Jump to content


Afrískar fegurðardrottningar


78 replies to this topic

#71 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 02 October 2007 - 23:10

QUOTE(mikki-refur @ Oct 2 2007, 17:13) [snapback]1196916[/snapback]
Jú þetta er víst eini sénsinn fyrir þessar svörtu kellíngar til að ná í athygli. Með því að terrorisera fólk með þessu ofbeldiskjaftæði sem er bara ekki okkar mál. Í þessu líkt og í svo mörgu öðru gildir það gamla spakmæli að hver sé sjálfum sér næstur. Svo maður segir hvað eru þær að vilja upp á dekk á Íslandi sem þar sem borgurunum kemur bara ekkert við hvaða pólitísk stefna er í öðrum heimsálfum?



Mikki. Er hugsanlegt að þú sért af tröllaættum ?
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )

#72 kjarkaður

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2641 posts

Posted 03 October 2007 - 02:15

Ætlaði inná þráð um bókmenntir o.fl en svo var þetta eitthvað um hverjir eru sexy og hverjir kveikja í hverjum...

Vitiði mér kemur bara lítið við hvað kveikir í ykkur tongue.gif

LOL.gif

Ef fólk vill lesa svona bækum um jólin þá bara gott mál. Ég sé ekkert slæmt á því að það sé vakin athygli á því hvað ástandið er slæmt þarna úti - við kvörtum yfir ýmsu hérna en við höfum það svo gott miðað við svo margar þjóðir.

cool.gif
-Að vitna í skrif mín á málefnunum er með öllu óheimil nema með skriflegu leyfi frá mér.

-FÓÐRA

Félag Ósaknaðra™

#73 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12763 posts

Posted 05 February 2008 - 11:33

þriðjudagur, 5. febrúar, 2008
Ástralskt blað segir bók Ishmael Beah að mestu skáldskap

74219145.jpgÁstralskt dagblað segir að bókin Um langan veg: saga herdrengs, eftir Ishmael Beah, sé að miklu leyti skáldskapur. Bókin kom út á íslensku fyrir jólin og Beah kom hingað til lands til að kynna hana og kom þá m.a. fram í Kastljósi.

Beah er 27 ára að aldri og bókin segir sögu hans sem eins þeirra barna sem voru neydd til ótrúlegra grimmdarverka við skelfilegar aðstæður í borgarstyrjöldinni í Sierra Leone. Vefritið The First Post fjallar um málið í dag og vísar í umfjöllun ástralska dagblaðsins The Australian, sem hefur skrifað um málið nokkra undanfarna daga og byggir m.a. á upplýsingum frá hjálparstarfsmanni, sem hafði samband við blaðið.

Bók Beah hefur selst í milljónum eintaka um allan heim og höfundurinn er víðþekktur orðinn, m.a. sem sendiherra Unicef, barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem komu honum til bjargar.

1215.jpgNiðurstaða The Australian er sú að fæst af því sem Beah skrifar um sé sannleikanum samkvæmt. Meðal annars hefur blaðið upplýst að árás uppreisnarmanna á þorp Beah, Mattru Jong, átti sér ekki stað árið 1993 eins og kemur fram í bókinni heldur 1995, ári áður Laura Simms bjargaði Beah og fór með hann til Bandaríkjanna. The First Post segir að þetta þýði að Beah hafi “í mesta lagi verið herdrengur í nokkra mánuði” og hann hafi hann verið orðinn 15 ára og því ekki lengur barn í hefðbundnum skilningi í Afríku. Einnig hefur komið fram í The Australian að gögn sýni að Beah hafi ennþá sótt skóla á árinu 1993. Í bókinni segir að fyrir þann tíma hafi uppreisnarmenn gert árás á þorpið hans, þar hafi hann misst fjölskyldu sína og bjargast á flótta út í auðnina.

Bandarísk kona að nafni Laura Simms fann Beah í flóttamannabúðum árið 1996 ættleiddi og flutti til Bandaríkjanna.

#74 Rafael Serrano

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 654 posts

Posted 05 February 2008 - 13:00

Bandarísk kona ættleiðir 15 ára gutta.
Creepy maður.

#75 Harry Lime

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 346 posts

Posted 05 February 2008 - 14:38

Það er hægt að finna upp ótal afbrigði á þessu Afríkudæmi. Nýjasta spinnið er "Ég var barnahermaður", þar sem einhver Sierra Leone strákur er notaður til að fronta eitthvað skáldað bull. Kom í ljós þegar farið var í saumana á þessu á guttinn var enn í skóla þegar hann átti að vera á fullu í slátrun einhvers staðar. Þetta er siðlaus lygabransi eins og satan myndi hafa orðað það.

#76 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12763 posts

Posted 01 March 2008 - 11:20



Í ljós hefur komið að bæði franskur bókaútgefandi og kvikmyndaframleiðandi létu gabbast af upploginni sjálfsævisögu um afdrif ungrar gyðingastúlku sem þvældist um Mið- og Austur-Evrópu með hópi villtra úlfa sem höfðu tekið hana í fóstur eftir að foreldrar hennar voru teknir höndum af Nasistum í Belgíu í seinni heimstyrjöldinni.

Gerð var leikin kvikmynd eftir bókinni sem heitir á ensku Surviving With Wolves og var frumsýnd í Frakklandi í janúar síðast liðnum.

Það var belgíska dagblaðið Le Soir, sem komst að því að Misha Defonseca, hin 70 kona sem ritaði bókina er ekki af gyðingaættum og laug því að útgefandanum að þetta væri sjálfsævisaga.

Nú þarf að færa bókina yfir í skáldsagnadeildir bókabúða og fjarlægja „byggt á sannsögulegum atburðum" úr titlum kvikmyndarinnar.

#77 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 01 March 2008 - 11:42

QUOTE (Herkúles @ Mar 1 2008, 11:20) <{POST_SNAPBACK}>
Í ljós hefur komið að bæði franskur bókaútgefandi og kvikmyndaframleiðandi létu gabbast af upploginni sjálfsævisögu um afdrif ungrar gyðingastúlku sem þvældist um Mið- og Austur-Evrópu með hópi villtra úlfa sem höfðu tekið hana í fóstur eftir að foreldrar hennar voru teknir höndum af Nasistum í Belgíu í seinni heimstyrjöldinni.

Gerð var leikin kvikmynd eftir bókinni sem heitir á ensku Surviving With Wolves og var frumsýnd í Frakklandi í janúar síðast liðnum.

Það var belgíska dagblaðið Le Soir, sem komst að því að Misha Defonseca, hin 70 kona sem ritaði bókina er ekki af gyðingaættum og laug því að útgefandanum að þetta væri sjálfsævisaga.

Nú þarf að færa bókina yfir í skáldsagnadeildir bókabúða og fjarlægja „byggt á sannsögulegum atburðum" úr titlum kvikmyndarinnar.



Ég dett inní þessa umræðu aftur, vegna innleggsins hér að ofan og veit eiginlega ekkert hvernig hún hefur þróast.
Í minningu minni er bók sem var til heima hjá mér þegar ég var barn. Þessi bók heitir "´Fósturdóttir úlfanna". Seinna lærði ég eitt og annað um sálfræði, mannfræði og tengd fræði og las meira um þessa hluti.
Þetta er ekkert smá-forvitnilegt.
Eiginlega er þetta svo mikilvæg breita í því að skoða eðli greindar og aðlögunar mannsins. Ég verð að fara til mömmu og grafa upp þessa bók.
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )

#78 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12763 posts

Posted 01 March 2008 - 17:34

..var það ekki önnur bók?

..en þetta kemur orðið ekki endilega Afríku ekki við heldur hinum og þessum fals-bókmenntum sem virðist nóg af


#79 drCronex

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 26405 posts
  • Gender:Male
  • Location:hér er ég.
  • Interests:Dagurinn og vegurinn. Heimreiðar og hestamennska. Svona má lengi telja!

Posted 02 March 2008 - 04:27

QUOTE (OhMan @ Oct 28 2006, 22:40) <{POST_SNAPBACK}>
Verð nú að segja að þessar blökkukvensur gera afskaplega lítið fyrir mína líkamsstarfssemi.

Nú, vantar þig einhvern til að elda ofaní þig eða áttu erfitt með að kúka?


Aftur að efninu. Hillurnar eru uppfullar af efni sem er vafasamt. Man eftir bók sem hét "Ég lifi" og ég las sem gutti. Sjálfsævisaga Gyðings sem var í fangabúðum og komst lífs af úr seinni heimsstyrjöld. Svo fyrir 2-3 árum fann ég þessa bók í hillum foreldra og las hana aftur. Og þvílíkt bull! Trúi því ekki að þetta sé útegfið sem sjálfsævisaga, alveg klárt mál að mikið er skáldað, hver veit nema það sé allt skáldskapur. Svo fann ég þennan kall sem hefur verið að skrifa gegn holocaust-iðnaði í Bandaríkjunum.
Skilekkineitt: "Sjónhverfingar byggjast á því að dreifa athyglinni frá aðalatriðinu."
Ingimundur Kjarval: "Þegar þú setur lyftu í hús, sleppir þú ekki eftstu hæðina vegna þess að svo fáir eiga heima þar."
Apple: "...hvað sem útveggjunum líður en þeir eru hannaðir til að taka á sig lárétt álag en ekki lóðrétt."

Plasma Rarity: "Ég myndi skilgreina kjána sem einhvern sem skortir þekkingu á eitthvað málefni, en getur jafnvel verið greindur. Það er munur á kjána og vitleysing og hann er sá að vitleysingur getur haft þekkingu en skortir greind."





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users