Jump to content


Forsetaframboðin: Vinstri menn í vanda en leita ákaft


28 replies to this topic

#1 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3489 posts

Posted 06 April 2012 - 13:02

Staða vinstri manna varðandi kjör til forseta Íslands ætlar að reynast þrautaganga - sætta sig ekki við neinn þeirra sem enn hafa lýst yfir þátttöku. Og einkennilegt er að enginn skuli vera tiltækur úr hinum ýmsu geirum þjóðfélagsins, svo fjölbreyttir sem þeir þó eru.
Úr millistéttinni svonefndu; Enginn. - Úr háskólanum: Enginn. - Úr leikarastétt; Enginn. - Úr lækna- eða vísindstéttinni: Enginn. - Úr viðskiptalífinu; Enginn.
Margir hafa verið nefndir til sögunnar, en enginn komist á flug til þess að allir þeir sem ekki þykjast geta stutt núverandi forseta myndu sameinast um.
Heyrst hefur þó - alveg nýlega, - að vinstra liðið gæti sameinast um eina persónu - og sem myndi líklega ná talsverðu fylgi. Nefnilega BJÖRK okkar, margfræg hér og erlendis.

#2 Keops

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 8701 posts

Posted 06 April 2012 - 14:45

Er það sem sagt endanlega staðfest að Ólafur Ragnar Grímsson er ekki lengur vinstri maður?

"I tell you this,

No eternal reward will forgive us now

For wasting the dawn."


Jim Morrison, 1971

http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml


#3 Hönd_Jahveh

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 193 posts
  • Gender:Male

Posted 06 April 2012 - 15:04

View PostKeops, on 06 April 2012 - 14:45, said:

Er það sem sagt endanlega staðfest að Ólafur Ragnar Grímsson er ekki lengur vinstri maður?

Ólafur er vinstri maður. Ég held að þetta sé meira spurning um hvað samfó liðið vill.

#4 Breyskur

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 767 posts

Posted 06 April 2012 - 17:44

View PostHönd_Jahveh, on 06 April 2012 - 15:04, said:

Ólafur er vinstri maður. Ég held að þetta sé meira spurning um hvað samfó liðið vill.

Vinstri einn daginn, hægri annan allt eftir því hvaðan vindurinn blæs.

#5 druslari

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1250 posts
  • Gender:Male
  • Location:Ísland
  • Interests:Bjó í 11 ár í Þýskalandi

Posted 06 April 2012 - 21:01

Hæ hæ.

Auðvitað er Hr. Ólafur Ragnar Grímsson vinstri maður og hefur alltaf verið. Hvenær hefur hann sýnt á sér eitthvað sem talist til hægri ???

Við eigum ÖLL og ALLTAF tala um forseta Íslands með virðingu hvort sem við í augnablikinu séum sammála honum eða ekki.

Þóra er of ung. Ég væri til í að kjósa hana eftir 12 til 16 ár. Munum að það að eldast er eins og að klífa fjöll. Því ofar sem maður kemst því betra er útsýnið.

Kveðjur bestar
Druslari
Bestu kveðjur
Druslari

#6 Keops

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 8701 posts

Posted 06 April 2012 - 21:53

Herrann byrjaði reyndar í Framsóknarflokknum, sem stundum er á miðjunni, stundum örlítið til vinstri.

Og núna er hann elskaður af hægri öfgamönnum eins og Jóni Vali Jenssyni og að honum hópast þjóðrembufólk og gamlir íhaldsbelgir.

95% gamalla vinstri samherja hans hafa hins vegar snúið við honum baki.

"I tell you this,

No eternal reward will forgive us now

For wasting the dawn."


Jim Morrison, 1971

http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml


#7 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10765 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 07 April 2012 - 09:12

Vinstri sinnaðir vinir mínir eru eiginlega allir á bandi Þóru. So...

Magnað þó hvað Þóra fær mikla athygli hjá sjálfhverfustu stétt landsins, fjölmiðlafólki...
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#8 Neisti

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1633 posts

Posted 07 April 2012 - 13:07

Af þeim (tiltölulega) fáu sem ég hef heyrt tjá sig um Ólaf og Þóru hef ég á tilfinningunni að fylgið fari meira eftir aldri en hægri/vinstri.
Þeir fáu "ungu" menn sem ég hef heyrt styðja Ólaf eru mjög harðir ESB andstæðingar sem vikta allt og alla á ESB kvarða.
Í eldri hópnum heyrir maður mun meiri stuðning við Ólaf og rökin margvísleg.

#9 Landinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2326 posts

Posted 07 April 2012 - 13:15

Það er úrelt að tala um vinstri og hægri í þessu. Það er miklu nær að tala um upplýst fólk vs óupplýst fólk. Það hefur komið fram að dæmigerður kjósandi Ólafs er miðaldra ómenntaður og þröngsýnn karlmaður af landsbyggðinni sem hefur ekki séð ástæðu til að eyða miklum tíma erlendis nema mögulega í nokkrum fyllerísferðum á Spáni.

#10 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27424 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 07 April 2012 - 13:26

View PostLandinn, on 07 April 2012 - 13:15, said:

Það er úrelt að tala um vinstri og hægri í þessu. Það er miklu nær að tala um upplýst fólk vs óupplýst fólk. Það hefur komið fram að dæmigerður kjósandi Ólafs er miðaldra ómenntaður og þröngsýnn karlmaður af landsbyggðinni sem hefur ekki séð ástæðu til að eyða miklum tíma erlendis nema mögulega í nokkrum fyllerísferðum á Spáni.
Hvar hefur þetta komið fram?

Hugsa samt að vinnandi fólk sé eitthvað öðruvísi innréttað en gróðærispakkið fyrir sunnan sem í eigin sjálfselsku og egóisma, eyðileggur allt í kringum sig og sérstaklega framtíð afkomenda okkar sem og hrunið kristallar í allri sinni mynd.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users