Tembe, on 17 March 2012 - 02:51, said:
Þarna hafa teiknimyndahöfundar ekki gert sér grein fyrir þyngdarafli jarðar og flotkrafti.
Við verðum fyrst að gera okkur grein fyrir hversvegna jörðin er hnöttótt en ekki ferningslaga aða annað.
Nú bíðum við til 22.03.2012 og sjáum til hvort svartsýnisspár eigi rétt á sér. Aðeins 6 dagar til stefnu.
Geturðu sannað að jörðin sé ekki tenings-laga?
Ég er ekki vísindamaður, en sé augljósar risabreytingar af völdum mannsins sl. 100+ ár. Bara Kína sl. 15 ár er gígantískt skref. Og að það sé engin leið að sjá fyrir hvaða stórar breytingar munu eiga sér stað fyrr en eftir á. Þetta vídjó (sem ég átti í erfiðlsikum með að setja inn þarna um daginn) gerir valkostina einfalda, en það er líka rökfræði í því. Menn þurfa að fara varlega í að spúa efnum um allt og alltaf best að vera ekki kærulaus í þessum málum. Að segja að mengun okkar hafi engin áhrif er, finnst mér, óábyrgt enda verið að vaða blint í ána.
Þó að veturinn í USA hafi verið afbragðsgóður set ég það ekkert í samband við mannaveðursbreytingar. Veðurfar sveiflast og er óútreiknanlegt, eins og sést á lélegum veðurspám og að ekki er hægt að spá nema nokkra daga fram í tímann.
Ég held líka að mikið af þessum "grænu lausnum" séu ekki grænar fyrir fimm aura heldur dýrar fyrir vistkerfið ef eitthvað er og jafnvel vafasamt fyrir heilsu almennings.
En það er hægt að fara skynsama millileið í þessum málum sem öðrum og liggur ljóst fyrir að t.d. betri einangrun húsa er af hinu góða og að aukin rafvæðing á Íslandi sé hagkvæmt fyrir þjóðfélagið. Bætur á almenningssamgöngum er af hinu góða og svo framvegis. Hér í BNA vill ég sjá bætt lestarkerfi, innan borga og milli. Það getur sparað þjóðfélaginu gríðarlega í orkunotkun almennt og bruðli sem einkabílanotkun er oft.
Tembe, on 14 March 2012 - 23:55, said:
1. Hefur þú aldrei heyrt þau sannindi Fjalldrapi að þó rúmmál heimshafanna aukist eitthvað þá þýðir það ekki sjálfkrafa hækkað sjávarborð?
Það er nefnilega töluverð þyngd í sjónum og jarðskorpan tiltölulega þunn. Sjávarbotn getur sigið og lönd risið.
2. Það er reyndar talsverð þannig hreyfing í gangi núna og svo hefur verið alla tíð.
3. Hækkun hitastigs yrði bara til góðs.
1. Spekúlasjón, 2. mikið rétt, 3. Hvorugur okkar veit það. En það sem við vitum að ákveðinn balans er í náttúrukerfum og mannanna verk geta komið jafnvægi úr skorðum. Breyting er því bara í besta falli rúlletta.
Edited by drCronex, 27 March 2012 - 14:07.