Jump to content


Ljósmyndakeppni **Form**


74 replies to this topic

#71 skortur

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 15145 posts
  • Gender:Male
  • Location:Bankastræti 0
  • Interests:Í ræsinu<br />Vínsmökkun án þess að spýta.<br />Rand og ráp

Posted 04 February 2006 - 01:43

Þolinmæðin þrautir vinnur allar.

:LOL
wipe your ass before you talk to me.

#72 Matilda McDuck

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2136 posts

Posted 04 February 2006 - 08:49

Jazz hefur eitthvað gleymt sér eða eitthvað komið uppá
en hefur enginn annar fundið tíma hjá sér til að
grípa inní? Skortur hvað með þig?



Afþví að það er laugardagsmorgun þá fylgir hérna lítið æfintýri :angry:

^_^ Rauðhetta, litla gula hænan, amman og úlfurinn :angry:

Einu sinni var stelpa sem hét Rauðhetta. Hún átti mjög veika ömmu þannig að mamma hennar sendi hana með körfu til ömmu sinnar. Í körfunni var alskonar nammi. Andrés blöð, Vodka, Visky, Tekila, Landi, Suðusúkkulaði með sýrðum sardínum og fullt af Snickers (það er svona súkkulaði sem að ömmu fannst MJÖG gott).

Svo lagði Rauðhetta af stað. Henni fannst ekkert gaman að þurfa að fara til leiðindar ömmu sem var alltaf að þykjast vera veik. En var alltaf drekkandi alskonar spíra sem var yfir 40%. Étandi nammi og horfa á bannaðar myndir sem bara ömmur máttu horfa á og ég tala nú ekki um þegar hún byrjar að hoppa í rúmminu. Svo þegar hún er orðin blindfull þá byrjar hún: Er það minn…..hikk…..eða þinn sjóhattur….hikk…..er það minn eða….hikk……þinn sjóhattur. Já það er…hikk….minn en ekki þinn. Það…hikk…..er minn en ekki þinn…… sjóhattur SJÓHATTUR.

Þetta var skoðun Rauðhettu á ömmu.

Svo fór Rauðhetta upp í strætó. Þar hitti hún litlu gulu hænuna. Litla gula hænan var búinn að finna eitt hveitifræ og ætlaði að baka brauð. Ætlar þú að baka brauð úr einu pínkuponsu fræi. Rauðhetta hóstaði og sagði um leið FREAK. Eftir stutta stund stoppaði Strætisvagninn í bænum hennar ömmu. Bærinn hét áður Mosfellsbær en eftir að amma gerðist bæarstjói þá heitir bærin: Amma Rúlar Feitt.

Þegar Rauðhetta steig út úr strætisvagninum sá hún Úlfinn. Úlfurinn var að reyna að sækja um vinnu hjá: FÁURLSEBALÍR eða: Félagi áhugamanna um reykta loðfíla sem eru búnir að liggja í rotþró. Þannig að hann var að undirbúa fyrirlestur. Þegar Rauðhetta kom til ömmu sinnar var Úlfurinn búin að éta ömmu. En Rauðhetta sá engan mun á ömmu sinni og úlfinum (þótt ótrúlegt sé). En Rauðhetta sá samt einhvað athuavert við þetta. Hún sagði með sjálfum sér: hummmm. Svo fattaði hún að þetta var Úlfurinn.

Rauðhetta nennti samt ekkert að þylja allt þetta: Afhverju ertu með svona stór eyru amma o.s.frv. þannig að hún sagði bara: Ertu búinn að éta ömmu. Ekki það að mér sé ekki sama en ég má ekki fara heim fyrr en ég er bún að láta ömmu fá körfuna. Í sömu andrá kom Litla gula hænan með kjöthamar og lamdi Úlfinn í hausinn. Svo kom Rauðhetta og skar Úlfinn upp.

Þá sagði amman við Rauðhettu: ertu með Snickersið mitt, sko ég líð ekki að maður sé étinn af einhverju skrímsli og þú kemur seint og um síðir án þess að hafa Snickersið mitt. Þá rétti Rauðhetta ömmu sinni körfuna. Nú svo þú ert með gumsið Litla ömmubarnið mitt sagði amma.

Þá rankaði Úlfurinn við sér og sagði ég á að vera mættur á fyrirlestur hjá FÁURLSEBALÍR og hjóp út og stal mótorhjólinu hennar ömmu og brunaði af stað. Þá hjóp amman út og sagði skilaðu mótorhjólinu ömmugleypirin þinn og henti kökukefli í hann.

En sagan endaði vel. Rauðhetta fór í skurðlæknaskóla, Amman fór í mál við Úlfinn fekk sér góðan lögfræðing sem hét Barbapabbi. Dómarinn í málinu skipaði Úlfinum að greiða ömmunni 1.000.000 kr. í skaðabætur og Ömmunni að fara á elliheimili. En amman setti fram það skilyrði að hún fengi nóg af Snickers og fengi að fara á fyllerí um helgar. Dómarinn samþykti það. Litla gula hænan stofnaði bakarí og Úlfurinn var líka rekin úr sögunni og fór að vinna hjá: FÁURLSEBALÍR.

ENDIR
IPB Image

#73 cesil

    Þæsiblaðra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPipPipPip
  • 35060 posts

Posted 04 February 2006 - 09:35

Vá saga hehehehe flott Mathilda mín ^_^ :angry: :angry: Gott að hafa eitthvað svona meðan maður bíður. :angry:

Cesil uppeldirráðherra Málverja. Virðist alltaf í góðu skapi, en getur orðið skaðræðisgripur, ef hún reiðist.Skipuð talsmaður Málefnanna af Falkoni fyrsta.
Verndari villihestafélgsins og Núllarafélagsins.
Ef þú verður einhvern tíma strand
og áttavillt í fári stormsins svarta.
Þá máttu þinni fleytu leggja á land
við lygna vík í mínu bljúga hjarta.
Grandvar 15.07.05.

#74 Jazz

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3179 posts
  • Gender:Male
  • Location:Heima er bezt
  • Interests:Of mörg

Posted 04 February 2006 - 21:03

Biðst afsökunar á að ekki hafa staðið mig í stykkinu með forkosninguna. :ph34r:
Var boðið í mat í gærkvöldi en ætlaði að vera kominn snemma heim til að fiksa forkosningu eins ég var búinn að lofa.
Boðið var upp mörg góð vín með matnum sem ekki var hægt að láta skemmast.
Kaffi og gamalt Armanac var eftir matinn og voru droparnir ekki taldir í glösin.
Kom ekki heim fyrr en einhverntíma og þá var orðið mjög þokukennt í kringum mig og ég ekki hæfur til eins eða neins í orðsins fyllstu merkingu.
Vakinn upp fyrir allar aldir í dag til að spila gólf og hvíldi mig svo allan eftirmiðdaginn.
Sá að Halkatla var búinn að redda þessu og hafi hún þakkir fyrir. :D :rolleyes: :stop:
Jazz
To be, or not to be
user posted image
Fæddur sem fiskur í fiskinum

#75 Matilda McDuck

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2136 posts

Posted 04 February 2006 - 21:39

Gott að sjá þig hérna Jazz, var farin að hugsa hvort það væri ekki allt í lagi hjá þér :rolleyes:
Þú tekur vaktina seinna bara. Við verðum að skipuleggja okkur aðeins í samvinnunni, margar
hendur vinna létt verk ekki satt? Gott væri ef þeir sem hafa tíma meldi sig inn á keppnisþráðinn
eins og t.d. núna er kominn í gang þráðurinn Rammar og þar vantar ennþá einhvern sem er
tilbúinn að fylgja myndunum yfir í kosningarnar. Ég er búin að senda einum aðila ES beiðni
um að fylgjast með Form myndunum, telja atkvæðin og setja efstu myndirnar yfir í lokakosningu.

Eru ekki allir æstir í að vera með í þessu annars???? :D

IPB Image
IPB Image





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users