Það er aðeins tvö leikhús á Íslandi.
Reyndar eru til klúbbar sem hafa gaman af að leika eins og á Akureyri og víðar, en alvöru leikhús geta þeir ekki talist.
Íslensku leikhúsin eru Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið.
Nú eru vetrardagskrár leikhúsanna komnar út og verður að setjast að þar er efni sem er athyglisvert en ef stykkjunum eru gefnar stjörnur eða einkunnir og summan af þeim tekin saman þá fær Borgarleikhúsið flestu stigin.
Þannig að það er ekki spurning hvert á að snúa sér í vetur til að fara og aftengjast raunveruleikanum part úr kvöldstund með því að horfa á leikrit í leikhúsi.
Það er líka miklu áhættuminna að fara í Borgarleikhúsið því það er nýtt og öryggismál eftir nýjustu stöðlum og almennt séð er húsið í góðu standi.
Brunavarnir góðar og engar eldgildrur.
Ekki að detta niður flísar út múrhúð hússins sem geta lent í hausnum á manni.
Nóg af þægilegum sætum til að sitja í í hléum og mikið pláss svo að líkhamsfnykurinn af öðrum gestum ætlar ekki að kæfa mann.
Og ég tala nú ekki um að geta haldið sé í hinni stöðluðu meters fjarlægð frá næsta manni til að hindra svínaflensusmit.
Svo er allt rafrænt og tæknilegt sem er í Borgó.
Verðin á miðum góð, reyndar sér maður að þjóðleikhúsið er að elta Borgó með verð og sölufyrirkomulag á miðum, en skildi maður ekki nota frumgerð frekar en afrit?
Niðurstaða mín er sú að allir ættu að fara í Borgarleikhúsið frekar en annað.