cesil, on 01 April 2012 - 03:12, said:
Mér fannst lagið With or without you best. Þetta er auðvitað krúttlegt og stuttur ævingartími. Þau þurfa samt að leggja meira í að byrja og enda lögin. Það sem mér fannst flottast í þessu voru dansararnir, þau voru algjörlega frábær. En með góðri æfingu geta krakkarnir orðið bara góð. Ég er ánægð með lagavalið hjá þeim.
Já. With or without you er flott hjá þeim. Merkilegt að það sem var erfiðast var Give peace að Chance. Þau voru einhvernvegin feimin við það. Byrjun og endir laganna var svona af því þetta áttu að vera sýnishorn en það er alveg rétt hjá þér að það hefði þurft að leggja meiri áherslu á það.
Sjálf er ég bara svo stolt af þessum krökkum, finnst þau vera mín, enda nemendur mínir og þessir dagar sem fóru´í að undirbúa þetta voru okkur öllum svo lærdómsríkir. Kynnin milli okkar allra breyttust og verða líklega aldrei söm eftir. Það er ekki auðvelt t.d. fyrir drengi sem enn eru í mútum að ná erfiðum lögum og ÞORA að syngja. Þvílíkt flott!!!
Dansararnir mínir hafa dansað saman í 2 ár og eru bara frábær.