Jump to content


Endalok olíualdar


1537 replies to this topic

#1401 fleebah

    Talsmađur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10766 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góđur matur.

Posted 03 April 2012 - 10:20

Hvað með þetta?
Reyndar ekki nýjar fréttir með þörungana en þetta virðist vera vænlegra en repjuolían því undir hana þarf svo gífurlegt landsvæði til að anna innlendri eftirspurn að einhverju marki.

Quote

Þörungar geta leyst af innflutt eldsneyti

Lífeldsneyti má framleiða úr þörungum í slíku magni að komi í staðinn fyrir innflutt eldsneyti. Orkusparandi ljósdíóðutækni og aðgangur að jarðhita gera aðstæður hér til framleiðslunnar einstakar. Hægt væri að flytja út lífeldsneyti.

Sérstakar aðstæður hér á landi gætu gert hagkvæma framleiðslu lífeldsneytis úr stórþörungum, eða þangi. Að sögn Ásbjörns Torfasonar, framkvæmdastjóra Vistvænnar orku ehf. gæti eldsneyti sem framleitt væri með þessum hætti komið í stað alls innflutts eldsneytis og er því eftir nokkru að slægjast. „Ísland gæti meira að segja komist í þá stöðu að flytja út eldsneyti sem framleitt væri hér innanlands,“ segir hann.

Fyrirtækið hyggur á sýnatöku í sumar þar sem leitað verður að hentugum svæðum til þörungaræktunarinnar. „Við auglýstum eftir líffræðingum í þessa vinnu og höfum fengið margar góðar umsóknir frá mjög hæfu fólki,“ segir Ásbjörn. Í framhaldinu væri svo hægt að hefja tilraunaræktun á hafi úti á völdum stöðum á landinu.

Erlendis eru hafnar tilraunir með vinnslu á lífeldsneyti úr þörungum, svo sem hjá fyrirtækjum á borð við Statoil, DuPont og Novozymes. Skortur á hentugum svæðum hamlar hins vegar ræktun og nýtingu ytra, sem og aðgangur að orkukostum til eftirvinnslu þar sem hitaskiljun yrði notuð til að vinna lífeldsneyti úr þörungunum.

Hér segir Ásbjörn ýmsa ákjósanlega staði þar sem setja mætti upp verksmiðju í nágrenni þörungaræktunarinnar. Til dæmis mætti horfa til jarðvarmavirkjana á Reykjanesi, sem og á Norðurlandi, á Þeistareykjum og við Kröflu.

Vænlegasta kostinn telur Ásbjörn að tengja framleiðsluna við þann mikla hita sem fá mætti með djúpborunarverkefnum, en einnig væri hægt að nýta fyrirliggjandi aðstöðu til framleiðslu við lægra hitastig.

Úr þaranum er hægt að framleiða nokkrar tegundir af eldsneyti, svo sem lífgas, bioetanól og svo biobutanól sem sé mjög líkt bensíni. Síðan megi líka hafa not af hliðarafurðum framleiðslunnar og nota til dæmis í dýrafóður eða sem áburð.

Vistvæn orka hefur náð árangri með þróun á ljósdíóðutækni sem notuð er við lýsingu í gróðurhúsum við margvíslega ræktun. Með tækninni hefur verið hægt að draga verulega úr orkunotkun við ræktunina, eða um helming eða meira miðað við hefðbundna lampa sem notaðir eru við ræktunina.

Þessa tækni segir Ásbjörn svo lykilinn að árangri sem ná megi í þörungaræktun. „Hún er þessi litla þúfa sem veltir þessu þunga hlassi,“ en tilraunir fyrirtækisins við þararæktun hófust þegar erlent stórfyrirtæki í fiskeldi leitaði til Vistvænnar orku um lýsingu fyrir ungplöntur.

Hér heima hefur fyrirtækið þegar, í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Atvinnuþróunarfélag Norðurlands, hafið tilraunir með ræktun á Reykjum í Ölfusi í gróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands. „Á því stigi framleiðum við ungplöntur,“ segir Ásbjörn, en þegar þær hafa náð þeirri stærð að þær þola flutning þá eru plönturnar fluttar í sjó þar sem þær fá bæði næringu og sólarljós.

Með þeirri tækni sem Vistvæn orka hefur þróað við framleiðslu á ungplöntunum er hægt að framleiða mjög mikið magn af þörungum og tryggja þannig þá magnuppskeru sem þarf úr sjó til að standa undir framleiðslunni.

Miðað við það magn af eldsneyti sem flutt var til landsins árið 2011 segir Ásbjörn að miðað við norska útreikninga þyrfti tvær milljónir tonna af lífmassa til að framleiða samsvarandi magn af lífeldsneyti. „En það er algjörlega raunhæft að rækta þetta í þessu magni,“ segir hann og vísar til þess að erlendis sé þegar í gangi stórfelld stórþörungaframleiðsla, bæði til framleiðslu á lífgasi og svo jafnvel til manneldis líka. „Í tilraun í Noregi voru menn að fá svona 40 til 50 tonn af þurrvigt úr hverjum hektara.“

"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#1402 appel

    Orđugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9847 posts

Posted 04 April 2012 - 02:09

Margar góðar hugmyndir til um framleiðslu á orku.

Gallinn er ávallt sá sami, hvernig á að koma þessari orku til skila. Bæði vantar dreifikerfi og svo jú auðvitað bílaflotann sem á að nýta þessa orku. Oftast eru svona "grænir" bílar alveg rándýrir. Nýjir bílar kosta bara of mikið í dag fyrir meðal-Jón. Svo þegar þú bætir ofan á það einhverjum nýjungargjörnum orkugjöfum, t.d. vetni, metan eða rafmagni, þá tvöfaldar þú verðið á bílnum, þannig að fólksbíll kostar einsog hálft einbýlishús.

Fyrir mitt leyti þá er það ekki bensínið sem er dýrast við bílinn, heldur bara bíllinn sjálfur, viðhald á honum og jú tryggingar. Bensín... ég kaupi kannski fyrir 200 þúsund á ári, 16-18 þús á mánuði. Dugar mér. Ekki mjög stór kostnaðarliður fyrir mig. Þannig að ég er ekki að fara kaupa bíl á 10 milljónir bara útaf því að hann brennir þörungum.
Frelsi frá stjórnvöldum ER frelsi!
Frelsi, velmegun og friđur!

#1403 kadlinn

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 423 posts
  • Gender:Male

Posted 04 April 2012 - 23:28

Butanol má nota á bensínvélar án nokkurra breytinga.
- Sapere aude -

#1404 Fjalldrapi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5050 posts

Posted 05 April 2012 - 14:45

Eru engin vandamál með að breyta bensínhákum fyrir hálfa milljón þannig að þeir geti notað metan ? Einhver talaði um að álag væri á kælikerfið, það skapaðist meiri hiti...?
Það er náttúrulega bara ein stöð uppi í Ártúnshöfða með metani, eru þær fleiri, ein á Akureyri ? Það tekur víst dágóða stund að fylla á kútana.

#1405 jukn

    Rithćfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4809 posts
  • Gender:Male

Posted 05 April 2012 - 15:01

View PostFjalldrapi, on 05 April 2012 - 14:45, said:

Það er náttúrulega bara ein stöð uppi í Ártúnshöfða með metani, eru þær fleiri, ein á Akureyri ? Það tekur víst dágóða stund að fylla á kútana.
Það á að vera ein í Hafnarfirði líka

#1406 Vinni

    Málóđur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 16600 posts
  • Gender:Male
  • Location:Deep Space 9

Posted 05 April 2012 - 17:08

View Postfleebah, on 28 March 2012 - 08:56, said:

Veit einhver hér hvað kostar að búa til vetni sem er jafngildi eins líters af bensíni? Eða hvað það þarf mörg wött til þess?

Fann svarið hér.
http://uk.answers.ya...17124022AANICYK

[...] so you could presumably get 1 litre of pure hydrogen for 240 watts in 1 and 1/3 minutes.

Nú er ég alveg blautur bak við eyrun í rafmagnsfræðum hvað varðar útreikninginga en ég ætla að reyna:
Ef það tekur 80 sekúndur að framleiða 1 líter af vetni, og 240 wött, þá eru framleiddir 45 lítrar á klst og það þarf 10.800 wött til þess.

kílówattstundin er á uþb. 12 krónur í dag. 10,8 kwst kosta tæplega 130 kr. Þá kostar 130 kr. að framleiða 45 lítra af vetni eða 2,9 krónur per líter.

Nú veit ég ekki hvað orkuinnihald vetnis er mtt. bensíns en ef það er álíka mikið þá sýnist mér að vetni sé bara ansi góður kostur.
Þessi bútur sem þú vitnar til á líklegast við um framleiðslu á einum lítra af vetnisgasi nærri standard aðstæðum. Ekki rugla því saman við 1. lítra af fljótandi vetni. Útreikningarnir í uppafi svarsins eru síðan rangir og mér sýnist lítið á því að byggja yfirleitt.

Samkvæmt Wikipedia er algeng (réttara sagt góð) nýtni við að búa til vetni með rafgreiningu 50-75% og til að búa til 1.kg af vetni þarf 50-79 Kwh (kílóvattstundir). Notum bara 60Kwh/kg til gamans. Og notum þessar 12 kr/Kwh ..

60x12=720kr.

Til að bera þetta saman við t.d bensín þá er orkan í 1.kg af vetni ~123MJ en í 1.kg bensíni er orkan verulega minni, eða ~47MJ.
Þar sem bensín er selt í lítravís þá er þægilegra að nota 34MJ per lítra. Heimild
123/34~=3,6
Fyrir þessar 720 kr fáum við semsagt vetni sem hefur sama orkuinnihald og 3,6 lítrar af bensíni.
Það gerir sirka 200kr á lítra.

Ágætt að hafa í huga að raforkuverð til massaframleiðslu á vetni væri væntanlega talsvert lægra. Síðan er það spurning hvernig á að nýta vetnið í bílnum, hvort um er að ræða brunahreyfil með svipaða nýtni og þessir hefðbundnu, eða vetnissellu með mun hærri nýtni. Ef raforkuverðið er helmingi lægra og nýtnin á vetninu tvöföld á við það sem gerist í bensínvélum þá gætum við verið að tala um ígildisverð ~50kr á lítra á móti bensíni.

*Þetta er snöggsoðið innlegg og gæti breyst ef ég rekst á vitleysur.

Edited by Vinni, 05 April 2012 - 17:10.

=^..^=
In 1787, shortly after the close of the Constitutional Convention in Philadelphia, a woman interested in the proceedings approached Benjamin Franklin. "Well, doctor," she asked, "what have we got, a republic or a monarchy?" The venerable champion of American liberty replied, "A republic, madame, if you can keep it."
Zerohedge

#1407 left

    Málfćr

  • Notendur
  • PipPip
  • 612 posts

Posted 05 April 2012 - 20:18

The End of the Saudi Oil Reserve Margin

Riyadh is less and less able to cushion supply shocks as it consumes more and more of its own oil.

By JIM KRANE

Doha, Qatar

President Obama's sanctions plan on Iran follows an old Mideast policy playbook. Western moves against an oil-exporting country take place with the cooperation of Saudi Arabia. U.S. strategy requires the Saudis to ramp up production and replace Iranian exports in hope of avoiding a damaging spike in prices.

It's a familiar scenario: At one time or another, the Saudis have been called upon to replace exports from Iran, Iraq, Kuwait and, most recently, Libya. The idea is to have your cake and eat it—to meet U.S. foreign policy goals without disrupting oil markets and antagonizing the American motorist.

But the old playbook may have to be torn up. This time Saudi Arabia is struggling to assume its usual role as the oil market's swing supplier. This can be seen in current market tightness and in U.S. gasoline prices, which are edging toward $4, a dangerous prospect at election time.

The Obama administration's sanctions plan acknowledges Saudi weakness. Rather than try to impose a blanket ban, it has introduced piecemeal measures, such as encouraging China and South Korea to demand discounts for continued imports of Iranian crude. For the first time, Saudi Arabia's vaunted spare capacity appears insufficient to cover the loss of a major exporter.

When revolution last year took Libya's 1.5 million barrels a day off the market, the Saudis and other producers were able to fill the gap. A slack oil market helped. But Iran has been exporting roughly 2.2 million barrels a day. And now something else is afoot.

Saudi Arabia isn't the same depopulated petro-state that the West found itself so dependent on in the 1970s. The kingdom and its oil-rich neighbors have seen their populations and industrial bases swell. They have become huge consumers of their own energy. The ruling sheikhs have cemented themselves in power by erecting energy-driven welfare states which provide some of the world's cheapest electricity, natural gas and gasoline.

With domestic electricity demand rising 10% per year in Saudi Arabia, the kingdom now devours more than a quarter of its oil production—nearly three million barrels per day. International Energy Agency figures show that Saudi Arabia now consumes more oil than Germany, an industrialized country with triple the population and an economy nearly five times as large.

In the medium-term, Saudi Arabia is in danger of losing its all-important "reserve margin" of oil production that so often calms market volatility. Loss of this spare capacity would remove a crucial safety mechanism from the global economy, to say nothing of tying America's hands when it comes to future moves against oil states.

Longer-term, the kingdom's very exports are at risk. A projection by Jadwa Investment of Riyadh shows that, at current rates of consumption growth, the Saudi reserve margin will dwindle until it disappears sometime before 2020. At that point, the Saudis would begin diverting oil destined for export into the domestic market.

Following the trend further, Jadwa finds that Saudi Arabia will consume its entire production capacity of 12.5 million barrels per day at home by 2043. London's Chatham House finds that the kingdom will become a net oil importer even earlier, by 2038.

These projections don't take into account the possibility that Saudi Arabia's production could rise above an expected plateau of 13 million barrels a day, or that ruling sheikhs might stop encouraging their citizens to waste energy by dropping some of the world's deepest fossil-fuel subsidies.

As U.S. drivers are now learning, however, the Gulf countries have limited ability to increase production beyond current capacity, and they show even less ability to curb their domestic demand. When it comes to competition for supply, they will retain a natural advantage. They own the supply.

America's Middle East confrontations have long depended on Saudi spare capacity. Without it, as the faceoff with Iran already shows, Washington—and the world—will be less free to intervene in the region without raising gasoline prices at home. And unless the Gulf Arab monarchies can gain control of their own consumption, their role in global energy markets will dwindle, as prices grow even more volatile.

Wall Street Journal
Úllen dúllen doff
kikke lane koff
koffe lane bikke bane
úllen dúllen doff.

#1408 Fjalldrapi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5050 posts

Posted 05 April 2012 - 20:57

View PostFjalldrapi, on 19 February 2012 - 13:24, said:

Er vetnisdraumurinn búinn ? Það vildi hann meina þessi :
Nú er lag fyrir okkur Íslendinga að henda peningunum í vitleysu
Framtíðarlausn á orkumálum heimsins
Orkumál á villigötum
Er mönnunum alvara ?
Vetnishálmstrá

Í fyrstu greininni segir að 75 til 80 % af orkunni sem hlaðið er í vetnið sóast.
Er það ekki líka svo að hinn "gamaldags sprengihreyfill" skilar einungis fjórðungi af orkunni úr bensíntanknum útí hjólin ? Heyrði eðlisfræðiprófessor segja það í útvarpinu.
80 % sóun ?

Edited by Fjalldrapi, 05 April 2012 - 20:57.


#1409 Hlynzi

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 105 posts
  • Location:Reykjavík

Posted 07 April 2012 - 09:48

View PostFjalldrapi, on 05 April 2012 - 20:57, said:

Í fyrstu greininni segir að 75 til 80 % af orkunni sem hlaðið er í vetnið sóast.
Er það ekki líka svo að hinn "gamaldags sprengihreyfill" skilar einungis fjórðungi af orkunni úr bensíntanknum útí hjólin ? Heyrði eðlisfræðiprófessor segja það í útvarpinu.
80 % sóun ?
Þetta er rétt með venjulegan mótor, gríðarleg sóun á orkunni sem fer öll meira og minna í viðnámshita, afhverju helduru að við setjum olíu á mótorinn ? Eingöngu til að lækka núningsviðnám innra með honum. Diesel bílarnir hafa ögn betri nýtni.
http://en.wikipedia....gine_efficiency

Ég hef ekki kynnt mér þetta nákvæmlega varðandi vetni, en flestir orkumiðlar hafa gríðarlegt tap í för með sér. Mest hissa var ég samt á hversu kjarnorka, eða eldsneytið (svosem uranium) er illa nýtt.
Hlynur S. - HlynurHs@hotmail.com (MSN)



#1410 fleebah

    Talsmađur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10766 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góđur matur.

Posted 07 April 2012 - 22:11

View Postleft, on 05 April 2012 - 20:18, said:

Following the trend further, Jadwa finds that Saudi Arabia will consume its entire production capacity of 12.5 million barrels per day at home by 2043. London's Chatham House finds that the kingdom will become a net oil importer even earlier, by 2038.
Þetta er eitt af þeim atriðum sem að Chris Martenson sagði að við þyrftum að fylgjast meira með, ekki bara framleiðslutölum olíu heldur einnig hversu mikið af olíu olíuríkin flytja (eða flytja ekki) út og hvaða hlutfall af eigin framleiðslu þau fara að nota sjálf.

Þessi þróun margfaldar hækkun á olíuverði. Og því þeim mun mikilvægara að finna aðra orkugjafa til samgöngunotkunar en olíu.

Já, og takk fyrir þetta innlegg, Vinni. Merkileg lesning.

Edited by fleebah, 07 April 2012 - 22:12.

"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users