QUOTE(Englabossi @ Oct 19 2007, 14:12) [snapback]1204569[/snapback]
Sorry en ég legg ekki einu sinni í það að skoða þetta, því að mér finnst þetta alger steypa, voru þeir bara alltaf með olíu á enninu, dag og nótt?
Veistu virkilega svona lítið um bókina sem þú trúir svona orðrétt?
Já, heilagir menn báru þessa olíu guðs (köllum hana bara hassolíuna) í uppundir 2 mánuði og þekktust langar leiðir í eyðimörkinni vegna lyktarinnar sem af hársverðinum var, en á meðan þeir höfðu olíuna í hársverðinum sáu þeir og upplifðu Guð, upplifanir sem þeir rituðu um síðar og mikið af því er í biblíunni.
QUOTE(Englabossi @ Oct 19 2007, 14:12) [snapback]1204569[/snapback]
hvernig útskýriru öll kraftaverkin, ertu að reyna að segja mér að fíkniefni lækni lamaða, blinda, holdsveika, reist fólk frá dauðum og svo framvegis?
Ég ætla ekkert að fara að útskýra nein kraftaverk, en vitað er í dag að þeir sem eru slæmir af hristingi og jafnvel lamaðir af Multiple Schlerosis geta alltíeinu farið að nota útlimina og verða minna hreyfihamlaðir en þeir voru áðru en þeir neyttu Kannabiss, en slíkt ástand leiðir til lömunar.
Einnig er vitað að þeir sem þjást af Gláku (gláka leiðir til blindu) geta fengið betri sjón en áður með Kannabis og jafnvel eru þekkt tilfelli þar sem glákan gegnur til baka (minnkar) vegna reglulegrar inntöku kannabiss.
Það er alveg á hreinu að holdsveikir hefðu fundið fyrir minni þjáningum eftir inntöku kannabiss vegna eiginleika þess til að slá á krónískan sársauka, en athugaðu líka að holdsveiki þá þýddi ekki það sama og holdsveiki nú að því er mér skilst.
Uppreisn frá dauðum er mér ekki kunnugt um að hafi verið nokkurntíman framkvæmd nema þá í anda.
Hins vegar voru menn taldir "dauðir" í þá daga ef þeir voru "bannfærðir" úr trúarsamfélaginu, en Jesús einmitt bjargaði nokkrum slíkum samkvæmt sögunni þinni og innlimaði þá aftur, en slíkt jafngilti upprisu frá dauða (trúardauða).
Síðan eru vísindin okkar alltaf að grafa upp fleiri lækningaeiginleika þessarar mögnuðu plöntu Guðs, plöntu sem sumir hreintrúarhræsnararnir vilja niðurlægja vegna heimskulegrar fíkniefnastefnu mannanna (í þessu tilfelli allavega).
Það er á hreinu að 4 kíló af böddum þessarar plöntu var í olíu guðs, uppskriftin á henni er í biblíunni þinni.... hvernig væri nú að fara að lesa hana aðeins betur áður en þú hrópar,,, bull, bull.....
Kveðja
Grasi