Feminismi
#1
Posted 12 April 2012 - 21:04
Er á síðustu metrunum á þessum vef en er þrjóskari en andskotinn og kannski bjartsýnni en flest fífl.
Rísið upp málverjar og sýnið sjálfsvirðingu.
Kær kveðja
Óradís.
Allir í leik
Allir í leik
Nú er hún Óradís komin á kreik
http://www.facebook....tir?ref=tn_tnmn
#2
Posted 12 April 2012 - 21:32
#3
Posted 12 April 2012 - 21:43
Óradís, on 12 April 2012 - 21:04, said:
Mín athygli náði ekki lengra en þetta.
1. Mér finnst óréttlátt að þess sé alltaf krafist af konum að þær
berjist fyrir réttindum karla. Það er ekki rétt hjá manninum hér að
ofan að kvenréttindi hafi ekki síst orðið til fyrir þátttöku íslenskra
karlmanna í jafnréttisbaráttunni. Þann árangur sem náðst hefur á ég
kynsystrum mínum að þakka. Mín barátta sem femínista snýst um að skapa
betri heim fyrir alla. Hún snýst ekki um að gera konum auðveldara að
verða einræðisherrar eða að beita ofbeldi, hún snýst um að skapa
jarðveg þar sem möguleikar kynjanna eru jafnir í raun. Ekki bara á
pappír.
Ég staldraði við þessa setningu
Mér finnst óréttlátt að þess sé alltaf krafist af konum að þær
berjist fyrir réttindum karla.
og síðan þessa setningu.
Mín barátta sem femínista snýst um að skapa
betri heim fyrir alla.
Þessar tvær setningar passa ekki saman. Ef konur eru ekki til í að berjast fyrir réttindum karla í nafni jafnréttis, þá geta þær ekki skapað betri heim fyrir alla.
Edited by Kjosandi, 12 April 2012 - 21:45.
#4
Posted 12 April 2012 - 21:48
Það hallar á karlmenn á mikilvægari sviðum en þar sem hallar á konur. Af hverju haldið þið að lífslíkur karlmanna séu styttri?
Í verki eru feministar að berjast fyrir sérhagsmunum kvenna, að það sé einstaka sinnum fjallað um stöðu karla breytir þessu ekki.
Edited by Chrolli, 12 April 2012 - 21:50.
#5
Posted 12 April 2012 - 23:14
Er á síðustu metrunum á þessum vef en er þrjóskari en andskotinn og kannski bjartsýnni en flest fífl.
Rísið upp málverjar og sýnið sjálfsvirðingu.
Kær kveðja
Óradís.
Allir í leik
Allir í leik
Nú er hún Óradís komin á kreik
http://www.facebook....tir?ref=tn_tnmn
#6
Posted 13 April 2012 - 00:50
Hún er vel meinandi, en blind á þá þversögn og hræsni sem hefur eyðilagt femínismann eins og hann er skilgreindur.
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.
#7
Posted 13 April 2012 - 10:49
Óradís, on 12 April 2012 - 23:14, said:
Bottom lænið er að Hildi er nákvæmlega sama um kynjajafnrétti.
Ekkert nýtt hér á ferð.
- Daniel Coyle
#8
Posted 13 April 2012 - 11:15
fleebah, on 13 April 2012 - 00:50, said:
Hún er vel meinandi, en blind á þá þversögn og hræsni sem hefur eyðilagt femínismann eins og hann er skilgreindur.
Ég tel þig nú góðan að hafa lesið þessa grein. Kannski þú sért orðinn hálffemínískur.
#9
Posted 13 April 2012 - 11:24
Menntun kvenna í þriðja heiminum er t.d. algert grundvallatriði við að draga úr offjölgun mannkyns. Þar á að greiða leið kvenna umfram karla.
Annars gæti alveg verið kynjamunur, talsvert mikið konum í hag. Mér finnst þær t.d. yfirleitt betri stjórnendur er karlar. Efa að hér hefði orðið nokkurt bankahrun með konur ráðandi í viðskiptlífinu.
Og það er eitthvað sem veldur því að konur virðast á Vesturlöndum vera að yfirtaka menntakerfið. Gleymi því ekki þegar yngri sonur minn lauk stúdentsprófi fyrir nokkrum árum. 2/3 stúdentanna á útskriftinni voru konur. Og ALLIR dúxarnir á prófunum, nema einn, voru stúlkurnar!
Og stefnir ekki allt í því að við kjósum að nýju konu sem forseta á sumri komanda og losum okkur við þreyttan gamlan karl sem orðinn er of uppfullur af sjálfum sér?
"I tell you this,
No eternal reward will forgive us now
For wasting the dawn."
Jim Morrison, 1971
http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users








