Var einn af fjölmörgum sem lagði leið sína í Höllina í gærkvöldi til að berja íslenska (gaut aðeins augunum að tékkunum endrum og eins) handboltalandsliðið augum.
Eitt atriði vakti athygli mína umfram annað...en það var að markmenn liðsins hafa tekið upp á því að verja skot!!!
Ég man nefnilega þá tíma þegar Guðmundur nokkur Hrafnkelsson stóð í markinu, þá voru það einu skiptin sem hann taldist verja boltann, en það var þegar andstæðingarnir skutu í hann!
Að öðru leyti hafa orðið stórstígar framfarir á liðinu...bara allt annað að sjá til strákanna okkar.
Áfram Ísland...frammistaða ykkar í gær lofar góðu!
