Jump to content


Ljósmyndakeppni Málefnanna



10 replies to this topic

#1 cesil1

    Vefstjóri

  • Vefstjóri
  • 1497 posts

Posted 29 April 2006 - 18:03

Ljósmyndakeppnin hefur unnið sér þann sess að vera sett hér inn sem undirflokkur. En það er vegna þess að þið hafið verið dugleg við að viðhalda keppninni, og þetta er í rauninni merkilegt framtak.
Um leið og ég opna þennan þráð, þá við ég óska ykkur til hamingju með hann, og öllum þátttakendum.
Þetta er ykkar frábæra framtak. Og hér með er þessi undirþráður opnaður. Og hingað munu flytjast þeir þræðir sem fjalla um ljósmyndakeppni Málefnanna.

#2 Halkatla

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3395 posts
  • Gender:Female

Posted 29 April 2006 - 18:10

Vá rosalega líst mér vel á þetta :)

Var smá stund að átta mig á þessu því ég fór að skrifa innlegg á þræði fyrir neðan og svo var ég bara allt í einu lent hér inn.

Frábært alveg takk fyrir :)
Með dreymandi svip og dillandi hlátur
drengirnir Halkötlu væna þrá.
En fólið er norn sem grimmlyndan grátur
greypir í svip þeirra, föla á brá.

Grandvar 20.01.05

#3 Matilda McDuck

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2136 posts

Posted 29 April 2006 - 18:14

View Postcesil1, on Apr 29 2006, 18:03, said:

Ljósmyndakeppnin hefur unnið sér þann sess að vera sett hér inn sem undirflokkur. En það er vegna þess að þið hafið verið dugleg við að viðhalda keppninni, og þetta er í rauninni merkilegt framtak.
Um leið og ég opna þennan þráð, þá við ég óska ykkur til hamingju með hann, og öllum þátttakendum.
Þetta er ykkar frábæra framtak. Og hér með er þessi undirþráður opnaður. Og hingað munu flytjast þeir þræðir sem fjalla um ljósmyndakeppni Málefnanna.


Mér líður eins og að ég væri Marie Antoinette í Speglasalnum í Versölum

Vítt til veggja og myndir af mér allsstaðar .... :)

Þetta er frábært og takk fyrir þetta :)
IPB Image

#4 Neddi

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3085 posts
  • Gender:Male
  • Location:Borg óttans

Posted 29 April 2006 - 18:19

Ómerkileg ritskoðun og ekkert annað.

En fýlan í þeim sem fá engan lestur eða athygli hérna
(listaþráðurinn er steindauður, aðallega vegna
innihaldsleysis klíkunnar sem ræður hérna) er raunar
afskaplega ánægjuleg.

Þetta er botnskarp hérna sem gjammar um tjáningarfrelsi
þegar það hentar því en fasistaskítafýlan gýs brátt upp
þrátt fyrir látalætin.

:) :) :D :LOL

(Þessi rantur er í boði satans)
:D :D :D

Annars verð ég að lýsa yfir ánægju minni með það að okkur skuli vera gert svona hátt undir höfði að fá okkar eigið undirspjallborð til að halda áfram með þessa keppni.

Nú vantar bara að lista upp reglurnar og hengja þær efst.

#5 cesil1

    Vefstjóri

  • Vefstjóri
  • 1497 posts

Posted 29 April 2006 - 18:19

Þið hafið sjálf unnið fyrir þessu með frábæru framtaki Mathildu og góðum undirtekum ykkar hinna. Bara til lukku með þetta, og ég ætla að halda áfram að taka þátt. :)

#6 Matty Groves

    Taldrjúgur

  • Óvirkir notendur
  • PipPipPipPip
  • 6057 posts
  • Gender:Female

Posted 29 April 2006 - 19:05

Þetta lýst mér vel á :lol:
Í forvitni og freisting slíka
falla beztu málskjóður.
En kötturinn var kannski líka
kærulaus og ölóður.


Grandvar 27.11.05


#7 lazy sol

    Talandi

  • Óvirkir notendur
  • Pip
  • 499 posts
  • Location:bær

Posted 29 April 2006 - 19:13

Best ég tuði þá aðeins enda ekki þekkt fyrir meðvirkni.


Það er pínu ruglingslegt að vera með tvo ramma sem eru festir. Er ekki hægt að sameina þetta þá í einn??
IPB Image



#8 lazy sol

    Talandi

  • Óvirkir notendur
  • Pip
  • 499 posts
  • Location:bær

Posted 29 April 2006 - 19:28

bíp
IPB Image



#9 Smyrill1

    Málfær

  • Vefstjóri
  • 899 posts

Posted 29 April 2006 - 19:32

Fest umræðuefni fara sjálfkrafa í sér ramma og því miður er ekki hægt að breyta því. Áttu við það?
Smyrlar eru frændur fálka en talsvert minni. Íslenskir smyrlar eru bæði dekkri og stærri en evrópska afbrigðið. Stærsti hluti stofnsins fer til Bretlandseyja á veturna. Smyrlar finnast um allt land en varla eru meira en 1.000 til 2.000 varppör á landinu. Fæða þeirra er nánast eingöngu smáfuglar, aðallega spörfuglar og vaðfuglar. Smyrlar eru snillingar að fljúga og aðfarirnar þegar þeir eru að elta bráð sína er mikið sjónarspil. Af Íslandsvef

#10 lazy sol

    Talandi

  • Óvirkir notendur
  • Pip
  • 499 posts
  • Location:bær

Posted 29 April 2006 - 19:40

Þetta er bara ruglingslegt. Fyrst klikka ég mig inn á listir. Þar eru tveir fastir rammar : Listir undirflokkar og Listir . í lista rammanum eru síðan umræðuefni í flokki.

Ef ég hefði verið að gera þetta þá hefði ég sett gagnrýnihornið, ljósmyndasamkeppnina og verðlaunamyndirnar í einn flokk og svo idolið og matinn þar fyrir neðan. En ekki búið til einn annan festann ramma þarna fyrir ofan, ef þú skilur hvað ég meina. Allir þessir fösturammar á flokkum og undirflokkum eru að verða frekar ruglingslegir.



e.s ef það fer sjálfrkrafa í sérramma af hverju eru þá ekki 3 rammar þar sem idolið, euro og það er? Það hefði verið hægt að setja þetta í þann ramma
IPB Image



#11 Smyrill1

    Málfær

  • Vefstjóri
  • 899 posts

Posted 29 April 2006 - 19:49

Það hefur bara gleymst að færa verðlaunamyndirnar yfir. Takk fyrir að benda á það. Ég kippi því í liðinn. Hinu er erfiðara að breyta. Fest umræðuefni koma alltaf efst í hverjum umræðuflokki, og undirflokkar koma svo alltaf efst á síðunni. Það er ekki hægt að breyta því svo ég viti.
Þú þarft ekki að fara inn á Listir af forsíðunni til að komast í ljósmyndakeppnina. Undirflokkarnir eru líka á forsíðunni og þú getur smellt beint á þá þar.
Smyrlar eru frændur fálka en talsvert minni. Íslenskir smyrlar eru bæði dekkri og stærri en evrópska afbrigðið. Stærsti hluti stofnsins fer til Bretlandseyja á veturna. Smyrlar finnast um allt land en varla eru meira en 1.000 til 2.000 varppör á landinu. Fæða þeirra er nánast eingöngu smáfuglar, aðallega spörfuglar og vaðfuglar. Smyrlar eru snillingar að fljúga og aðfarirnar þegar þeir eru að elta bráð sína er mikið sjónarspil. Af Íslandsvef





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users