Laplace, on 19 March 2012 - 13:57, said:
Ég held að Þorleifur hafi ekki hugsað sér að innræta neitt, þannig að þú þarft engar áhyggjur að hafa. Hann vill hinsvegar ekki aðstoða kristin félagasamtök (eða önnur trúfélög) með opinberu fé, það hefur sýnt sig að alskonar perraskapur virðist grassera þar. Auk þess sem hann er sennilega á því að við eigum ekki að treysta félagasamtökum fyrir velferð borgara.
Nákvæmnlega mitt point; þorleifur sér ekki að hann er að gera nákvæmnlega það sem hann ásakar hjálpræðisherinn um; að boða ákveðnar skoðanir.
Þegar þú tjáir þig við annan mann ert þú að beita þínum áhrifum. Það er alger vitleysa að halda að þú getir tjáð þig án þess að láta í ljós skoðanir, og í gegnum þær skoðanir hefur þú áhrif.
Þú hefur t.d. áhrif í gegnum skrif þín hérna og það er þinn réttur, alveg eins og það er réttur hjálpræðishersinns að kyrja sinn söng. Eins og þeir hafa gert við mikla þökk gesta sinna í áratugi þar til vitleysingar eins og þorleifur fer að sjá eitthvað að því að sumt fólk vilji gefa sig trú sinni og næstakærleika.
Bara ef þorleifur væri hálfur maður, miðað við marga hjálpræðishermenn, þá myndi hann kanski halda kjafti í stað þess að eyðileggja það sem hefur virkað vel og hjálpað mörgum, þó hann sé ekki sammála hugmyndafræði þess.
Femmuhornið - rökstuddar hugleiðingar um femínisma.
The most difficult subject can be explained to the most slow-witted man, if he has not formed any idea of them already. But the simplest thing cannot be made clear to the most intelligent man, if he is firmly persuaded that he knows already without a shadow of a doubt what is laid before him.
Leo Tolstoy