Jump to content


Feminismi


53 replies to this topic

#21 Hrafnkell Daníels

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2638 posts
  • Gender:Male

Posted 13 April 2012 - 22:17

View PostKeops, on 13 April 2012 - 19:38, said:

NEI.

Þú verður að nefna svið og skýr dæmi.

Ég hef ekkert séð ennþá, sem ekki getur talist jákvæð mismunun, í raunininni í þágu jafnréttis.
Ég sé ekkert jákvætt við mismunun. Nákvæmlega ekki neitt og þegar á að fara að kalla það jákvætt að taka konur fram yfir karlmenn í stað þess að vinna á jafnréttisgrundvelli þá er það mismunun og mismunun er ALLTAF neikvæð. Alltaf.

#22 Keops

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 8701 posts

Posted 14 April 2012 - 09:30

Jákvæð mismunun er gamalt hugtak um aðgerðir til að styrkja stöðu þjóðfélagshópa sem sætt hafa alvarlegri kúgun. Get ekki ímyndað mér að þú þekkir það ekki. Dæmi um slíkt eru t.d. kynjakvótar sem stundum hafa verið viðhafðir í prófkjörum hér á landi, sem jafnvel hafa gert konur að þingmönnum í stað karla. Klassískt dæmi eru auðvitað aðgerðir í Bandaríkjunum þar sem hörundsdökkt fólk hefur verið tekið fram yfir hvíta við innritanir í háskóla. Frá Svíþjóð kannast ég við jákvæða mismunun í þágu karla, þegar um var að ræða námsgreinar, t.d. félagsráðgjöf og hjúkrunarfræðingastörf, sem nær eingöngu konur höfðu sótt.

"I tell you this,

No eternal reward will forgive us now

For wasting the dawn."


Jim Morrison, 1971

http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml


#23 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10765 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 14 April 2012 - 13:33

View PostKjosandi, on 13 April 2012 - 11:15, said:

Ég tel þig nú góðan að hafa lesið þessa grein. Kannski þú sért orðinn hálffemínískur.
eg er i raun feministi skv. skilgreiningunni. gallinn er ad praktikin er svo sur og skemmd ad eg get ekki kallad mig feminista. praktikin fer svo oft ut fyrir velsaemismorkin og ut i ofgar ad thetta hugtak er thi midur ordid skemmt.

vardandi thessa grein tha er hildur EKKI ad tala fyrir munn allra feminista heldur adeins sins sjalfs. samt byrjar fyrsta setningin a thvi ad nefna feminista alla.

en thvi midur fellur hildur i thann pytt ad fara i "vid/thid", "karlar vs. konur" i atridi númer 1. thar med er "gerum heiminn betri" innkoman bitlaus. hildi er itrekad bent a thetta (eg gerdi thad sjalfur a facebook sidu vinkonu minnar sem er vinur hildar) en hun bara ser thetta ekki. a medan rottaekir feministar sja ekki hraesnina, tviskinningunn ne ofgarnar i eigin ordum, jafnvel thegar theim er bent a thad, itrekad, skyrt og skorinort, tha verdur feminismi gagnrindur harkalega. og folk eins og eg thvertekur fyrir ad kalla sig feminista og segir frekar "janrettissinni", nokkud sem fer i taugarnar a feministum.

thetta innlegg er i bodi iPad.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#24 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27425 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 14 April 2012 - 14:41

Femínismi notar jafnréttishugsjónina sem Trojan.

Femínismi er að grunni til hatur út í karlmenn og birtist þannig oft og iðulega bersýnilega og opinberlega, ítrekað meira að segja.

En rétt eins og glæpamenn sem nota sér hjálparstarfssemi til fjáröflunar fyrir sjálfa sig, þá notar femínisminn jafnréttið málstað sínum til framgöngu.

Hvernig get ég fullyrt þetta?

Jú, með því að skoða baráttumál femínistanna. Þeir hunsa algerlega allt sem heitir jafnrétti í verki. Hvort sem það snýst um stöðu skúringarkonunnar, rétt heimavinnandi konunar, stöðu kvenna í múslimalöndum, stöðu karlmanna í mörgum málaflokkum eins og forræðismálum, rétt vændiskonunar eða hvaða málaflokk sem er.

Einasta sem vakir fyrir femínistum eru peningar og völd sjálfum sér til handa og skerðingu á þessum sömu atriðum fyrir karlmenn. Enda eru allir helstu femínistar sníkjudýr á kerfinu oftast í gegnum stjórnmálin.. og þeim hefur sko fjölgað í tíð þessarar ríkistjórnar sé eitthvað að marka einn kunningja minn!

Edited by feu, 14 April 2012 - 14:42.


#25 Keops

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 8701 posts

Posted 14 April 2012 - 18:43

Femínisminn byggir á róttækri fræðilegri greiningu á því hvernig kynferðið er að mestu leyti félagslega tilbúið fyrirbæri - "socially constructed" - og felur í sér mörg lög af kúgun. Jú, karlmennskan og allt það er auðvitað líka alveg jafn tilbúið kúgunarfyrirbæri. Eða eins og Simone de Beauvoir sagði, það fæðist enginn sem kona, heldur verður að konu.

Ég skil vel að and-frjálslyndur afturhaldsseggur eins og feu hatist út í femínismann. Það fæðist jú enginn sem feu, heldur verður það, því miður.

Ég tek ofan fyrir femínistum, af báðum kynjum. Andúðin og ofsahatrið gegn þeim sýnir að þjóðfélagsgreining þeirra er hárbeitt og það svíður undan henni.

Edited by Keops, 14 April 2012 - 19:21.

"I tell you this,

No eternal reward will forgive us now

For wasting the dawn."


Jim Morrison, 1971

http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml


#26 Chrolli

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4723 posts
  • Gender:Male

Posted 14 April 2012 - 22:00

Það er margt sem bendir til þess að stór hluti persónuleikans sé meðfæddur, líka kynhegðun. Menningin ýkir svo kynímyndirnar en er hinsvegar ekki eina rótin eins og feministar halda.

#27 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7442 posts

Posted 14 April 2012 - 23:26

Ég þekki ekki til feminísma á heimsvísu. Ég sé bara hvernig hann er praktísaður hér á fróni. Ég er ekki hrifinn af því.

Jákvæð mismunun er ágætis hugtak og getur átt rétt á sér. Ef við viljum ná jafnrétti, leiðrétta misrétti, þá viljum við gjarnan grípa inn í með einhverjum aðgerðum. Það að hvetja konur til að taka þátt í stjórnum fyrirtækja og setja kynjakvóta getur verið ágætishugmynd. Þetta er eitt dæmi jákvæðrar mismunar.

Hugmyndin er þá að atvinnulífið njóti góðs af því að auka þátttöku kvenna. Önnur jákvæð mismunun gæti verið að hvetja karla til að hefja nám í hjúkrunarfræði. Ekki veit ég hvort það sé gert, en það gæti verið jákvæð mismunun. Það gæti talist gott fyrir heilbrigðisgeirann að fá karlkyns hjúkkur.

Hins vegar megum við ekki ganga svo langt að jákvæð mismunun verði algjör mismunun. Mínus og mínus gera nefnilega ekki plús.
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#28 Chrolli

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4723 posts
  • Gender:Male

Posted 15 April 2012 - 01:02

"Jákvæð" mismunun tekur ekki mark á kostum einstaklingsins, kyn verður mikilvægara en hæfni. Mismunun getur aldrei verið jákvæð. Ef konur vilja sömu laun og stöður þá verða þær að standa sig jafn vel í samkeppni og karlar. Því miður er það sjaldan raunin og margar konur bíða eftir stöðuhækkun vegna kyns í stað þess að vinna fyrir henni.

Edited by Chrolli, 15 April 2012 - 01:05.


#29 Hrafnkell Daníels

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2638 posts
  • Gender:Male

Posted 15 April 2012 - 02:33

Hverju hefur þessi "jákvæða" mismunun skilað okkur?
Jú einhverjum konum á þing og í stjórnun fyrirtækja sem er jú ágætt en hafa þær metnað í það sem þeim var hent inní?
Nei því miður.
Oft eru þetta konur sem láta leiðast að vera með því þær gera ekki ráð fyrir að komast í hærri stöður og þegar það gerist eru þær alegerlga úti á túni og vita ekkert hvað þær eiga að gera.
Nær væri að meta fólk að verðleikum en að vera með svona bull því mismunun er alltaf neikvæð þegar allt kemur til alls.

#30 Keops

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 8701 posts

Posted 15 April 2012 - 08:20

Þið notið algerlega sömu röksemdafærslur og bandarískir rasistar gegn jákvæðri mismunun blökkumanna í þarlendum háskólum.

Þið mynduð eflaust líka vera á móti jákvæðri mismunun í þágu háskólamenntunar kvenna í múslimalöndum. Segjum t.d. í Saudi Arabíu?

"I tell you this,

No eternal reward will forgive us now

For wasting the dawn."


Jim Morrison, 1971

http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml






1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users