Jump to content


Eyddi Jón Ásgeir tölvupósti?


  • You cannot reply to this topic
34 replies to this topic

#1 Ingimundur Kjarval

    Talblaðra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPip
  • 22765 posts
  • Gender:Male

Posted 24 June 2006 - 08:25 PM

Ekki batnar það, hefur Jón Gerald eitthvað þarna eða ekki?


Fyrst birt: 24.06.2006 18:32

Síðast uppfært: 24.06.2006 20:00
Jón Ásgeir: Eyddi ekki tölvugögnum
Framkvæmdastjóri tölvunetþjónustu neitar því að hafa eytt tölvupósti að beiðni Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eins og haft er eftir Jóni Geraldi Sullenberger í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Framkvæmdastjóri tölvunetþjónustu sem Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur átt í viðskiptum við, neitar að hafa eytt tölvugögnum Jóns Ásgeirs, eins og haft er eftir Jóni Geraldi Sullenberger í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Jón Gerald Sullenberger segir í viðtali við Morgunblaðið að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi þann 28. ágúst 2002, beðið framkvæmdastjóra tölvunetfyrirtækis að eyða öllum tölvugögnum sem tengdust honum og Tryggva Jónssyni, aðstoðarforstjóra Baugs. Framkvæmdastjóri tölvufyrirtækisins hafi sagt sér þetta þá um kvöldið en hann sé vinur sinn og Jóns Ásgeirs.

Jón Ásgeir sagði þetta uppspuna í viðtali við fréttastofu Útvarps í dag. Hann hafi verið í viðskiptum við tölvunetfyrirtækið frá því hann vann hjá Bónus og ekki séð ástæðu til að breyta því. Tölvupóstur sinn færi þar í gegn en hann hefði aldrei beðið neinn að eyða honum.

Framkvæmdastjóri netþjónustunnar sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann segir fyrirtæki sitt ekki á neinn hátt hafa komið að því að eyða tölvupósti af netþjónum fyrirtækisins eða með öðrum hætti úr tölvum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar né Tryggva Jónssonar. Tölvupóstur Tryggva Jónssonar hafi ekki verið vistaður hjá fyrirtækinu. Hann segir umfjöllunina atvinnuróg af verstu gerð og hún skaði fyrirtækið og starfsmenn þess.
« Til baka

#2 blackbird

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 16140 posts

Posted 24 June 2006 - 08:50 PM

Að sjálfssögðu neita JÁJ og Þessi framkvæmdastjóri þessu.

Svona löguðu neita menn hvort sem þeir gerðu það eða ekki. Hin kröftugu viðbrögð finnst mér nú samt benda til sektar út frá atferlissjónarmiðum.
Yeah, well, you know, that's your opinion, man...

En fyrst þú minnist á karl marx, þá er hann nú ein af hetjunum mínum og það er auðvitað verulega sorglegt að hans kenningar urðu ekki að veruleika, en það er auðvitað morgunljóst að USSR varð aldrei það samfélag ( og ekki einu sinni nálægt því ) sem karl Marx vildi..... né Lenin ef út í það er farið.
Blackbird hinn fagri.

#3 Moran

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5983 posts

Posted 24 June 2006 - 08:57 PM

QUOTE (blackbird @ Jun 24 2006, 20:50) <{POST_SNAPBACK}>
Að sjálfssögðu neita JÁJ og Þessi framkvæmdastjóri þessu.

Svona löguðu neita menn hvort sem þeir gerðu það eða ekki. Hin kröftugu viðbrögð finnst mér nú samt benda til sektar út frá atferlissjónarmiðum.



Þykir þér sem sagt ekkert bogið við þá mynd
að þetta birtist í Mbl. sem ritstjórinn hefur markvisst
beitt gegn Baugsmönnum í nokkur ár? Grein Páls Vilhjálmssonar
og þetta makalausa viðtal við JGS koma nefnilega
á merkilegum tíma, stutt í úrskurð Héraðsdóms um frávísun.
Þetta er ekkert annað en örvæntingarfull atlaga.
Sérfræðingar hafa þegar úrskurðað um þennan þátt málsins,
OG NIÐURSTAÐAN VAR EKKI SÚ SEM JGS SEGIR.
Segir það þér ekki neitt, blackbird?

#4 Ingimundur Kjarval

    Talblaðra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPip
  • 22765 posts
  • Gender:Male

Posted 24 June 2006 - 08:58 PM

QUOTE (blackbird @ Jun 24 2006, 21:50) <{POST_SNAPBACK}>
Að sjálfssögðu neita JÁJ og Þessi framkvæmdastjóri þessu.

Svona löguðu neita menn hvort sem þeir gerðu það eða ekki. Hin kröftugu viðbrögð finnst mér nú samt benda til sektar út frá atferlissjónarmiðum.



Flott, Jón flýtur og þess vegna norn. Eitt getum við verið sammála um annar hvor þeirra lýgur, annað hvort lýgur Jón Gerald blákalt eða bæði Jón Ásgeir og framkvæmdastjóri Netþjónustunar. Mín skoðun að þetta eigi eftir að komast á hreint fyrr en seinna.

#5 Moran

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5983 posts

Posted 24 June 2006 - 09:01 PM

QUOTE (Ingimundur Kjarval @ Jun 24 2006, 20:58) <{POST_SNAPBACK}>
Flott, Jón flýtur og þess vegna norn. Eitt getum við verið sammála um annar hvor þeirra lýgur, annað hvort lýgur Jón Gerald blákalt eða bæði Jón Ásgeir og framkvæmdastjóri Netþjónustunar. Mín skoðun að þetta eigi eftir að komast á hreint fyrr en seinna.


Sammála.

#6 krissa68

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10622 posts

Posted 24 June 2006 - 09:17 PM

Auðvitað segir Guðmundur Ingi bara það sem hentar Jóni Ásgeiri enda eru þeir æskufélagar og góðir vinir. M.a. voru þeir saman á kappakstrinum fræga um daginn eins og sagt var frá í fjölmiðlum.

Fyrir áhugamenn um ættartengsl má nefna það að Guðmundur Ingi og Drífa Hjartardóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins eru systkini.
"Það má aldrei bogna þó á móti blási, það má aldrei hika þótt herði að og það má ekki einu sinni líta undan, þótt sýnin sé ekki frýnileg. Og það má aldrei svíkja sjálfan sig og það sem maður í hjarta sínu trúir á, fyrir stundarávinning."


#7 Ingimundur Kjarval

    Talblaðra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPip
  • 22765 posts
  • Gender:Male

Posted 24 June 2006 - 09:28 PM

QUOTE (krissa68 @ Jun 24 2006, 22:17) <{POST_SNAPBACK}>
Auðvitað segir Guðmundur Ingi bara það sem hentar Jóni Ásgeiri enda eru þeir æskufélagar og góðir vinir. M.a. voru þeir saman á kappakstrinum fræga um daginn eins og sagt var frá í fjölmiðlum.

Fyrir áhugamenn um ættartengsl má nefna það að Guðmundur Ingi og Drífa Hjartardóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins eru systkini.


Nú rugla ég stöðugt saman bandarískum og íslenskum lögum, en er það ekki rétt hjá mér að þetta sé miklu alvarlegra en að ljúga svona almennt, núna er þetta sakamál fyrir rétti og bæði að eyða gögnum eða saka aðra um að eyða gögnum sem kmoa því máli við refsivert athæfi.

Svo að menn ljúga ekki svona hlutum bara af því bara. Einhvern veginn held ég að nú sé komið að skuldadögum fyrir einhverja, annað hvort geti Jón Gerald sannað þetta eða að þeir geti afsannað.

Séð frá mínum bæjardyrum get ég ekki séð Jón Ásgeir það vitlausan að hafa lagst í að eyða þessum póstum á því stigi málsins. En ég viðurkenni að ég get séð Jón Gerlad ljúga þesu, svona er hlutdrægur. Ég viðurkenni að ég hef ekki hugmynd en spái því að þetta muni ekki hanga í loftinu til eilífar, nú sé komið að Jóni Gerald að sanna mál sitt.

Hann þegar talinn ótrúverðugt vitni, vitað að hann falsaði reikinga þó hann segist hafa gert það að skipun Hreins og vitað að hann lagði á bíla fyrir eitthvað sem hann sagðist vera að gera upp á vinskap. Nú er tíminn Jón Gerald, annað hvort sekkuru eða flýtur.

#8 Lemon

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5925 posts

Posted 24 June 2006 - 10:22 PM

QUOTE (blackbird @ Jun 24 2006, 22:50) <{POST_SNAPBACK}>
Að sjálfssögðu neita JÁJ og Þessi framkvæmdastjóri þessu.

Svona löguðu neita menn hvort sem þeir gerðu það eða ekki. Hin kröftugu viðbrögð finnst mér nú samt benda til sektar út frá atferlissjónarmiðum.


Þannig að hin kröftugu viðbrögð Hannesar Hólmsteins við aðfararkröfu Jóns Ólafsson, benda til sektar Hannesar? Svona út frá atferlissjónarmiðum... ohmy.gif

Þið Sjallar eruð óborganlegir !

#9 Moran

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5983 posts

Posted 24 June 2006 - 10:45 PM

QUOTE (Lemon @ Jun 24 2006, 22:22) <{POST_SNAPBACK}>
Þannig að hin kröftugu viðbrögð Hannesar Hólmsteins við aðfararkröfu Jóns Ólafsson, benda til sektar Hannesar? Svona út frá atferlissjónarmiðum... ohmy.gif

Þið Sjallar eruð óborganlegir !


Blákaldar staðreyndir og gögn ráða sekt,
ekki atferlissjónarmið.
Hafa einhverjir lesið yfirlýsingu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á mbl.is í kvöld?
Þar svarar hann heldur betur fyrir sig.

#10 Fowl

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4618 posts

Posted 24 June 2006 - 10:51 PM

QUOTE (krissa68 @ Jun 24 2006, 21:17) <{POST_SNAPBACK}>
Auðvitað segir Guðmundur Ingi bara það sem hentar Jóni Ásgeiri enda eru þeir æskufélagar og góðir vinir. M.a. voru þeir saman á kappakstrinum fræga um daginn eins og sagt var frá í fjölmiðlum.

Hvað með dómskvöddu matsmennina? Segja þeir líka bara það sem hentar Jóni Ásgeiri?

Sbr. þetta úr yfirlýsingu Jóns Ásgeirs: "Eigandi umrædds tölvufyrirtækis hefur mótmælt þessari ósönnu staðhæfingu og svo vill til að í skýrslu dómkvaddra matsmanna, sem fyrir liggur í “Baugsmálinu”, er kafli um þetta atriði sem gengur gegn þessum fullyrðingum Jóns Geralds."

Er eyðing tölvupóstanna nokkuð annað en enn ein lygin frá hendi Jóns Geralds, manns sem hefur verið kallaður óáreiðanlegt vitni í hefndarhug af sjálfum dómstólunum?





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users