Jump to content


Skapaði Guð heiminn?


11 replies to this topic

#11 Victor Laszlo

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5091 posts
  • Gender:Male
  • Location:Bunjabi

Posted 13 April 2012 - 12:21

View Postjenar, on 12 April 2012 - 19:57, said:

Strengjakenningin afsannar ekkert tilvist skapara. Það er síðan alveg augljóst mál, að mínum dómi allavegana, að sé Guð til (sem ég trúi að hann sé), þá er hann auðvitað miklu miklu miiiiklu stærri en öll trúarbrögð Jarðar gefa honum kredit fyrir. Eða ennþá stórkostlegri væri kannski réttara að segja.

Það eina sem strengjakenningin gerir, þegar guðstrúarmennirnir benda á hvernig öll lögmál alheimsins virka, þessvegna hljóti að vera Guð, er að segja, að ef það séu til óendanlega margir alheimar, sé a.m.k. einn þeirra dæmdur til að verða eins og okkar, í random-selection. Það afsannar hinsvegar alls ekki tilvist skapara. Ekkert frekar en að það sanni tilvist skapara.

Vísindin sjá og draga þá ályktun að alheimurinn eigi sér upphaf og endi. Það er því ekki óeðlilegt að draga svipaða ályktun þegar kemur að multiverse - að þessi súpa, þar sem alheimarnir mallast og Mikluhvellirnir verða í sífellu, eigi sér líka upphaf og endi. Sem skilur þá ennþá eftir spurninguna: Hvar og hvernig byrjaði þetta alltsaman?
Ég sagði 'Guð biblíunnar', með skýra skírskotun í sköpunina eins og henni er lýst í Biblíunni.

Ég fæ ekki séð hvernig strengjakenningin á að geta skeytt fleiri stoðum undir Sköpunarkenningu Biblíunnar heldur en BigBang kenningu vísindanna.

Edited by Victor Laszlo, 13 April 2012 - 23:10.

The pattern is always the same, because our instincts are dead wrong. Early clumsiness is not a verdict: it’s an essential ingredient. Because the key to developing talent isn’t “identifying” it; it’s creating safe spaces where this kind of happy clumsiness can be nurtured, with time and repetition, into grace and skill.
- Daniel Coyle

#12 jenar

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 13043 posts
  • Gender:Male
  • Location:Reykjavik

Posted 15 April 2012 - 11:20

View PostAgent Smith, on 13 April 2012 - 11:04, said:

Þegar við föttum það, þá sjáum við einnig að þetta er ekki hægt og allt hverfur á því augnabliki.

Ertu að meina þegar við föttum sannleikann um alheiminn?

View PostVictor Laszlo, on 13 April 2012 - 12:21, said:

Ég sagði 'Guð biblíunnar', með skýra skírskotun í sköpunina eins og henni er lýst í Biblíunni.

Ég fæ ekki séð hvernig strengjakenningin á að geta skeytt fleiri stoðum undir Sköpunarkenningu Biblíunnar heldur en BigBang kenningu vísindanna.

Ég get alveg skilið það, þegar Richard Dawkins er að berjast gegn trúarbrögðum í nafni vísinda. Gæti m.a.s. gert það þó ég væri ósammála honum. En þessi barátta hans gegn guðstrú, þ.e.a.s. gegn þeirri trú að eitthvert óþekkt vitsmunaafl, óþekktur skapari sem við getum kallað Guð, sú barátta hans er svolítið spúkí, því að þá er hann í raun kominn á sama stað og trúarnöttararnir. Þá er hann sjálfur farinn að boða ákveðin "trúarbrögð..."
INGEN BIL ÄR LIK MIN BIL FÖR MIN BIL ÄR EN LIKBIL.

Það er heilabúið sem er í það heila búið.

Alþingi er kauphöll og gjaldmiðillinn hugsjónirnar.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users