Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Hvernig á að stöðva kaup Magma á HS orku?
Málefnin.com > Málefnaflokkar > Stjórnmál
appel
Stjórnvöld geta auðveldlega stöðvað kaup Magma á HS Orku.

Þau geta látið nefnd skoða kaupin, ótímabundið.

Hægt er að gera ekki neitt til að samþykkja kaupin.

Það væri hægt að fá "sérfræðinga" til að gefa álit sitt á þessu.

Það væri hægt að láta þetta bíða þar til "samræmt mat á nýtingu og skipulagi á auðlindum landsins" liggur fyrir.

Það er hægt að gera ýmislegt stjórnsýslulega séð til að einfaldlega kaffæra þessi kaup. Okkar stjórnmálamenn kunna ekki öll trixin í bókinni greinilega.

Ekkert af þessu gefur til kynna að Ísland sé að brjóta neitt á Magma eða gegn EES.
Lucky_charm
QUOTE (appel @ 20. July, 2010, 17:15) *

QUOTE
Frelsi frá stjórnvöldum ER frelsi!
Ari góði
QUOTE(appel @ 20. July, 2010, 17:15) *

Ég vona sannarlega að þetta sé ekki það sem koma skal í stjórnarháttum á Íslandi... að ýta óþægilegum málum á undan sér og vona að þau hverfi þannig.
jukn
QUOTE (appel @ 20. July, 2010, 17:15) *
Stjórnvöld geta auðveldlega stöðvað kaup Magma á HS Orku.

Þau geta látið nefnd skoða kaupin, ótímabundið.

Hægt er að gera ekki neitt til að samþykkja kaupin.

Það væri hægt að fá "sérfræðinga" til að gefa álit sitt á þessu.

Það væri hægt að láta þetta bíða þar til "samræmt mat á nýtingu og skipulagi á auðlindum landsins" liggur fyrir.

Það er hægt að gera ýmislegt stjórnsýslulega séð til að einfaldlega kaffæra þessi kaup. Okkar stjórnmálamenn kunna ekki öll trixin í bókinni greinilega.

Ekkert af þessu gefur til kynna að Ísland sé að brjóta neitt á Magma eða gegn EES.

Hvað eiga stjórnvöld nákvæmlega að stoppa? Það er búið að einkavæða HS Orku og það var öllum sama um það.
xark
QUOTE
Hvernig á að stöðva kaup Magma á HS orku?

Með því að gera ekki neitt...

Það er ekkert að þessum samningi og slæmt fyrir uppbyggingu í landinu ef það á að ráðast á þennan samning og
setja þar með fjárfestingar í landinu í uppnám.

Enda hljóta menn í framhaldinu að spyrja sig hvort það þýði að gera eitthvað hérna ef það á að bæta pólítískum óstöðugleika
ofan á allt annað.

Eru fjárfestar velkomnir?
http://visir.is/eru-fjarfestar-velkomnir?/...e/2010273455135

appel
Magma er ekki að koma með neinn pening inn í landið, þetta eru bara einhverjar hreyfingar á pappír. Magma fær kúlulán sem má greiða einhverntímann upp, í staðinn fyrir loforð um að borga það í framtíðinni þá fá þeir auðlind sem ömmur og afar okkar byggðu upp.

Ég hefði sjálfur getað keypt þetta hefði ég fengið sömu fyrirgreiðslu, eða bara hver sem er. Alltaf fínt að eiga virkjun.

Fjárfestar ekki velkomnir? Menn þurfa að gera greinarmun á tækifærishrægömmum, bröskurum með skúffufélög, og alvöru fjárfestum sem vilja byggja upp einhverja framleiðslustarfssemi með sínum eigin peningum en ekki einhverju kúluláni.

Ef menn vilja í alvörunni selja þetta til Kanadískt fyrirtækis, hví þá ekki að bjóða HS Orku til sölu FYRIR ALLA? Leyfa bara ÖLLUM að bjóða í hlutinn, óháð því hvort þeir eru á EES-svæðinu eða ekki. Kínverjum, Kanadamönnum, Bandaríkjamönnum, Áströlum, Rússum, Japönum, Afríkulöndum, Danmörku o.s.frv. Það ætti að hámarka söluverðmætið.
jukn
QUOTE (appel @ 20. July, 2010, 19:57) *
Ef menn vilja í alvörunni selja þetta til Kanadískt fyrirtækis, hví þá ekki að bjóða HS Orku til sölu FYRIR ALLA? Leyfa bara ÖLLUM að bjóða í hlutinn, óháð því hvort þeir eru á EES-svæðinu eða ekki. Kínverjum, Kanadamönnum, Bandaríkjamönnum, Áströlum, Rússum, Japönum, Afríkulöndum, Danmörku o.s.frv. Það ætti að hámarka söluverðmætið.

Er það ekki ákvörðun sem GGE tekur? Hverjum þeir vilja bjóða að taka þátt.

Það er ekki íslenska ríkið sem stendur í þessari sölu þó það mætti skilja það af sumum hérna
appel
Það eina sem gerir þetta land byggilegt er ódýrt rafmagn og upphituð hús.

En nú eru menn farnir að selja þetta til útlendinga, sem vilja auðvitað hækka verðið á þessu sem fyrst í samræmi við það sem gengur og gerist erlendis.

Ég vil nú bara sambærileg lífsgæði einsog gengur og gerist erlendis, t.d. mun hærri laun og svo húsnæðislán sem er ekki ígildi lífstíðarfangelsis. Þá fyrst er ég til í að borga sambærilegt fyrir rafmagn og hita. Annars held ég að heimskan á þessum kletti eigi eftir að valda því að ég og margir aðrir flytji frá þessu landi.
Sesselman
QUOTE(jukn @ 20. July, 2010, 20:03) *
Er það ekki ákvörðun sem GGE tekur? Hverjum þeir vilja bjóða að taka þátt.
Það er ekki íslenska ríkið sem stendur í þessari sölu þó það mætti skilja það af sumum hérna

Það á alls ekki að vera ákvörðun GGE hverjum þeir selja þar sem í gildi eru lög sem banna framsal orkuauðlinda til erlendar aðila með þeirri undantekningu að í EES samningnum er gert ráð fyrir frjálsu flæði fjármagns milli Íslands og annarra ríkja með aðild að EES samningnum.
Samningurinn tekur til allrar fjárfestingar í íslenskum atvinnurekstri nema í sjávarútvegi þar sem gerð var sérstök undantekning.
Fjárfesting aðila utan EES svæðisins í orkuauðlindum hér er því bönnuð og ekki á sviði GGE að heimila slíkt enda var skúffufyrirtækið í Svíþjóð stofnað til að fara á bak við lögin.
Það er í raun grafalvarlegt mál ef það er rétt að svona brellur hafi verið notaðar með vitneskju íslensku stjórnsýslunnar til að fara á svig við gildandi lög.
Gildir þá raunar einu hvort menn hafi talið sig vera með gott mál í höndunum eða ekki.
jukn
QUOTE (Sesselman @ 20. July, 2010, 20:51) *

Þannig að ef þetta væri þýskt fyrirtæki eða danskt þá væri allt í gúddí
Sesselman
QUOTE(jukn @ 20. July, 2010, 21:04) *
Þannig að ef þetta væri þýskt fyrirtæki eða danskt þá væri allt í gúddí

Ég get ekki séð annað.
Ari góði
QUOTE(appel @ 20. July, 2010, 19:57) *
Magma er ekki að koma með neinn pening inn í landið, þetta eru bara einhverjar hreyfingar á pappír. Magma fær kúlulán sem má greiða einhverntímann upp, í staðinn fyrir loforð um að borga það í framtíðinni þá fá þeir auðlind sem ömmur og afar okkar byggðu upp.

Ég hefði sjálfur getað keypt þetta hefði ég fengið sömu fyrirgreiðslu, eða bara hver sem er. Alltaf fínt að eiga virkjun.

Samkvæmt áreiðanlegum fréttum frá Kanada þá stendur nú yfir hlutafjárútboð þar vestra, útboðinu á að ljúka 27. júlí. Samkvæmt sömu fréttum þá á að nota peningana til að fjármagna kaup Magma á 52,35% hlut GGE í HS Orku. Væntanlega skilar sá peningur sér þá til landsins með haustinu.
Orville
Ég veit ekki hreinlega hvort hægt er að stoppa þetta með þá þingmenn sem nú sitja.

Það þarf að losna við hrun/spillingarflokkana þrjá eða endurnýja þá algjörlega. Þetta fólk er gjörsamlega fast í sama farinu, í hinu gamla Íslandi.

Verst hvernig þingmenn XO fóru að ráði sínu, það getur verið að það verði erfiðara að fá endurnýjun með því að fara slíka leið. Vonandi verður kosið í haust og vonandi fáum við þá bæði nánast algera endurnýjun á hrunflokkunum þremur þannig að enginn sem sat á þingi 2008 fyrir þá flokka verði þar áfram og svo nýtt sannfærandi afl sem hægt verður að kjósa.
hvumpinn
QUOTE(Sesselman @ 20. July, 2010, 21:07) *
Ég get ekki séð annað.

Hrein tvöfeldni. En Kúbuvæðing Íslands gengur annars bara ágætlega hjá vinstri stjórninni.
Brodd-Helgi
Varðandi með að stoppa þetta eða hitt á þeim forsendum að verið sé að fara í kringum lög sem sumir vilja meina, þá held eg nefnilega að það sé ekkert einfalt. Það er varla hægt. Eða það er náttúrulega ýmislegt hægt en spurning hvort það sé skynsamlegt.

Magma Sweeden er löglega stofnað fyrirtæki í svíþjóð samkv. sænskum lögum. Það skiptir engu máli hvort íslendingar vilji kalla skúffufyrirtæki eða eitthvað annað. Kontór, kompa, skúffa, skuffe etc. Breytir engu. Fyritækið er formlegur lögaðili á EES svæðinu. Það er gert ráð fyrir þessu í EES samningum. Eða ætlar ísland að fara kæra svía fyrir að leyfa þeim að stofna fyrirtæki þar í landi.

Þarna kemur miklu frekar til álita, að fyrirtækið hefur ekki haft neina starfsemi á EES (fyrr en bara fljótlega eftir stofnun og þá á Íslandi) Það væri hugsanlegt, kanski og etv. hægt að finna einhvern flöt þar.

Þá vekur athygli að í íslensku lögunum er ekki gerður neinn slíkur fyrirvari. Bara sagt að lögaðilar á EES hafi sama rétt og ríkisborgar á EES. Það væri þá frekar hugsanlegt, kanski og etv. hægt að finna einhvern flöt á slíku í EES samningum sjálfum.

Þ.e. að ríki geti hugsanlega, kanski og etv. gert athugasemdir ef lögaðilinn hefur ekki haft starfsemi einhversstaðar á ES svæðinu í einhvern skilgreindann tíma.

Ofangreint er í raun fræðileg spurning sem í sjálfu sér væri athyglisvert að fá leyst úr fyrir þar til gerðum stofnunum.

Sumir hafa nefnt að kæra til ESA. Eg er bara svo hræddur um að ESA sé orðið talsvert leitt á ruglinu í íslendingum, td. kringum icesavemálið og fleira og fleira. Spurning hvort ísland verði bara ekki bráðum rekið úr EES.
Lucky_charm
VG nær ekki að stöðva sölu á HS orku. VG getur ekki neitt.
Spitfire
QUOTE(Brodd-Helgi @ 21. July, 2010, 13:49) *

Takk fyrir gott innlegg Brodd-Helgi, vel skrifað finnst mér.
Geiriv
QUOTE(appel @ 20. July, 2010, 17:15) *
Stjórnvöld geta auðveldlega stöðvað kaup Magma á HS Orku.

Þau geta látið nefnd skoða kaupin, ótímabundið.

Hægt er að gera ekki neitt til að samþykkja kaupin.

Það væri hægt að fá "sérfræðinga" til að gefa álit sitt á þessu.

Það væri hægt að láta þetta bíða þar til "samræmt mat á nýtingu og skipulagi á auðlindum landsins" liggur fyrir.

Það er hægt að gera ýmislegt stjórnsýslulega séð til að einfaldlega kaffæra þessi kaup. Okkar stjórnmálamenn kunna ekki öll trixin í bókinni greinilega.

Ekkert af þessu gefur til kynna að Ísland sé að brjóta neitt á Magma eða gegn EES.

Stjórnvöld eru með öll trixin á hreinu það er alveg víst.
Hversu mörg mál daga uppi í nefndum allskonar. Sérstaklega þau mál sem snúa að hagsbót almennings.
Íslensk stjórnvöld eru fræg fyrir " Svona er þetta í útlöndum " þegar það er þeim í hag.
En Þegar almenningur segir " Svona er þetta í útlöndum " og það er almenningi í hag, þá virðist það ekki vera samanburðarhæft ?? mad.gif
appel
Ríkisstjórnin segir:
QUOTE
"Efnahags- og viðskiptaráðherra mun ekki staðfesta lögmæti kaupa Magma á HS orku að svo stöddu líkt og meirihluti nefndar um erlenda fjárfestingu hefur lagt til við hann. Hann mun senda málsaðilum formlegt bréf þar sem hann tilkynir um að á vegum á vegum stjórnvalda sé að hefjast umfangsmikil vinna sem kunni að hafa áhrif á framtíðarstöðu opinberra jafnt sem einkaaðila á sviði orkumála og að ríkisstjórnin sé staðráðin í að vinda ofan af einkavæðingu innan orkugeirans og tryggja eftir megni að mikilvægustu orkufyrirtæki landsins séu á forræði opinberra aðila.

Hluti af þeirri vinnu sem stjórnvöld ætla að hrinda af stað er rannsókn á öllu einkavæðingarferli Hitaveitu Suðurnesja, síðar HS orku, þar sem lögmæti kaupa Magma sem erlends aðila verði meðal annars kannað. Einnig vinna við endurskoðun lagaumhverfis varðandi eignarhald á orkufyrirtækjum, þ.á.m. um takmarkanir á eignarhaldi einkaaðila. "

Ég sagði:
QUOTE
Stjórnvöld geta auðveldlega stöðvað kaup Magma á HS Orku.

Þau geta látið nefnd skoða kaupin, ótímabundið.

Hægt er að gera ekki neitt til að samþykkja kaupin.

Það væri hægt að fá "sérfræðinga" til að gefa álit sitt á þessu.

Það væri hægt að láta þetta bíða þar til "samræmt mat á nýtingu og skipulagi á auðlindum landsins" liggur fyrir.

Það er hægt að gera ýmislegt stjórnsýslulega séð til að einfaldlega kaffæra þessi kaup. Okkar stjórnmálamenn kunna ekki öll trixin í bókinni greinilega.

Ekkert af þessu gefur til kynna að Ísland sé að brjóta neitt á Magma eða gegn EES.

Gaman að hafa rétt fyrir mér, "make em go through hoops" er greinilega það sem var ákveðið að gera, þæfa kaupin.

Ég er með fleiri góðar hugmyndir fyrir ríkisstjórnina, just pm me smile.gif
jukn
QUOTE (appel @ 27. July, 2010, 18:28) *

Hehe. Þú getur sent bara email á spunameistarann. Hann hlýtur að vera vel tengdur wink.gif
Lucky_charm
QUOTE (appel @ 27. July, 2010, 18:28) *
Ríkisstjórnin segir:

Ég sagði:

Gaman að hafa rétt fyrir mér, "make em go through hoops" er greinilega það sem var ákveðið að gera, þæfa kaupin.

Ég er með fleiri góðar hugmyndir fyrir ríkisstjórnina, just pm me smile.gif

Ertu viss um að þú sért frjálshyggjumaður?
appel
QUOTE(Lucky_charm @ 27. July, 2010, 18:32) *
Ertu viss um að þú sért frjálshyggjumaður?

Sá mesti.

QUOTE(jukn @ 27. July, 2010, 18:30) *
Hehe. Þú getur sent bara email á spunameistarann. Hann hlýtur að vera vel tengdur wink.gif

Ég er með nokkrar typpagóðar hugmyndir fyrir hann, sendi á hann nú þegar ég veit tölvupóstfangið hans. cool.gif
Lucky_charm
QUOTE (appel @ 27. July, 2010, 18:34) *
Sá mesti.

Samt treystir þú ekki frjálsum markaði fyrir auðlindunum!
appel
QUOTE(Lucky_charm @ 27. July, 2010, 18:35) *
Samt treystir þú ekki frjálsum markaði fyrir auðlindunum!

Hvaða frjálsa markaði?
Lucky_charm
QUOTE (appel @ 27. July, 2010, 18:36) *
Hvaða frjálsa markaði?

Ef þetta endar hjá ríkinu þá er það á frjálsari markaði en ef Magma á það? Viðurkenndu bara að þú ert lélegur frjálshyggjumaður.
appel
QUOTE(Lucky_charm @ 27. July, 2010, 18:42) *
Ef þetta endar hjá ríkinu þá er það á frjálsari markaði en ef Magma á það? Viðurkenndu bara að þú ert lélegur frjálshyggjumaður.

Í upphafi skal endirinn skoðaður.

Þessir "frjálsu markaðir" sem talað er um hversdagslega eru einfaldlega ekki frjálsir. Þeim er stýrt af þvílíku offorsi að Stalín hefði verið stoltur.

Leikurinn er rigged. Á meðan svo er, þá er skásti kosturinn að ríkið eigi auðlindir landsins.
Lucky_charm
QUOTE (appel @ 27. July, 2010, 19:09) *
Á meðan svo er, þá er skásti kosturinn að ríkið eigi auðlindir landsins.

Talað eins og út úr hjarta sanns kommúnista.
jukn
QUOTE (Lucky_charm @ 27. July, 2010, 19:25) *
Talað eins og út úr hjarta sanns kommúnista.

Hvar var frjálsi markaðurinn þegar Árni Sigfússon og félagar í xD handvöldu Hannes Smárason og félaga til að eignast HS Orku?
Lucky_charm
QUOTE (jukn @ 27. July, 2010, 19:30) *
Hvar var frjálsi markaðurinn þegar Árni Sigfússon og félagar í xD handvöldu Hannes Smárason og félaga til að eignast HS Orku?

Handvöldu?
appel
Sumir vilja líka meina að bankarnir hafi verið seldir á frjálsum markaði.

Við vitum betur nú, þeir voru afhentir vel völdum klíkum.
jukn
QUOTE (Lucky_charm @ 27. July, 2010, 19:32) *
Handvöldu?

http://www.reykjanesbaer.is/fundargerdir_n...510201805830000
QUOTE
4. Viðskiptin og aðdragandi þeirra hefur átt sér stað í skjóli lokaðra funda með forsvarsmönnum GGE og ekki hefur verið farið með viðskiptin í opinbert söluferli
Bæjarstjóri hefur unnið að þessum viðskiptum Reykjanesbæjar við GGE á bakvið luktar dyr og á lokuðum einkafundum, en að þessu ferli hafa einungis komið tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og forsvarsmenn GGE. Sé vilji til þess meðal íbúa sveitarfélagsins að lokinni ítarlegri kynningu og umræðu að selja eignir sveitarfélagsins skal gera það með gagnsæjum og opinberum hætti og gefa fleiri aðilum tækifæri á að taka þátt og e.t.v. bjóða í hlut Reykjanesbæjar í fyrirtækinu. Í svona stóru máli hlýtur að teljast eðlilegt að gagnsæi ríki og að fleiri aðilum sé gefinn kostur á að bjóða í hlut sveitarfélagsins , enda er um ráðandi hlut að ræða í fyrirtækinu og vel hugsanlegt að fleiri hefðu áhuga á að koma að því heldur en GGE. Í raun er um að ræða einkasölu sem hvergi hefur fengið opinbera umræðu né heldur verið auglýst eftir áhugasömum aðilum. Einungis hafa átt sér stað umræður á lokuðum fundum milli sjálfstæðismanna og forsvarsmanna GGE. Sjálfstæðismenn hafna óhludrægu verðmati á fyrirtækjunum og það gefur tilefni til að efast um að hagsmunir sveitarfélagsins séu hafðir að leiðarljósi í þessum viðskiptum. Það mun þarfnast frekari skoðunar.

Lucky_charm
QUOTE (appel @ 27. July, 2010, 19:35) *
Sumir vilja líka meina að bankarnir hafi verið seldir á frjálsum markaði.

Við vitum betur nú, þeir voru afhentir vel völdum klíkum.

Tussufínt.

Það gat hver sem er keypt hlut í bönkunum. Af hverju gerðir þú það ekki? Jú þú varst t.d. ekki fjárráða þá né nógu ríkur.
appel
Þakkir jukn.

Ég er frjálshyggjumaður, alvöru, og svona vinnubrögð eru ekki frjálshyggja, þetta er olígarkívinnubrögð, spillingar og einræðistilburðir hins sjúklega Sjálfstæðisflokks.

Það á að hýða alla sem komu nálægt þessu.
Lucky_charm
QUOTE (jukn @ 27. July, 2010, 19:36) *

Marklaust. Þetta er frá minnihlutanum.
appel
QUOTE(Lucky_charm @ 27. July, 2010, 19:38) *
Tussufínt.

Það gat hver sem er keypt hlut í bönkunum. Af hverju gerðir þú það ekki? Jú þú varst t.d. ekki fjárráða þá né nógu ríkur.

Ég er ekki svo vitlaus að kaupa hlut í bönkunum, enda tapaði ég engu þegar þeir hrundu. Ég veit hvernig þetta kerfi var blásið upp eftir hentisemi olígarkanna, sem fengu yfirráð í bönkunum á silfurfati, því þeir voru rétt plöggaðir í stjórnmálunum.

Var búinn að kaupa gull fyrir sparnað minn, og við vitum hvað gull er búið að hækka mikið.

Ekki reyna að bulla um að það hér séu einhverjir frjálsir markaðir. Magma keypti krónur á aflandsgengi á meðan enginn íslendingur gat gert hið sama. Á þeim forsendum gátu þeir yfirboðið alla aðra. Frjálsir markaðir? Held ekki.
Lucky_charm
QUOTE (appel @ 27. July, 2010, 19:40) *
Ég er frjálshyggjumaður, alvöru, og svona vinnubrögð eru ekki frjálshyggja, þetta er olígarkívinnubrögð, spillingar og einræðistilburðir hins sjúklega Sjálfstæðisflokks.

Þegar VG hefur ná HS orku aftur í opinbera eigu þá vilt þú opið söluferli? Einkavæðingu á auðlindunum?
jukn
QUOTE (Lucky_charm @ 27. July, 2010, 19:43) *
Marklaust. Þetta er frá minnihlutanum.

Þetta er kanski marklaust líka
QUOTE
7. Félögin eru í ábyrgð fyrir skuldum hvors annars
Á það skal sérstaklega bent að enn eru fjárhagsleg tengsl milli HS Orku og HS Veitna með þeim hætti að bæði félög eru í ábyrgð fyrir skuldum hvors annars eða það má segja að HS Veitur séu í ábyrgð fyrir skuldum HS Orku. Ekki er hægt að samþykkja þessi viðskipti fyrr en samþykki lánadrottna liggur fyrir um að þeir aflétti þessari ábyrgð. Slíkt samþykki fékkst ekki þegar uppskipti fyrirtækjanna átti sér stað og litlar líkur á að að slíkt samþykki fáist nú.

Meiri fíflin í þessu bæjarfélagi. Seldu fyrirtækið en bera ennþá ábyrgð á lánum þess
Lucky_charm
QUOTE (appel @ 27. July, 2010, 19:43) *
Ekki reyna að bulla um að það hér séu einhverjir frjálsir markaðir. Magma keypti krónur á aflandsgengi á meðan enginn íslendingur gat gert hið sama. Á þeim forsendum gátu þeir yfirboðið alla aðra. Frjálsir markaðir? Held ekki.

Markaður með gull frjáls?

Hvaða markaður er frjáls að þínu mati?
Spinni

Sælir.

Það er nauðsynlegt fyrir okkur að taka á því hvort við ætlum að lifa í þessu landi sem fullvalda þjóð eða leiguliðar erlendra manna. Það hefði þurft að setja lög um auðæfin í jörðu, fiskinn í sjónum og vatnið já rigninguna. Þetta á að vera þjóðareign um aldur og ævi enda forsenda þess að hér sé búandi yfirhöfuð, ekkert minna. Sjallakvikindin, þessir aumu mútuþegar eru tilbúnir að selja allt frá okkur fyrir stundargróða og þessvegna eiga þeir aldrei að fá að komast að kjötkötlunum.

Við þurfum að taka á þessum málum öllum á þinginu sem nú kemur saman og setja heilsteypta og skothelda löggjöf um þessa málaflokka þannig að enginn vafi sé á því að hver sé eigandinn og leigusali ef til þess kæmi. Með leigusölu af þessum auðlindum getur þjóðin haft drjúgar tekjur og jafnframt haft fulla stjórn á öllum málum. Þjóðinni allt góðir landsmenn.

Kv

Spinni.
jukn
QUOTE (Spinni @ 27. July, 2010, 21:27) *

Ertu búinn að lesa lýsingarnar úr bæjarstjórn Reykjanesbæjar hér að ofan.

Þetta eru mennirnir sem Íslendingar eru að kjósa til valda. Kjósa til að fara með almannaeigur
appel
QUOTE(Spinni @ 27. July, 2010, 21:27) *
Sælir.

Það er nauðsynlegt fyrir okkur að taka á því hvort við ætlum að lifa í þessu landi sem fullvalda þjóð eða leiguliðar erlendra manna. Það hefði þurft að setja lög um auðæfin í jörðu, fiskinn í sjónum og vatnið já rigninguna. Þetta á að vera þjóðareign um aldur og ævi enda forsenda þess að hér sé búandi yfirhöfuð, ekkert minna. Sjallakvikindin, þessir aumu mútuþegar eru tilbúnir að selja allt frá okkur fyrir stundargróða og þessvegna eiga þeir aldrei að fá að komast að kjötkötlunum.

Við þurfum að taka á þessum málum öllum á þinginu sem nú kemur saman og setja heilsteypta og skothelda löggjöf um þessa málaflokka þannig að enginn vafi sé á því að hver sé eigandinn og leigusali ef til þess kæmi. Með leigusölu af þessum auðlindum getur þjóðin haft drjúgar tekjur og jafnframt haft fulla stjórn á öllum málum. Þjóðinni allt góðir landsmenn.

Kv

Spinni.

Sammála.

Ég hef ekkert á móti því að útlendingar geti byggt virkjanir hér, en það þarf að vera, einsog þú segir, heilsteypt löggjöf um auðlindir landsins. Eignin á auðlindinni þarf að vera þjóðarinnar, ríkisins, og fyrirtækin borga dággóða summu í ríkiskassan fyrir að fá að "dæla" þessari orku upp. Aðeins þannig er hægt að byggja upp "norræna velferð" hér á landi.

Það gengur ekki upp að eitthvað afdala sveitafélag geti bara selt heilu orkusvæðin til erlendra aðila fyrir skammtímareddingar í bókhaldinu rétt fyrir kosningar. Nú má bara eitthvað útlenskt fyrirtæki bora yfir háhitaorku á öllu Reykjanesinu? Þetta er absúrd!

Ef HS Orka væri olíulind þá myndi engum detta í hug að einfaldlega selja olíulindina fyrir einhverja peningasummu, það er glæpur gegn núverandi og komandi kynslóðum íslendinga. Ef einhver sveitastjóri í Sádi Arabíu hefði selt olíulind til erlendra aðila þá hefði konungurinn fyrirskipað að öll stjórnsýslan í því sveitafélagi væri tekin af lífi.
Kjosandi
QUOTE(appel @ 27. July, 2010, 21:40) *

Í okkar bananalýðveldi þá þarf að gera allt með hraði.

Auðvitað á að vera til heilstæð löggjöf um orkuauðlindir og á meðan hún er ekki tilbúin þá á að vera STRANGLEGA bannað að leyfa einkaaðilanum að koma eitthvað að málum. Skiptir engu hvers stórt eða lítið það er, eða hversu ómerkilegt það virðist vera í upphafi.

Heildarlöggjöfin á svo að lúta að því að auðlindin er í eigu hins opinbera en svo þarf að ræða nánar hvar og hvernig einkageirinn á að koma inn í þennan geira. Eða hvort hann eigi heima þarna yfirhöfuð.

Vandamálið með orkuna hins vegar er að það er mjög erfitt að færa orkuna á milli fyrirtækja. Álver fær x míkið til sín og það er ekkert hlaupið að því einn góðan veðurdag að segja nei við tryggjum samkeppni og nú færð þú ekki meiri orku frá og með næstu áramótum. Þetta er þó hægt hvað varðar fiskveiðar. Það er mun auðveldara að færa kvótann á milli nýrra skipa, en að færa orkuna á milli álvera.

En hvað sem verður ofan á, þá má ekki undir neinum kringumstæðum leyfa framsal orkunnar og veðsetningu hennar.

Timoshenko
QUOTE(Kjosandi @ 27. July, 2010, 22:07) *
ekki undir neinum kringumstæðum leyfa framsal orkunnar og veðsetningu hennar.
!!! Sammála !!!
jukn
Menn ekki sáttir í Reykjanesbæ
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/th...n-i-fyrirtaekin
patroiz
QUOTE(jukn @ 28. July, 2010, 14:53) *

Böðvar Jónsson og Árni Sigfússon eru þekktir öfga hægri menn. Það kemur ekki á óvart að þetta veki upp reiði hjá þeim.

"Hann segir arfaslæmt að ríkisstjórnin reyni að koma í veg fyrir að fjársterkir aðilar komi inn í HS Orku. "

Er Magma fjársterkur aðili? Hvaðan eiga peningarnir að koma til þess að fjárfesta í HS Orku? Þeir geta ekki veðsett HS Orku enda er HS Orka þegar veðsett fyrir lánunum sem Magma tók yfir við kaupin. Ef þeir ættu peningin á lausu þá væri forstjórinn varla að lána félaginu 1 milljarð og þeir hefðu ekki þurft að fara í hlutafjárútboð þar sem þeir voru að reyna að afla 5 milljarða. Magma er metið á um 35 milljarða, það er mjög ólíklegt að þeir geti farið í annað hlutafjárútboð og aflað fleiri milljarða, jafnvel tugi milljarða í viðbót, til þess að fjárfesta í HS Orku nema þá að hlutir núverandi fjárfesta þynnist allverulega. Fyrirtæki sem er nýstofnað myndi varla fá lán fyrir áhættufjárfestingum hjá dótturfélagi. Hvaðan kemur þessi peningur sem Magma ætlar að fjárfesta í HS Orku?
afleiða
Magma er alveg örugglega frontur fyrir Bjarna Ármansson og einvherja fleyri útrásar álfa og hugsanlega með einhvern ríkan gyðing í teyminu.

Með því að birta allar greiðslur úr ríkissjóði á netinu getur orðið bylting á rekstrarforminu ríkisrekstur.

jukn
QUOTE (afleiða @ 28. July, 2010, 16:41) *

Er ekki um að gera að birta slíkt
Lucky_charm
QUOTE (afleiða @ 28. July, 2010, 16:41) *
Með því að birta allar greiðslur úr ríkissjóði á netinu getur orðið bylting á rekstrarforminu ríkisrekstur.

Tæknilega séð er það ekkert mál en það sem vantar er viljinn.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.