- Sjávarauðlindin, aðferð við nýtingu og skipting arðsins.
- Spilling útgerðaraðila, meint undanskot undan skatti, gjöldum, kaupgreiðslum.....
- Aðkoma og aðkomuleysi almennings/pólitíkurinnar að nýrri stjórnarskrá.
Jóhanna Vigdís snýst í ótal hringi þegar hún er spurð hvort Sjallar séu ekki að tefja framgang stjórnarskrármálsins. Hún virðist ekki fatta að svo sé, fattar aðdrei neitt neikvætt um Sjalla. Smyr með smjörklípunum sem þeir sletta fram.
Gert er að aðalatriði hvort sitjandi ráðherra ber fram sjávarauðlindarfrumvarpið. Hvort stjórnarandstöðuþingmenn séu óánægðir með það. Fréttatímanir allir í hvað hvaða pólitíkus tuðaði í eilífum bullátökum á þinginu. Hvort átti að fara í athvæðagreiðslu kl 2 að nóttu eða ekki og hvaða þingmenn voru mættir. Mogginn leitar síðan að sjávarútvegsfyrirtækjum sem standa illa og hótar atvinnuleysti.
Ekkert er gert til að greina áhrifin á almenning í landinu. Ekkert til að skoða hvort þetta eru góð mál eða ill. Hvort að skipting arðsins sé eðlileg frá sjónarhóli almennings. Hvort spillingi útgerðaraðilans er grasserandi í atvinnugreininni. Bara hlaupið í stórnarandstöðuþingmann og bullið lapið upp.
Guði sé lof fyrir hliðargreinar fréttastofanna. Þeir reyna þó. Ef við hefðum ekki Spegilinn og Kastljós værum við á sama stigi og almenningur í öðru landi sem horfir bara á FOX.
Edited by Neisti, 28 March 2012 - 20:21.








