Niðurstaða Landsdóms?
#1
Posted 16 April 2012 - 23:22
Frelsi, velmegun og friður!
#2
Posted 17 April 2012 - 00:17
#3
Posted 17 April 2012 - 00:22
Chrolli, on 17 April 2012 - 00:17, said:
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.
#4
Posted 17 April 2012 - 01:34
Niðurstaða dómsins er orðið algjört aukaatriði og flestum er líklega skít sama hvernig hann verður, því það breytir ekki neinu hvort Geir verður dæmdur sekur eða saklaus.
Hvítþvottur stjórnmálastéttarinnar hefur farið fram og einum var fórnað í það verkefni.
#5
Posted 17 April 2012 - 08:12
Mín spá er að niðurstaða allra bankahrunsmála verði sýknun, hugsanlega fyrir utan einhver smá bókhaldsbrot.
Hrunið var hópslys heillar þjóðar, sem hefur óeðlilega mikla áhættuhegðun í genunum og því fór sem fór. Auðvitað bera nokkrir tugir fjármálamanna og stjórnmálamanna mesta ábyrgð, en áþreifanleg lögbrot, sem hægt verður að dæma fyrir, áttu sér samt ekki stað, nema hugsanlega í algerum undantekningartilfellum.
"I tell you this,
No eternal reward will forgive us now
For wasting the dawn."
Jim Morrison, 1971
http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml
#6
Posted 17 April 2012 - 08:25
tdi, on 17 April 2012 - 01:34, said:
Niðurstaða dómsins er orðið algjört aukaatriði og flestum er líklega skít sama hvernig hann verður, því það breytir ekki neinu hvort Geir verður dæmdur sekur eða saklaus.rir
Hvítþvottur stjórnmálastéttarinnar hefur farið fram og einum var fórnað í það verkefni.
Það er rétt, hvítþvottur stjórnmálastéttarinnar hefur farið fram. Ég er reyndar alveg sammála því, að sönnunarbyrði þurfi að vera nokkur og menn því saklausir uns sekt er sönnuð, en það gildir um öll dómsmál. Í þessu máli er ekki einu sinni pressa á að koma með einhvern sýndardóm, til að láta líta út fyrir að það sé verið að gera upp hrunið. Vegna þess að þjóðin gerir akkúrat enga kröfu um það. Þvert á móti, vorkenna flestir Geir alveg óskaplega og þegar hann verður sýknaður, þá munu flestir Íslendingar anda léttar.
Íslendingar eru skrítin þjóð. Ég geng kannski ekki svo langt að segja að hún sé siðlaus, en stjórnmálalegt siðferði hennar fær núlleinkunn. Við sjáum það við uppgjör þessa hruns. Nógu margir virðast allavega tilbúnir að kjósa sömu siðleysingjana og áttu þátt í hruninu. Aftur og aftur. Horfið á Árna Johnsen. Dæmdur fyrir hreinan og kláran þjófnað, sem hann stundaði sem þingmaður. Þegar hann hafði afplánað dóminn, var hann kosinn beint inn á þing aftur. Og það er ekki eins og hann hafi þurft að berjast eitthvað mikið fyrir því, leiðin var mjög greið fyrir hann aftur í þingsali.
Veit ekki með ykkur, en ég hef ekki lengur neinar væntingar um brandarann "Nýja Ísland"........
Það er heilabúið sem er í það heila búið.
Alþingi er kauphöll og gjaldmiðillinn hugsjónirnar.
#7
Posted 17 April 2012 - 09:43
Sýknun!
Edited by Skrolli, 17 April 2012 - 09:44.
Groucho Marx
#8
Posted 17 April 2012 - 11:15
Að 40 þúsund fjölskyldur séu í vanskilum er dæmigerð um ruglið sem grassérar hér í opinberri umræðu. Talan 40 þús. er líklega talan yfir þá sem eru tímabundið í neikvæðri eignastöðu, sem flestir eru í skilum. Ég man ekki vanskilafjöldann, hleypur á nokkrum þúsundum ef ég man rétt.
(Fyrir utan að þessi 40 þúsund sem líklega eru þeir með neikvæða eignastöðu eru varla fjölskyldur nema kannski þriðja hvert skipti, flest heimili á landinu eru annað hvort fólk sem býr eitt eða fólk sem ekki á börn, barnafólk er í minnihluta.)
Edited by Keops, 17 April 2012 - 11:31.
"I tell you this,
No eternal reward will forgive us now
For wasting the dawn."
Jim Morrison, 1971
http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml
#9
Posted 17 April 2012 - 11:45
Skrolli, on 17 April 2012 - 09:43, said:
Sýknun!
Það á alveg jafn við um Geir og Lalla - það eru ekkert til sem heitir vafaatriði. Ef vafi er þá ber að sýkna og þar eru allir jafnir að lögum.
Miðað við við málflutninginn og það sem þar kom fram virðist skýkna í þessu máli óhjákvæmileg.
#10
Posted 17 April 2012 - 11:50
Falcon1
icelandphotoblog.com
Íslenska þjóð - RÍS UPP!
Fyrrum voru fálkar fluttir lifandi út í stórum stíl, því erlendir þjóðhöfðingjar sóttust eftir að eignast íslenska fálka. Íslenski fálkinn er stærsta fálkategund sem til er og er eftirlæti fuglaskoðara. Af Íslandsvef
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users








