Nagli
19. July, 2005, 21:16
Var að fikta í útvarpinu mínu og lenti á beinni útsendingu af bæjarstjórnarfundi í Kópavogi. Það var hrútleiðinlegt en eitt vakti athygli mína, alltaf þegar Flosi samfylkingarforingi sagði eitthvað kom Gunnar bæjarstjóri og sagði að þetta væri rétt hjá honum. Flosi þakkaði síðan Gunnari svörin. Þetta hljómaði eins og þeir væru bestu vinir, ekkert heyrðist í Hansína framsóknaroddvita en varamaður held hún heiti Una María talaði og hún var gagnrýni en Flosi
Heyri það í bænum að þeir séu búnir að semja um meirihluta eftir kosningar, Flosi þolir ekki að vera áfram í minnihluta og Gunnar getur ekki hugsað sér að vinna með Páli Magnússyni ef hann verður oddviti Framsóknar.
Þarna er Samfylkingin í Kópavogi að svíkja allt sem hún hefur sagt á þessu kjörtímabili, ætli maður verði ekki bara að kjósa VG ef þeir bjóða fram.
Hafa málverjar heyrt eitthvað um þessi mál í Kópavogi?
Skorrdal
19. July, 2005, 21:19
QUOTE(Nagli @ Jul 19 2005, 21:16)

[right][snapback]717709[/snapback][/right]
Afhverju ætti hún ekki að svíkja í Kópavogi, ef hún sveik í Reykjavík?
Over and out...
Nagli
19. July, 2005, 22:01
Samfylkingin í Reykjavík hefur allavega ekki tekið upp á því að tala vel um íhaldið eins og þessi fyrrum kjaftfori strákur í Kópavogi sem fyrir nokkur var alltaf í blöðum að gagnrýna Gunnar og öll hans verk
Skorrdal
19. July, 2005, 22:03
Nei, máski ekki, en verknaðurinn er sá hinn sami; svik við okkur kjósendur, hvernig sem á málið er litið. Íslensk stjórnamál í hnotskurn; við kunnum ekki að lifa í lýðræðisríki.
Jón Glámur
19. July, 2005, 22:13
Talaði Flosi ekkert um það þegar hann var framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsinns? Ég túi ekki öðru en hann hafi vitnað í reynslu sína frá þeim gullaldarárum.
Annars skulu menn ekki ganga að því gruflandi að Samfylkingin er ein svikamylla frá upphafi til enda; markaðshyggjuflokkur sem ekkert á skylt við vinstri stefnu í stjórnmálum. Það er því rökrétt af Samfylkingunni í Kópavogi að stefna á meirihlutasamstarf við Gunnar I. eftir næstu kosningar.
Og ekki þurfa þeir félagarnir að hafa áhyggjur af Framsókn, þar fer deyjandi stjórnmálaafl.
Enn síður þurfa þeir að hafa áhyggjur af VG ef himpigimpið sem var í 1. sæti þeirra síðast verður áfram í fyrsta sæti næst, eins og allt lítur út fyrir að verði, samkvæmt krögu Steingríms J.
Nagli
19. July, 2005, 23:35
ég vissi ekki að Flosi hefði verið framkvæmdastjóri AB hvenær var það ?
en afhverju vill hann ekki vera með Framsókn, Hann og Páll voru saman í MK og í Röskvu - maður hefði haldið að milli þeirra væri samband um að halda íhaldinu frá.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please
click here.