jenar, on 10 April 2012 - 12:25, said:
Ég er nú alveg sammála honum Ástþóri. Það er alveg þess virði að rannsaka hvað drífur "lýðræðisást" Íslendinga áfram. Ekki var það lýðræðisást sem knúði búsáhaldabyltinguna. Það er auðvelt að sjá svona eftir á. Það var sameiginlegt hatur á Sjálfstæðiflokknum sem knúði hana áfram. Nú eru "byltingarsinnarnir" uppteknir af því að verja sömu vinnubrögð og sama kerfi, af því að "þeirra" menn sitja á valdastóli. Aumingja þeir, þegar rúlluruglulánadýrið verður forsætisráðherra. En hey - þeir geta allta huggað sig við það, að þeirra forseti á Bessastöðum, hún Þóra, mun kvitta fyrir allt sem Rúllugugli réttir henni... AWSOME!
Yebb..
Sömu aðfarir og XD beitti fyrir hrun, að ráða sína menn í aðhaldið eins og fjármálaeftirlitið. Gutti númer 1 sat þar í stól og átti víst að "gagnrýna" atferli hinna guttanna í fjármálakerfinu.. brandari að sjálfsögðu.
En þetta er líka brandari..
Forsætisembættið hefur aldrei þessu vant virkað sem aðhald eftir hrun.
Það er að sjálfsögðu virkilega dapurt að það hafi þurft jafn mikið aðhald og einmitt hefur komið á daginn. Ný ríkistjórn með fólki sem hefur haft ótrúlega langan tíma til að skoða þessi mál og það svo gjörsamlega vanhæft og illa að sér að það þarf að virkja grein í stjórnarskránni til að bjarga þeim frá algjöru afhroði og klúðri sinna mála. Þetta er því miður staðreynd og það er líka staðreynd að umsókn okkar í ESB er villa í takt við annað bull sem þessi ríkistjórn heimtar að fá að framkvæma. Og það er.inmitt einn liðurinn í því að fá sínu fram með heimtufrekju að losna við aðhaldið sem er á Alþingi í dag. Aðhald sem er að vísu aðeins fólgið í því að vísa mjög stórum málum til þjóðarinnar.
En það er nóg fyrir valdasjúkt og heimtufrekt lið. Skiptir engu hvort það eru X-D eða X-S sem sitja við völd. Nákvæmlega sama frekjan og yfirgangurinn.
Þess vegna óttast ég alltaf að þetta ESB umsóknarklúður (stærsta mál ríkistjórnar hins nýja Íslands) munu vinda upp á sig og það verði djöflast á þjóðinni þar til hún segi já.. fjölmiðlar, ESB áróðursdeildin, stjórnmálastéttin og ef allt gengur eftir, hinn nýi forseti sem munu leggjast sameiginlega á árar til að ýta okkur þarna inn.