19:18.

Skilekkineitt: "Sjónhverfingar byggjast á því að dreifa athyglinni frá aðalatriðinu."
Ingimundur Kjarval: "Þegar þú setur lyftu í hús, sleppir þú ekki eftstu hæðina vegna þess að svo fáir eiga heima þar."
Apple: "...hvað sem útveggjunum líður en þeir eru hannaðir til að taka á sig lárétt álag en ekki lóðrétt."

Plasma Rarity: "Ég myndi skilgreina kjána sem einhvern sem skortir þekkingu á eitthvað málefni, en getur jafnvel verið greindur. Það er munur á kjána og vitleysing og hann er sá að vitleysingur getur haft þekkingu en skortir greind."





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users