Jump to content


Daður ungra VG við hard core kommúnisma

leshringur ungra VG

85 replies to this topic

#1 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10765 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 20 March 2012 - 09:07

Maður er eiginlega bara bit. Það stjórnmálaafl sem er hvað lengst til vinstri á Íslandi, ungliðahreyfingin er að lesa upp úr ritum hugmyndasmiðs harðlínukommúnisma.

Quote

Leshringur VGR og RV um marx-lenínisma
Reykjavíkurfélag Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Rauður vettvangur halda í sameiningu leshring um marx-lenínisma, sem Vésteinn Valgarðsson mun leiða. Fyrsti fundurinn verður á morgun kl. 12:00 laugardaginn 17. mars í Suðurgötu 3. Á honum verður tiltækið kynnt fyrir áhugasömum og skipulagt nánar í samvinnu við væntanlega þátttakendur. Ef fólk vill vera með en kemst ekki á laugardaginn, er því bent á að hafa samband við Véstein í síma 8629067 eða í tölvupósti: vangaveltur@yahoo.com - og verður það þá látið vita um framhaldið.

Stjórnir Vinstri-grænna í Reykjavík og Rauðs vettvangs

Þegar maður les svona "frétt" eða tilkynningu, sem ber með sér að þetta fólk virðist algerlega blint á hvaða hörmungar svona daður við kommúnisma hefur leitt yfir mannkynið, þá verður maður bara eiginlega alveg bit.

Myndi þetta sama fólk og fer þarna að lesa upp úr ritum "meistarans" verða hvummsa við ef ungir Frjálslyndir myndu vera með leshring um Mein Kampf?
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#2 Skaz

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4281 posts
  • Gender:Male

Posted 20 March 2012 - 09:16

Fólk má lesa það sem að því sýnist og hafa þær skoðanir sem að því sýnist.

Know thyself; presume God not to
scan:
The proper study of mankind is man.
-Alexander Pope

#3 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10765 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 20 March 2012 - 09:25

Þannig að ef að stjórnmálaflokkur stendur fyrir fræðslu um eina verstu mannvonskustefnu síðustu aldar, stefnu sem leiddi gífurlegar hörmungar yfir fólk, þá er það bara allt í lagi? Ekkert um þetta að segja, bara allt í lukkunar velstandi?

Við erum að tala um stjórnmálaflokk sem er á þingi.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#4 Laplace

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 6885 posts
  • Gender:Male

Posted 20 March 2012 - 09:26

Socialistar og Kommunistar eru mjög aktívir víðast í Evrópu, það er eiginlega bara hér á Íslandi þar sem orðið "kommunisti" er álitið hrakyrði, ætli það sé ekki vegna þess hve lengi við vorum undir hæl USA. Það er margt gott í Kommunismanum og mættu sem flestir kynna sér þau fræði.
QUOTE (Davíð Oddson @ Jan 2004)
Banks are now more capable of backing Icelandic business and have been expanding overseas on a growing scale. This is a very positive development which shows beyond all doubt the enormous force unleashed when the state entrusts individuals with freedom of action.



Meðlimur í Félagi Þöggunarsinna
Þaggar reglulega niður í rasistum

#5 Keops

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 8701 posts

Posted 20 March 2012 - 09:26

Eftir að ég "afkommaðist" er ég orðinn lítt hrifinn af Vladímir Iljítsj Úljanoff, en langt frá því að vera orðinn afhuga Marxi gamla. Tel hann jafnmikinn hugmyndasmið okkar krata eins og kommanna og vil ekki láta það líðast að kommar eigni sér karlinn alfarið. Eiginlega held ég að ég geti meira og minna kallað mig marxista enn í dag, eins og þegar ég byrjaði alvöru fræðalestur fyrir um 40 árum síðan.

Ég tel líka mikilvægt að við kratar varðveitum menningararf okkar, t.d. rauða fánann og Internationalinn. Margir telja þetta vera einhver sérrstök kommatákn. Sem auðvitað er þvæla.

"I tell you this,

No eternal reward will forgive us now

For wasting the dawn."


Jim Morrison, 1971

http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml


#6 skeggi

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2872 posts

Posted 20 March 2012 - 09:29

fleebah: Hefurðu lesið Marx?

Er þá lestur frjálshyggjudrengja á Friedman daður við fasisma a'la Pinochet?

#7 appel

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9846 posts

Posted 20 March 2012 - 09:30

Kommúnisminn hefur drepið fleiri en Hitler, en ef fólk safnaðist saman undir hans boðskap þá yrði eitthvað sagt um það.
Frelsi frá stjórnvöldum ER frelsi!
Frelsi, velmegun og friður!

#8 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10765 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 20 March 2012 - 09:56

View PostLaplace, on 20 March 2012 - 09:26, said:

Socialistar og Kommunistar eru mjög aktívir víðast í Evrópu, það er eiginlega bara hér á Íslandi þar sem orðið "kommunisti" er álitið hrakyrði, ætli það sé ekki vegna þess hve lengi við vorum undir hæl USA. Það er margt gott í Kommunismanum og mættu sem flestir kynna sér þau fræði.
Auðvitað á orðið "kommúnisti" að vera hrakyrði alveg eins og nasisti og rasisti er hrakyrði. Það er búið að prófa þessar skelfingar með hræðilegum afleiðingum. "Það er margt gott í kommúnismanum" segirðu. Eigum við s.s. að prófa hann aftur, bara "this time it is different" og nota "séríslenskar aðstæður" til að halda því fram að í þetta sinn fari enginn í Gúlag, í þetta sinn verði engin fjöldamorð framin á andstæðingum stefnunnar? Og að í þetta sinn verði þjóðin ríkari í stað þess að svelta til bana að stórum hluta?

Það er vissulega rétt hjá Skaz, fólki er frjálst að hafa þær skoðanir sem það vill. Algerlega rétt. En að það sé ekki fordæmt þegar kommúnistar lesa upp guðspjallið að hætti Leníns, eins helsta hugmyndasmiðs mannvonsku síðustu aldar, á sama hátt og það er fordæmt þegar rasistar mæra Hitler og nasisma, það er hræsni af hæðsta stigi.

Marx boðaði breytingar með byltingu. Það þýddi ekkert að ræða hlutina, það þyrfti að bera byltingu með ofbeldi til að koma í gegn breytingum. Falleg hugsjón, ekki satt? Við höfum vel documentaðar afleiðingar slíkra hamfara. Eigum við að hunsa slíkt daður við mannvonsku endalaust?

Þetta er bara ekki í lagi, gott fólk. Að vera jafnaðarmaður er hið besta mál, en kommúnismi fer yfir þá línu sem skilur á milli fallegrar hugmyndafræði og einnar mestu mannvonskustefnu sögunnar.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#9 xcode

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3106 posts

Posted 20 March 2012 - 10:05

Var það ekki ungliðahreyfingin sem lagði til pólitísk réttarhöld (uppgjör við frjálshyggju) eða var það reykjavíkurdeildin?

Hættulegir kjánar.

#10 Laplace

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 6885 posts
  • Gender:Male

Posted 20 March 2012 - 10:18

View Postfleebah, on 20 March 2012 - 09:56, said:

Auðvitað á orðið "kommúnisti" að vera hrakyrði alveg eins og nasisti og rasisti er hrakyrði. Það er búið að prófa þessar skelfingar með hræðilegum afleiðingum. "Það er margt gott í kommúnismanum" segirðu. Eigum við s.s. að prófa hann aftur, bara "this time it is different" og nota "séríslenskar aðstæður" til að halda því fram að í þetta sinn fari enginn í Gúlag, í þetta sinn verði engin fjöldamorð framin á andstæðingum stefnunnar? Og að í þetta sinn verði þjóðin ríkari í stað þess að svelta til bana að stórum hluta?

Það er vissulega rétt hjá Skaz, fólki er frjálst að hafa þær skoðanir sem það vill. Algerlega rétt. En að það sé ekki fordæmt þegar kommúnistar lesa upp guðspjallið að hætti Leníns, eins helsta hugmyndasmiðs mannvonsku síðustu aldar, á sama hátt og það er fordæmt þegar rasistar mæra Hitler og nasisma, það er hræsni af hæðsta stigi.

Marx boðaði breytingar með byltingu. Það þýddi ekkert að ræða hlutina, það þyrfti að bera byltingu með ofbeldi til að koma í gegn breytingum. Falleg hugsjón, ekki satt? Við höfum vel documentaðar afleiðingar slíkra hamfara. Eigum við að hunsa slíkt daður við mannvonsku endalaust?

Þetta er bara ekki í lagi, gott fólk. Að vera jafnaðarmaður er hið besta mál, en kommúnismi fer yfir þá línu sem skilur á milli fallegrar hugmyndafræði og einnar mestu mannvonskustefnu sögunnar.

Ef þú villt trúa því að kommunistar í dag vilji yfirleitt fjöldamorð ala Stalin þá mátt þú það auðvitað, ekkert vera að láta raunveruleikan flækjast fyrir þér.

Edited by Laplace, 20 March 2012 - 10:24.

QUOTE (Davíð Oddson @ Jan 2004)
Banks are now more capable of backing Icelandic business and have been expanding overseas on a growing scale. This is a very positive development which shows beyond all doubt the enormous force unleashed when the state entrusts individuals with freedom of action.



Meðlimur í Félagi Þöggunarsinna
Þaggar reglulega niður í rasistum





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users