Þjóðin á svo að fá að kjósa um það í sumar hvort við höldum áfram með EES samninginn eða segjum honum upp.
Quote
ESB vill aðild að Icesave-málinu:
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill fá aðild að Icesavemálinu sem rekið er fyrir EFTA dómstólnum. Framkvæmdastjórnin tekur undir kröfur Eftirlitsstofnunar EFTA í málinu.
Icesave málið hefur ekki verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið - Eftirlitsstofnun EFTA vísaði málinu til EFTA dómstólsins í desember eftir að meirihluti þjóðarinnar hafnaði Icesavesamningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hópur lögfræðinga, sem fer með mál Íslands, hefur skipst á greinargerðum og andsvörum við lögfræðinga eftirlitsstofnunarinnar undanfarið en í dag rann einmitt út frestur ESA til að svara greinargerð Íslendinganna sem aftur fá mánuð til að svara þeim andsvörum. Dóms er að vænta undir lok árs.
Reglur um meðferð mála fyrir EFTA dómstólnum leyfa framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem og hverju og einu aðildarríki ESB og EFTA, að taka þátt í málarekstri fyrir dómstólnum með tvennum hætti. Annaðhvort með því að senda dómstólnum athugasemdir vegna þess máls sem er til úrlausnar eða með því að krefjast meðalgöngu í málinu - það er að fá aðild að málarekstrinum sjálfum. Fyrri leiðin er nokkuð algeng og frestur til að leggja fram athugasemdir í Icesavemálinu er ekki runninn út. Það er hins vegar mun sjaldgæfara að aðrir krefjist aðildar að dómsmálum.
Áður en frestur til að krefjast aðildar að Icesave-málinu rann út fór framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fram á að fá aðild að því og styðja þannig við Eftirlitsstofnun EFTA í málarekstrinum gegn Íslandi. Dómstóllinn þarf að heimila það og íslensk stjórnvöld hafa nokkra daga til að gefa álit sitt á því.
Edited by Chrolli, 11 April 2012 - 19:13.









