Skaz, on 10 April 2012 - 19:28, said:
Ég hef skoðað þetta talsvert í gegnum árin og ég tel að forsetaþingræði eins og viðhaft er í nokkrum löndum og þá sérstaklega Frakklandi sé gáfulegasta leiðin.
Það er einfaldlega það mikið af klíkum hérlendis að það þarf nauðsynlega að dreifa valdinu eins mikið og kostur er. Það þýðir ekki að hafa það þannig að einn hópur geti náð löggjafanum á sitt vald og verið kominn með framkvæmdarvaldið og þar af leiðandi dómsvaldið í vasann.
"checks and balances" er nauðsynlegt fyrirbæri sem að við verðum að iðka. Og þetta kerfi hentar til þess.
Get alveg fallist á semi-forsetaræðið sem málamiðlun. Það er í grunninn ekkert mikið öðruvísi en hreint forsetaræði. Held þó að checks and balances verði skilvirkara í hreinræktuðu forsetaræði...
Brodd-Helgi, on 10 April 2012 - 19:31, said:
Þingræði? Hringir það einhverjum bjöllum? Kviknar ljóstýra þarna uppi eða?
ÞINGRÆÐI OG LÝÐRÆÐISLEGA UPPBYGGÐAR STOFNANIR! Dísös.
það er kerfi sem reynist langbest til lengri tíma litið og hefur margsannað sig. það tryggir jafnframt mesta lýðræðið.
Fólk er að rugla öllu saman í graut. það er ekki óvenjulegt að meirihluti fólks sé tímabundið ekki sammála meirihluta þings og þar til gerðra lýðræðislegra stofnanna. það er alvanalegt og ekert merkilegt. Á fjögra ára fresti, í mesta lagi, gefst fólki kostur á að skipta um meginvaldhafa sem er þingið. Löggjafasamkundan.
það að ætla aldrei að gefa löggjafasamkundunni og framkvæmdarvaldi tækifæri á að vinna verk þau sem þarf að vinna - það er ávísun á kaos og upplausn. það eru vinnubrögð eins og sjallar standa fyrir núna. Stoppa öll mál með málþófi og óþverrbrögðum.
Hvorki þing- né forstaræði tryggja lýðræði eitt og sér. Það eru auðvitað mennirnir sem stjórna, sem það gera. Og ég veit nú ekki hvort þingræðið hafi endilega reynst best. Það var í gegnum þingræðiskerfið, sem nasistar komust til valda í Þýskalandi í byrjun. Þeir strippuðu einmitt þýska forsetann öllum völdum, tóku m.ö.o. burt öryggisventilinn og við vitum hvernig fór. En kennum við þingræðinu per se um það? Held varla.
Og af því að þú ert svo einlægt hneykslaður á því að íslenski forsetinn beri enga ábyrgð á stjórnarathöfnum sínum, vissirðu að handhafar forsetavalds gera það ekki heldur? Þori að veðja að þú hafðir ekki hugmynd um það. Forseti Alþingis, forsætisráðherra og forseti Hæstaréttar geta gert allskonar gloríur á meðan þeir eru handhafar forsetavalds. Án þess að þurfa að taka nokkra ábyrgð á þeim athöfnum....
Edited by jenar, 10 April 2012 - 19:55.
INGEN BIL ÄR LIK MIN BIL FÖR MIN BIL ÄR EN LIKBIL.
Það er heilabúið sem er í það heila búið.
Alþingi er kauphöll og gjaldmiðillinn hugsjónirnar.