Jump to content


Búlandsvirkjun

í biðflokk út af þjóðgarði

18 replies to this topic

#1 Háleggur

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 476 posts
  • Gender:Male

Posted 29 March 2012 - 00:39

Er að velta fyrir mér hvort ekki væri bara rétt að gera allt landið að þjóðgarði.
Þá þarf ekki að vera að takast á um framkvæmdir, bara allt á frost um aldur og ævi.
Við bara að lifa á styrkjum frá ESB.

#2 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3496 posts

Posted 29 March 2012 - 01:04

Er þess fullviss, að virkjun Gullfoss (sem nú þegar hefur verið gerð hönnun að í embætti einns fyrrv. orkumálatjóra) er lang hagkvæmasta lausnin á orkumálum okkar Íslendinga. Þá þyrfti ekki að vera að kljást um virkjun Neðri-Þjórsár eða annars staðar hér sunnan lands í náinni framtíð.
Virkjun Gullfoss sem væri meiriháttar virkjun er ekki neitt fjarstæðari en virkun Niagara-fossanna á landamærum Bandaríkjanna og Kanada, þar sem milljónir ferðamanna berja þá virkjun augum árlega. þar hefur náttúran verið látin njóta sín að fullu - líkt og yrði um virkjun Gullfoss. - Nema að þá mynki loks verða þar fullkomin aðstaða fyrir ferðamenn,ólíkt því sem gerist í dag á Gullfosssvæðinu.

#3 falcon1

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 11410 posts

Posted 29 March 2012 - 11:33

Ef Gullfoss yrði virkjaður að þá myndi ferðamannaþjónusta á Íslandi hrynja. Það er bara svo einfalt.
Kveðja,
Falcon1

icelandphotoblog.com

Íslenska þjóð - RÍS UPP!

Fyrrum voru fálkar fluttir lifandi út í stórum stíl, því erlendir þjóðhöfðingjar sóttust eftir að eignast íslenska fálka. Íslenski fálkinn er stærsta fálkategund sem til er og er eftirlæti fuglaskoðara. Af Íslandsvef

#4 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3496 posts

Posted 29 March 2012 - 19:45

Hvers vegna, falcon1? Ekki hrundi ferðaþjónusta eða aðsókn við Niagarafossana í Kanada/Bandaríkjunum við virkjun þeirra fossa sem létu á engan hátt á sjá þótt þeir væru virkjaðir með fallhæð neðan sjónhæðar hinna almennu ferðamanna. - Sama myndi auðvitaða ekki ske hér við Gullfoss. Virkjun hans myndi auka ferðamannastraum um allan helming. - En það er þéttskipaður hópur náttúrverndarsinna, svonefndra, sem stendur í vegi fyrir hvers konar virkjunum eins og allir vita. - Þeir eru nú að ná yfirhöndinni yfir öllum framkvæmdum á Íslandi og það verður banabiti allra framfara hér á landi.

#5 siggisig2

    Nýliði

  • Notendur
  • 23 posts

Posted 30 March 2012 - 19:55

Ég sem sjálfstæðismaður. legg til að Almannagjá verði gerð að geymslustað fyrir kjarnorkuúrgang,milljarðar að veði.!

Hlustið ekki á úrtölumenn VG.!!!!

#6 Orville

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7554 posts

Posted 30 March 2012 - 21:47

View Postsiggisig2, on 30 March 2012 - 19:55, said:

Ég sem sjálfstæðismaður. legg til að Almannagjá verði gerð að geymslustað fyrir kjarnorkuúrgang,milljarðar að veði.!

Hlustið ekki á úrtölumenn VG.!!!!
Þeir sem eru á móti þessari hugmynd verða þá að benda á aðra betri, ekki bara segja "eitthvað annað!". Og ekki lifum við á hundasúrum.

Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af Þingvöllum og Almannagjá og tel mig mikinn unnanda þjóðgarðsins. En á einhverju verðum við að lifa. Við verðum að nýta atvinnutækifærin og þá möguleika sem gefast til atvinnuuppbyggingar og erlendar fjárfestingar. Ef það er eitthvað sem þessari þjóð vantar þá er það aukin erlend fjárfesting og við getum ekki verið að setja upp einhverjar fáránlegar umhverfiskröfur meðan fólkið gengur atvinnulaust og verktakar flytja til Noregs.

Vegna landfræðilegra aðstæðna og staðsetningu landsins væri líka mun umhverfisvænna að urða kjarnorkuúrganginn hér en í Evrópu. Auk þess getum við boðið lægra verð og minni kröfur til umhverfisþátta.

Það á ekki að hlusta á þetta öfgafulla umhverfisverndarpakk og afturhaldsseggi. Ef við nýtum okkur ekki þá möguleika sem felast í náttúru landsins og þeirri uppbyggingu sem þar getur átt sér stað, þá mun þessi þjóð dragast afturúr þeim þjóðum sem við viljum bera okkur saman við.

#7 Laplace

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 6885 posts
  • Gender:Male

Posted 30 March 2012 - 21:56

View Postsiggisig2, on 30 March 2012 - 19:55, said:

Ég sem sjálfstæðismaður. legg til að Almannagjá verði gerð að geymslustað fyrir kjarnorkuúrgang,milljarðar að veði.!

Hlustið ekki á úrtölumenn VG.!!!!

Þeir sem eru ósammála þessu hljóta að vera kommunistar!
QUOTE (Davíð Oddson @ Jan 2004)
Banks are now more capable of backing Icelandic business and have been expanding overseas on a growing scale. This is a very positive development which shows beyond all doubt the enormous force unleashed when the state entrusts individuals with freedom of action.



Meðlimur í Félagi Þöggunarsinna
Þaggar reglulega niður í rasistum

#8 Skaz

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4292 posts
  • Gender:Male

Posted 31 March 2012 - 00:46

Sýnist þið vera að ofmeta verulega þá orku sem að fengist út úr Gullfossi...

Þetta er líka einfalt reikningsdæmi, takið með allt sem að túristar eyða til að koma til landsins, koma sér á leiðarenda, gista o.s.frv. til þess að sjá þennan foss (sem að mér finnst ómerkilegur nb.) og berið það saman við arðsemi virkjunar ef að orkan yrði seld í ál.

Held að túristabissnessinn myndi vinna, það er stækkandi iðnaður á meðan ál er svolítið tvísýnt eins og er.

Know thyself; presume God not to
scan:
The proper study of mankind is man.
-Alexander Pope

#9 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3496 posts

Posted 31 March 2012 - 18:25

Heyrðu, Skaz, það er enginn að tala um að Gullfoss verði ekki sama aðdráttarfal fyrir ferðamenn, þótt hann verði virkjaður. Bara enn meira aðdráttarafl - og með nyjum og stórbættri aðstöðu allt í kring. Gullfoss yrði sami Gullfoss ásýndar, hann myndi einskis í missa þótt hann yrði virkjaður.

#10 Skaz

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4292 posts
  • Gender:Male

Posted 31 March 2012 - 19:22

View PostBarði, on 31 March 2012 - 18:25, said:

Heyrðu, Skaz, það er enginn að tala um að Gullfoss verði ekki sama aðdráttarfal fyrir ferðamenn, þótt hann verði virkjaður. Bara enn meira aðdráttarafl - og með nyjum og stórbættri aðstöðu allt í kring. Gullfoss yrði sami Gullfoss ásýndar, hann myndi einskis í missa þótt hann yrði virkjaður.

Ég er nú bara að reyna að benda á það að ég telji það ekki svara kostnaði að virkja hann...

Know thyself; presume God not to
scan:
The proper study of mankind is man.
-Alexander Pope





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users