Timoshenko
13. September, 2009, 18:29
QUOTE(Árvakur Lýðsson @ 13. September, 2009, 18:07)

Trúlega þarf þó biskupinn að gefa allar sínar tekjur upp til skatts.
Hjá sóknarprestum og þeirra aðstoðarmönnum s.s. orgelleikarar, söngvarar o.fl. eru stunduð mjög umfangsmikil skattsvik.
Nánast er allt unnið nótulaust og ef tekst að kreista nótu út úr þessu liði þá er hún nær undantekningarlaust ólögleg, þ.e. ekki fyrirframnúmeruð, vantar kennitölu, VSK nr. og fleira.
Ég hef oft furðað mig á því af hverju ríkisskattstjóri hjólar ekki í þetta lið.
Þetta er mjög áhugavert.
Er ekki hægt að senda bara inn kæru ef maður hefur rökstuddan grun um að einhver prestur stundi skattsvik?
Hér er gjaldskráin:
Greiðslur fyrir eftirtalin aukaverk eru sem hér segir:
1. Skírn 3.500 kr.
2. Ferming 9.300 kr.
3. Hjónavígsla 6.500 kr.
4. Greftrun með ræðu 13.900 kr.
5. Kistulagning 4.000 kr.
6. Greftrun án ræðu 5.000 kr.
7. Fyrir embættisvottorð 650 kr.
http://www.domsmalaraduneyti.is/raduneyti/...lysingar/nr/839Þannig að prestur sem fermir 100 börn fær fyrir það 930.000 krónur. Borgar hann skatt af því, fá foreldrar nótu?
QUOTE(Kryptonian @ 13. September, 2009, 18:14)

Yfirvöld hafa aldrei þorað að hjóla í þjóðkirkjuna og þeirra lið.
Alþingi getur ekki einu sinni breytt trúartengdum lögum án þess að kirkjan skipti sér að því.
Já það er alveg magnað hvað þeir eru duglegir við að troða sér að.
Sem dæmi þá er alþingi aldrei sett nema prestur fái að messa yfir þingmönnum.