Ætla ekki að ítreka innihald síðasta innleggs sem leiddi til þess að ég var bannaður hér.
Það að ræða það hvort stjórnandi geti haldið hlutdrægni sinni ætti að vera eðlilegasta mál hér á þessum vef og í raun, lífspursmál fyrir vefinn út frá eðli hans og tilgangs.
Mig langar að fá hreint út til hvers þessar reglur hér að neðan eru og sérstaklega þar sem stjórnandi gaf það út strax og hann byrjaði að hann ætlaði að taka strangt á öllum reglum vefsins.
2.5) Innlegg skulu hafa innihald sem skiptir máli fyrir umræðuna hverju sinni.
2.6) Óheimilt er að birta innlegg sem eru til þess eins ætluð að vekja reiði og valda uppnámi ("Tröll"). Mat stjórnenda á slíkum innleggjum gildir og er endanlegt.
2.7) Óheimilt er að hafa uppi vísvitandi móðganir í garð viðmælanda, stjórnenda eða annarra málverja, hvort heldur er sem beint skítkast eða að slíkt sé gefið í skyn ("Flaming").
2.8) Óheimilt er að leggja aðra notendur í einelti með því að birta innlegg þeim andsnúin langt umfram aðra.
2.10) Umræður skulu vera málefnalegar og snúast um skoðanir en ekki persónur og einkalíf fólks. Málverjum ber að forðast innlegg sem beinast að einkalífi fólks eða persónu þess.
Hér umræddan dag sem ég var bannaður brutu tveir málverjar allar þessur reglur og það ítrekað. Ég reporteraði nokkur innlegg en fékk þau svör að þetta væri í lagi "miðað við umræðuefnið"
Hér eru tvö dæmi (búið að eyða góðum slatta af öðrum núna en það gerðist eftir að ég var bannaður).
QUOTE(Timoshenko @ 25. February, 2010, 12:49)
Já svona hafa menn þetta.
Bíddu bara, bráðum verður byrjað að ljúga upp á þig. Eða mig minnir reyndar að það sé búið að því. Við áttum víst að vera sami maðurinn fyrir nokkrum mánuðum. Það er búið að ljúga upp á mig allskonar þvælu í þessari ESB umræðu, maður er orðinn ónæmur fyrir þessu.
..
Bíddu bara, bráðum verður byrjað að ljúga upp á þig. Eða mig minnir reyndar að það sé búið að því. Við áttum víst að vera sami maðurinn fyrir nokkrum mánuðum. Það er búið að ljúga upp á mig allskonar þvælu í þessari ESB umræðu, maður er orðinn ónæmur fyrir þessu.
..
QUOTE(Timoshenko @ 24. February, 2010, 21:44)
Æ farðu með þessa lygi eitthvað annað.
Er einhver hér sem er með skoðun á því hvað ESB á að gera með Grikkland?
Er einhver hér sem er með skoðun á því hvað ESB á að gera með Grikkland?
Ég varð hreinlega gáttaður og ákvað að prófa að svara eins og þessir meintu brotaþegar og þá varð ég bannaður umleið.
Hvernig stendur á því að ég verð að standa undir því að vera kallaður lygari hér aftur og aftur af einum Málverjanum?
Og alveg sama þótt ég reporti þá er ekkert gert?
Síðan þegar ég minnist á orðið stjórnandi, þá er ég bannaður?
Hvers vegna er sú regla sem minnist á stjórnendur svona miklu mikilvægari en þær reglur sem eiga að bera málefnaleika þessa vettvangs uppi?
